Hættur að borða í mótmælaskyni við grímuskyldu

Þrátt fyrir að Zoran Kokatovic hafi lækn­is­vott­orð um að hann geti ekki borið and­lits­grímu var honum meinað að sinna vinnu sinni grímu­laus. Þá fær hann ekki afgreiðslu í mat­vöru­versl­unum án þess að bera grímu. Hefur hann því hætt að borða í mót­mæla­skyni.

Þrátt fyrir að hafa vott­orð um að hann geti ekki borið and­lits­grímu hefur Zoran Kokatovic verið meinað að sinna vinnu sinni í Kringl­unni grímu­laus. Þá hefur honum verið úthýst úr mat­vöru­versl­unum vegna þess að hann hefur neitað að bera grímu. Er nú svo komið að Zoran hefur hætt að borða í mót­mæla­skyni við því að honum sé gert að bera grímu.

Fram­kvæmda­stjóri Kringl­unnar segir að versl­un­ar­mið­stöðin sé ekki opin­ber bygg­ing og því sé heim­ilt að setja þar reglur um að allir skuli bera grímu, án und­an­tekn­inga. Ítrek­uðum erindum Zorans til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins hefur ekki verið svarað, þrátt fyrir að umboðs­maður Alþingis hafi óskað svara vegna máls­ins. „Ég er með lækn­is­vott­orð, ég er ekki í hung­ur­verk­falli, mér er bara bannað að fara inn í mat­vöru­búð og kaupa mat,“ segir Zoran.

Zoran hefur starfað sem rekst­ar­stjóri kaffi­húss­ins Café Roma í Kringl­unni en í end­uðum mars­mán­uði fékk hann erindi frá rekstr­ar­stjóra Kringl­unnar þar sem honum er bönnuð för um Kringl­una beri hann ekki and­lits­grímu. Zoran fékk hins vegar útgefið lækn­is­vott­orð 25. nóv­em­ber á síð­asta ári varð­andi þetta. Í því segir: „Það vott­ast hér með að við­kom­andi getur ekki borið and­lits­grímu af lækn­is­fræði­legum ástæðum.“ Undir vott­orðið skrifar heim­il­is­læknir Zorans. Ástæða þess að Zoran getur ekki borið grímu er að hann er hald­inn tauga­sjúk­dómi sem getur valdið ofnæm­is­við­brögðum við skerta súr­efn­is­inn­töku.

Vottorð ZoransEins og sjá má þá hefur Zoran vott­orð frá heim­il­is­lækni um að hann geti ekki borið grímu.

Undanþáguákvæði vegna heilsufars

Í gild­andi sótt­varn­ar­reglu­gerð kemur fram í grein 4. að skylt sé að nota and­lits­grímur þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra fjar­lægð­ar­tak­mark­anir. Þó eru und­an­þágu­á­kvæði í reglu­gerð­inni, sem ná til þeirra sem fengið hafa Covid-19, til þeirra sem hafa ekki skiln­ing eða þroska til að nota and­lits­grímu eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsu­fars.

Zoran hafði um all langt skeið sinnt vinnu sinni í Kringl­unni án þess að bera grímu. „Lög­reglan kom þrisvar vegna þess. Ég sýndi þeim lækn­is­vott­orð og það var allt í lagi. Ég fékk síðan bréf frá fram­kvæmda­stjóra Kringl­unnar seint í mars­mán­uði þar sem sagði að ég mætti ekki lengur fara um Kringl­una án þess að bera grímu. Samt veit hann allt um mín veik­indi, að ég sé með lækn­is­vott­orð og hvernig sótt­varn­ar­regl­urnar eru. En það á ekki að fara eftir þeim reglum í Kringl­unni.“

Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir engar undanþágur gefnar

Stundin ræddi við Sigurjón Örn Þórsson, fram­kvæmda­stjóra Kringl­unnar, og spurði hann hvers vegna lækn­is­vott­orð Zorans væri ekki tekið gilt. Sigurjón segir ein­falda svarið vera að grímu­skylda sé í Kringl­unni. „Og engar und­an­þágur gefnar frá því. Hvort sem menn hafa verið spraut­aðir eða af lækn­is­fræði­legum ástæðum. Það er vegna þess að okkur er heim­ilt, við erum ekki opin­ber bygg­ing, við erum hús í einka­eigu, að setja okkur þær reglur sem við teljum að séu til heilla fyrir húsið í heild. Það að ætla að elt­ast við mann og annan þegar hér koma kannski á bil­inu 12 til 20 þús­und manns á dag með ólíkar skýr­ingar á því út af hverju það ekki getur notað grímur, þá er það ekki ger­legt í fram­kvæmd. Menn setja bara ákveðnar reglur og mönnum ber að fara eftir þeim.“

Spurður hvort hann telji ekki óeðli­legt að setja Zoran þær skorður sem raun ber vitni og koma í veg fyrir að hann geti stundað atvinnu sína, í ljósi þess að hann hafi lækn­is­vott­orð um að hann geti ekki borið grímu, segir Sigurjón svo ekki vera. „Mér finnst það ekki. Þessi regla er sett í ljósi aðstæðna í þjóð­fé­lag­inu. Við fylgjum henni eftir með þessum hætti og ef menn geta ekki sinnt störfum sínum þá eru þeir bara í for­föllum og verða að fá aðra til að sinna störfum sínum, það er svo ein­falt.“

„Ef ég fer inn í mat­vöru­búð fæ ég ekki afgreiðslu vegna þess að ég er ekki með grímu“
Zoran Kokatovic

Atli Már Ing­ólfs­son lög­maður sendi fyrir hönd Zorans fyr­ir­spurn til land­lækn­is­emb­ætt­is­ins 26. mars síð­ast­lið­inn. Þar kemur fram að þrátt fyrir und­an­þágu frá grímu­skyldu, með lækn­is­vott­orði, hafi rekstr­ar­að­ili Kringl­unnar meinað Zoran að sinna nauð­syn­legum erind­is­rekstri í Kringl­unni, þar á meðal aðgangi að sal­erni. Vildi Atli fá svör við því hvort ekki væri rétt að í sótt­varn­ar­reglu­gerð væri heim­ild til að nýta vott­orð vegna heilsu­fars til að sleppa við grímu­skyldu. „Getur emb­ættið eitt­hvað útskýrt hvort þessi óvægna afstaða á sér rétt­læt­ingu eða væri hægt að fá svar við því hvort ástæðu­laust sé að banna þeim alla umferð í Kringl­unni þar sem þau séu með vott­orð fyrir því að geta ekki borið and­lits­grímu?“

Guðrún Aspelund, yfir­læknir á sótt­varn­ar­sviði, svar­aði eft­ir­far­andi fyrir hönd emb­ættis land­læknis. „Það þarf að fylgja reglu­gerð­inni.“ Benti Guðrún á að hafa sam­band við heil­brigð­is­ráðu­neytið vegna máls­ins.

Umboðsmaður alþingis spyr ráðuneytið um málið

Zoran sendi erindi á heil­brig­iðs­ráðu­neytið í mars vegna þessa en án þess að fá skýr svör. Hann sendi ítrekun á heil­brigð­is­ráðu­neytið ásamt því að senda afrit á dóms­mála-, utan­ríkis- og for­sæt­is­ráðu­neytin 26. apríl síð­ast­lið­inn þar sem hann óskar enn eftir við­brögðum. Einu við­brögðin sem borist hafa eru til­kynn­ing frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu um að mál­inu hafi verið vísað til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins.

„Ég er með lækn­is­vott­orð, ég er ekki í hung­ur­verk­falli, mér er bara bannað að fara inn í mat­vöru­búð og kaupa mat. Ef ég fer inn í mat­vöru­búð fæ ég ekki afgreiðslu vegna þess að ég er ekki með grímu. Ég reyndi að sýna lækn­is­vott­orðið og líka sótt­varn­ar­reglu­gerð­ina, grein númer fjögur, og líka grein 65. í stjórn­ar­skránni en þeir vilja ekki sjá þetta. Ég kall­aði sjálfur á lög­regl­una vegna þess að það var verið að brjóta á mér. Lög­reglan kom og henti mér út úr búð­inni. Mér er ráð­lagt að panta mat í gegnum netið, en ég segi að ef að gyð­ingum eða svörtu fólki væri gert að kaupa mat á net­inu og bara hvítt fólk fengi þann lúxus að kaupa mat í búðum, þá væri það mis­munum,“ segir Zoran og bendir á að í 65. grein stjórn­ar­skrár­innar, sem nefnd hefur verið jafn­ræð­is­regla stjórn­ar­skrár­innar, komi fram að allir skuli njóta mann­rétt­inda án til­lits til stöðu sinnar í þjóð­fé­lag­inu.

„Ég er bara hel­víti svangur núna og líður ekki vel“
Zoran Kokatovic

Zoran gerir ekki athuga­semd við almenna grímu­skyldu til varnar útbreiðslu Covid-19. Hann telur hins vegar að verið sé að brjóta á sínum rétt­indum. „Ég skil að krakkar sem vinna í Bónus skilji þetta ekki en mér finnst skrýtið að heil­brigð­is­ráð­herra skilji þetta ekki. Ég vil ekki láta mis­muna mér, brjóta á mér,“ segir Zoran. Hann sendi umboðs­manni Alþingis erindi vegna máls­ins 28. apríl síð­ast­lið­inn. Þar er kvartað yfir sinnu­leysi heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við að bregð­ast við og svara fyr­ir­spurnum vegna máls­ins. Umboðs­maður sendi heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu erindi 3. maí síð­ast­lið­inn þar sem farið er fram á að ráðu­neytið upp­lýsi umboðs­mann um hvað líði afgreiðslu erindis Zorans. „Þess er óskað svör ber­ist umboðs­manni eigi síðar en 20. maí nk.“

 Zoran segir að hann sé afskap­lega von­svik­inn yfir því hvernig tekið hafi verið á máli hans. Þá sé hann farið að svengja all veru­lega enda hafi hann hætt að borða 22. apríl síð­ast­lið­inn. „Ég á ekki mat, ég get ekki farið í búð. Ég er bara hel­víti svangur núna og líður ekki vel. Ég held áfram að vera svangur þar til ég fæ svar við bréfum mínum til yfir­valda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár