379. spurningaþraut: Afi á Knerri, Birgir Ármannsson og ættarlaukur súkkulaðiframleiðenda

379. spurningaþraut: Afi á Knerri, Birgir Ármannsson og ættarlaukur súkkulaðiframleiðenda

Gær­dags­ins þraut.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað kall­ast dýrið á mynd­inni hér að ofan?

***

1.   Í skáld­sögu Gunnars Gunn­ars­son, Fjall­kirkj­unni, kemur fyrir per­sónan „afi á Knerri“ sem er óþreyt­andi að halda að sögu­mann­inum ákveð­inni fæðu­teg­und, sem afinn telur allra meina bót. Hvað er þar um að ræða?

2.   Fyrir hvaða flokk situr Birgir Ármanns­son á Alþingi Íslend­inga?

3.   Hvar fór síð­asta Eurovision-söngvakeppni fram?

4.   Hver er stærsti fjörð­ur­inn milli Húnaflóa og Eyja­fjarðar?

5.   Jaroslav Hasek hét rit­höf­undur einn. Hann skap­aði eina sögu­per­sónu sem fræg hefur verið allt frá því að bók um her­mennsku­feril per­són­unnar kom út. Hvað heitir bókin?

6.   Hverjir bjuggu fyrstir þar sem heitir L'Anse aux Meadows?

7.    Hvað er súpernóva?

8.   Sæl­gæt­is­fyr­ir­tækið Nói Síríus var nýlega selt Norð­mönnum, eftir að hafa verið í eigu einnar og sömu fjöl­skyld­unnar í hátt í öld. Einn ætt­ar­laukur þeirrar fjöl­skyldu náði að verða for­sæt­is­ráð­herra. Hvað hét hann?

9.  Nóbels­verð­laun eru — auk frið­ar­verð­launa — veitt fyrir afrek í bók­menntum, eðl­is­fræði, lækn­is­fræði og hag­fræði. Og reynar fyrir eina grein í við­bót! Hvaða grein er það?

10.   Hvað heitir fjall­garð­ur­inn milli Svarta­hafs og Kaspí­hafs?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá fígúru úr grískri goða­fræði. Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hákarla­lýsi.

2.   Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

3.   Í Tel-Aviv.

4.   Skaga­fjörður.

5.   Góði dát­inn Sveijk.

6.   Norrænir menn í Norður-Ameríku.

7.   Sól­stjarna sem springur, sprengi­stjarna.

8.   Geir Hall­gríms­son.

9.   Efna­fræði.

10.   Kákasus.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Dýrin á efri mynd­inni heita flóðsvín.

Goð­sagna­veran á neðri mynd­inni heitir Sýsifos. Hann var dæmdur til að velta steini sífellt upp á hól, svo rann steinn­inn niður brekk­una og hann þurfti end­ur­taka allt sitt erf­iði.

***

Og þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár