381. spurningaþraut: Mun hatrið sigra?

381. spurningaþraut: Mun hatrið sigra?

Þrautin í gær sner­ist um Spán, hér er hlekkur á hana.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Konan á mynd­inni hér að ofan hefur tekið sér eins konar dul­nefni. Samt sjá allir í hendi sér hvað hún heitir. Og hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Reykja­vík, Kópa­vogur, Hafn­ar­fjörður, Akureyri. Þetta eru fjórir fjöl­menn­ustu þétt­býl­is­staðir Íslands. En hver kemur svo í fimmta sæti? Raunar er þessi staður nú lík­lega orð­inn örlítið fjöl­menn­ari en Akureyri og mundi sam­kvæmt því vera í fjórða sæti. En hver er hann alt­ént?

2.  Hvað heitir hinn aðþrengdi for­maður breska Verka­manna­flokks­ins?

3.  Anas platyrhynchos. Svo nefn­ist á lat­ínu stærsta og auð­þekkj­an­leg­asta bus­lönd Íslands. Hvað kall­ast hún á hinni ylhýru þjóð­tungu?

4.  Hvar starfar stjórn­mála­flokk­ur­inn Sinn Féin?

5.  „Hver á sér fegra föð­ur­land, / með fjöll og dal og bláan sand, / með norð­ur­ljósa bjarma­band / og björk og lind í hlíð?“ Hver orti?

6.  Árið 1991 skipti ríki eitt hér í ver­öld um höf­uð­borg. Borgin Lagos var svipt þeim heiðri en Abuja varð hin nýja höf­uð­borg. Hvaða ríki er þetta?

7.  Milli hvaða eyja er Stóra belti? Nefna verður báðar eyj­arnar.

8.  Í hvaða sæti lenti „Hatrið mun sigra“ með Hatara í Eurovision-keppn­inni fyrir tveim árum?

9.  Helstu menn Hatara eru þrír karl­menn, þótt fleiri komi gjarnan við sögu. Nefnið að minnsta kosti tvo þeirra — og hér duga fornöfn.

10.  Á Íslandi leyn­ist á einum stað gríð­ar­mikil gosa­skja, nærri kringlótt, 35-40 kíló­metrar í þver­mál. Ekki er ljóst hvenær gaus þar síð­ast en senni­lega eru mörg þús­und ár síðan. Í vestri er skarð í fjöllin umhverfis öskj­una. Nokkur stór­fljót eiga þarna upp­tök sín. Hvað heitir þessi staður?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Reykja­nes­bær.

2.  Starmer.

3.  Stokkönd.

4.  Á Írlandi — bæði á Norður-Írlandi og í írska lýð­veld­inu.

5.  Hulda.

6.  Nígería.

7.  Milli Sjálands og Fjóns í Danmörku.

8.  Tíunda.

9.  Klemens, Matthías og Einar.

10.  Hofs­jök­ull.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Guðrún eða GDRN.

Á neðri mynd­inni er breska leik­konan Helen Mirren.

***

Spán­ar­þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár