Skrifar á hverjum degi allan ársins hring

Nýjasta bók Ragnars Jónassonar, Vetrar­mein, gerist á Siglu­firði þar sem skelfi­legur atburður á sér stað um páska­helgi. Bókin er komin í hillur verslana í Bretlandi, Banda­ríkjunum og Frakk­landi en bækur Ragnars hafa selst í um tveimur milljónum eintaka og eru á listum yfir bestu glæpa­sögur ársins 2020 að mati fjölmiðla í nokkrum löndum.

Ragnar var sískrifandi þegar hann var barn. Þá var hann undir miklum áhrifum frá Agöthu Christie og handskrifaði glæpasögur sem gerðust að sjálfsögðu í þykkri Lundúnarþoku.

Að næturlagi var lögreglu­stöðin sjaldnast mönnuð og þessa nóttina var Ari á bakvakt. Næturnar voru yfirleitt rólegar í bænum, það var einna helst að lögreglan væri kölluð til um helgar vegna drykkju­láta. 
Hann var lagstur upp í rúm aftur, þó enn glaðvakandi, þegar síminn hringdi. 
„Vegfarandi gekk fram á unga stúlku út á götu, hún virtist látin. Sjúkra­bíll er á leiðinni,“ sagði starfs­maður neyðar­línunnar, rómurinn yfir­vegaður en ákveðinn. 
Ari hraðaði sér fram á gang og niður stigann, með símann á öxlinni. 
„Hvar?“
„Aðalgötu.“ 
„Hver fann hana?“ 
„Guðjón Helgason heitir hann. Hann ætlaði að bíða eftir lögreglunni.“ 
Ari kannaðist ekki við nafnið. 
Hann var kominn í búninginn og út á götu tveimur mínútum síðar. Lögreglu­jeppinn var við lögreglu­stöðina að venju, hann yrði enga stund að koma sér niður á Aðalgötu. Það var napurt en stillt veður og himinninn stjörnu­bjartur, óendanleiki næturinnar með öðrum hætti en á sumrin, fjar­lægari, aðeins þung­bærari. 
Ari …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­afinn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rithöfundur vegna þess að við sitjum hér að bókmennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramatíska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmtilegar en raunsæjar barna­bækur eins og nýjustu bókina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frístunda­starf.
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði fossinn

Sigríður Tómasdóttir frá Brattholti var mikið náttúru­barn og dýravinur en átti erfitt með mannleg samskipti. Sigríður er þekktust fyrir baráttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í fossinn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði fossinn er söguleg skáldsaga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrifaði fyrst um Siggu frá Brattholti fyrir þrjátíu árum. Hún segir mikilvægt að vekja athygli á baráttu­konum fyrri tíma.

11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár