378. spurningaþraut: Meiri kjaftgelgjurnar! En hvað eru kjaftgelgjur?

378. spurningaþraut: Meiri kjaftgelgjurnar! En hvað eru kjaftgelgjur?

Hvað er þetta? Jú, hlekkur á þraut gær­dags­ins!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er mað­ur­inn sem sést hér lengst til vinstri? Vissu­lega sést aðeins hluti af höfði hans.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða ríki var Daríus kon­ungur? — stundum nefndur keis­ari.

2.   Í hvaða sögum kemur Draco Malfoy við sögu?

3.   Hver var feg­urst í heimi hér, að sögn speg­ils­ins?

4.   Bartóló­meus, Filippus, Jakob, Júdas, Matteus, Páll, Símon Pétur, Tómas. Hvað af þessum nöfnum á ekki heima hér?

5.  Kolbrún Berg­þórs­dóttir er kunn­ust sem bók­mennta­gagn­rýn­andi en hún hefur raunar komið víða við á hinum ýmsum blöðum gegnum tíð­ina. Hún var meira að segja rit­stjóri eins blaðs­ins um tíma. Hvaða blað var það?

6.   Ólafur Ragnar Grímsson var kjör­inn for­seti Íslands í fimmta sinn í kosn­ingum árið 2012. Hver varð þá í öðru sæti í kjör­inu?

7.   En í þriðja sæti?

8.   Ein af bókum Halldórs Laxness fjallar um kristni­hald ... hvar?

9.   Hvernig dýr eru kjaft­gelgjur?

10.   Hvað er FJÓRÐA fjöl­menn­asta ríki heims­ins?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað stór­borg sést hér á mynd­inni að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Persíu.

2.   Bókunum um Harry Potter.

3.   Mjall­hvít.

4.   Páll var ekki einn af hinum upp­runa­legu postulum Jesú.

5.   DV.

6.   Þóra Arn­órs­dóttir.

7.   Ari Trausti Guð­munds­son.

8.   Undir Jökli.

9.   Fiskar (skötu­selir eru til dæmis kjaft­gelgjur).

10.   Indónesía.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn lengst til vinstri á efri mynd­inni heitir Tom Hanks.

Hann er leik­ari, eins og flestir vita, og er þarna í hlut­verki sínu í mynd­inni Saving Private Ryan.

Neðri myndin er aftur á móti tekin úr lofti yfir Tókíó.

Þið áttuð að sjálf­sögðu að þekkja borg­ina af fall­inu Fuji sem sést lengst til hægri.

En betur hér til hliðar.

***

Og hér er svo að nýju hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár