380. spurningaþraut: Allt um Spán — kóngar og drottningar, borgir og íþróttamenn

380. spurningaþraut: Allt um Spán — kóngar og drottningar, borgir og íþróttamenn

Ja, þetta er þrautin frá í gær.

***

Að þessu snú­ast allar spurn­ing­arnar um Spán og Spán­verja. Fyrri auka­spurn­ing:

Kon­ungs­ætt ein réði lengi á Spáni. Sú ætt var að lokum svo inn­ræktuð að afleið­ingin var Karl II sem hafði svo van­skap­aðan kjálka að hann gat varla neytt matar og var auk þess að ýmsu leyti þroska­heftur og illa til lífs­ins búinn. Ættin hélt samt áfram inn­ræktun til að missa ekki Spán úr aski sínum. Hvaða ætt var þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   José Echegaray, Jacinto Bena­vente, Juan Ramón Jiménez, Vicente Aleix­andre, Camillo José Cela. Hvað eiga þessir fimm spænsku karl­menn sam­eig­in­legt — og engir aðrir?

2.   Árið 1492 létu kon­ungs­hjónin Ísabella í Kastilíu og Ferdin­and í Aragon heldur betur að sér kveða og breyttu í reynd gangi sög­unnar. Hvað gerðu þau skötu­hjúin?

3.   Jóhanna dóttir þeirra tók við kon­ungs­tign í báðum ríkjum en ríkti lítt eða ekki í raun og veru. Hvað var við­ur­nefni Jóhönnu þess­arar — sem skýrir valda­leysi hennar?

4.   Hver er þriðja fjöl­menn­asta borg Spánar?

5.   Hvað nefn­ist kon­ungur Spánar?

6.   Spán­verji einn er meðal allra sig­ur­sæl­ustu tennis-leik­ara heims­ins núna. Hvað heitir hann?

7.   Hvaða ár urðu Spán­verjar í fyrsta sinn heims­meist­arar í fót­bolta karla?

8.   Árið 1939 lauk grimmi­legu borg­ara­stríði á Spáni með sigri fas­ista­leið­tog­ans ... Já, hvað hét hann?

9.   All­margar eyjar til­heyra Spáni. Hvað heitir sú stærsta?

10.   Spænsk leik­kona hefur verið til­nefnd til Ósk­arsverð­launa þrí­vegis og unnið verð­launin einu sinni. Það var árið 2008 þegar hún fékk verð­launin fyrir auka­hlut­verk í mynd Woody Allen, Vicky Christina Barcelona. Hvað heitir þessi leik­kona?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Fræg orr­usta átti sér stað í námunda við þann stað á Spáni sem sést á mynd­inni hér að neðan. Hvað er orr­ustan sú kölluð?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Þeir eru einu Spán­verjarnir sem hafa unnið Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Mario Vargas Llosa rit­höf­undur hefur að vísu líka unnið þau og er spænskur rík­is­borg­ari núorðið en hann er nú Per­úmaður samt.

2.   Kostuðu ferð Kól­umbusar til Ameríku.

3.   Jóhanna brjál­aða eða vit­skerta.

4.   Valencia.

5.   Felipe eða Filippus.

6.   Nadal.

7.   2010.

8.   Francos.

9.   Mallorca.

10.   Penelope Cruz.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Kon­ungs­ættin kall­að­ist Habsborg.

Stað­ur­inn á neðri mynd­inni heitir Trafalgar-höfði og átt er við sjóorr­ust­una við Trafalgar 1805.

***

Jú, þetta ER þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár