377. spurningaþraut: Ríkasta kona heimsins? Sjaldséð farartæki?

377. spurningaþraut: Ríkasta kona heimsins? Sjaldséð farartæki?

Þraut frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mál­verk­inu hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Sómalíu?

2.   Sputnik V. Hvað er það?

3.   Nýtt barna­leik­rit í Þjóð­leik­hús­inu heitir eftir far­ar­tæki einu, sem er að vísu afar sjald­séð á Íslandi. En það er reyndar býsna sjald­séð yfir­leitt — af ákveðnum ástæðum. Hvað heitir þetta leik­rit?

4.   Martin Bormann hét maður. Hann hafði sig ekki mikið í sviðs­ljós­inu en var aðstoð­ar­maður ... hvers?

5.   Hvað heitir hæsta fjallið á Vest­fjörðum, 998 metra hátt, milli Dýra­fjarðar og Arn­ar­fjarðar?

6.   Árið 1968 var þekktur bar­áttu­maður fyrir rétt­indum svartra í Banda­ríkj­unum myrtur úr laun­sátri. Hvað hét hann?

7.   Françoise Bettencourt Meyers er rík­asta kona í heimi. Hún á voða­lega mikið af pen­ingum. Hún er frönsk, 67 ára og primus motor í snyrti­vöru­fyr­ir­tæki sem afi hennar stofn­aði á sínum tíma. Hvaða fyr­ir­tæki er það?

8.   Hvar nam Helgi magri land sam­kvæmt fornum heim­ildum íslenskum?

9.   Egg eru einkar vítamín­rík. Í þeim mun þó ekki að finna eitt til­tekið vítamín. Hvað er það?

10.   Þrjár konur á Íslandi munu bera nafnið Kolbrún  Bene­dikts­dóttir. Ein þeirra er öðrum þekkt­ari vegna starfs síns. Hvað gerir hún?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Myndin hér að neðan var tekin á HM í fót­bolta 1982. Sex and­stæð­ingar Argent­ínu­manns­ins Diego Maradona búast til að reyna að verj­ast honum og aug­ljóst að þeir búast varla við að það tak­ist. Þetta er ein fræg­asta ljós­myndin af snill­ingnum Maradona en hvaða til­heyrðu hinir ótta­slegnu and­stæð­ingar sex? 

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Móga­d­i­sjú.

2.   Rúss­neskt bólu­efni gegn Covid-19.

3.   Kafbátur.

4.   Hitlers.

5.   Kald­bakur.

6.   Martin Luther King.

7.   L'Oréal.

8.   Í Eyja­firði.

9.   C.

10.   Hún er sak­sókn­ari. Lög­fræð­ingur dugar ekki.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Katrínu miklu, keis­ara­ynju í Rúss­landi á ofan­verðri 18. öld.

Sex­menn­ing­arnir and­spænis Maradona spil­uðu fyrir lands­lið Belgíu. Myndin er raunar öööör­lítið blekj­andi, því Belgarnir sex höfðu verið í auka­spyrnu­vegg sem var að rakna upp þegar Maradona fékk bolt­ann. Og Belgar unnu reyndar leik­inn 1-0.

***

Hlekkur á næstu þraut á undan þess­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár