Grínast með gengisfellingu afsökunarbeiðninnar

Í uppistands­sýningunni VHS biðst forláts leika þremenn­ing­arnir sér með athöfnina að baki þess að biðjast afsökunar. Þeir ræða við Stundina um grín og völd og nýlega afsökunar­beiðni Péturs Jóhanns.

VHS biðst forláts
VHS biðst for­láts Uppi­stand­ar­arnir segja grín sem byggir á ras­isma vera úrelt.

Uppistands­hópurinn VHS frumsýndi um daginn sýningu sem talar óvart beint inn í málefni líðandi stundar. Hópurinn segir að þema sýningarinnar, VHS biðst forláts, hafi þróast úr því að vera einfalt grín um óhöpp yfir í að fjalla um innihalds­lausar afsökunar­beiðnir frægs og valda­mikils fólks.

„Við vorum búnir að taka eftir þó nokkrum afsökunar­beiðnum þegar við vorum að þróa hugmyndina,“ segir Stefán Ingvar Vigfússon. „Við fórum að pæla í gengis­fellingu afsökunar­beiðninnar og hvernig hún er gjarnan sett fram sem hálfkák. Fólk segir „sorrí“ þegar það tekur gríðarleg feilspor, og þylur upp ákveðna athöfn. Okkur fannst fyndið að nota þessa ofur-formlegu afsökunar­beiðni fyrir minni atvik.“

Um það leyti sem VHS fór að kynna nýju sýninguna var einmitt ein slík afsökunar­beiðni í þjóðfélags­umræðunni, en það var hans Péturs Jóhanns Sigfús­sonar á rasískri eftirhermu sem var fest á filmu. Hann sagði að honum þætti leitt að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár