Ungmenni mótmæla brottvísun barna: Einn bangsi fyrir hvert barn sem sent var burt

Bangsar biðu þing­manna fyrir framan nefnda­svið Alþingis í morgun, bangsar sem tákna börn sem send voru burt og neitað um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Ung­menna­ráð UNICEF stóð fyrir mót­mæl­unum, sem áttu að vekja sam­visku­bit eða sekt­ar­kennd hjá þing­mönnum.

Ungmenni mótmæla brottvísun barna: Einn bangsi fyrir hvert barn sem sent var burt
Vöktu athygli Mótmælin vöktu athygli þing­manna og gesta og gang­andi. Hér er Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna og vara­for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, á leið fram­hjá gjörn­ingnum.

Í morgun mættu þing­menn óvenju­legum gestum á leið til vinnu, en fyrir framan nefnda­svið Alþingis sátu 75 tusku­dýr. Talan var ekki valin af handa­hófi. Hver bangsi táknar barn, sem hafnað var land­vist­ar­leyfi árið 2019, sam­kvæmt lögum um útlend­inga. Gerður Ævars­dóttir, vara­for­seti Ung­menna­ráðs UNICEF á Íslandi, telur útlend­inga­lögin ekki hafa mann­úð­ar­sjón­ar­mið í for­grunni.

Gerður er tví­tugur nýstúd­ent, og hefur tekið þátt í starfi Ung­menna­ráðs­ins síð­ast­liðin tvö ár. Ung­menna­ráðið er hópur ungs fólks sem vinnur náið með starfs­fólki UNICEF á Íslandi að fræðslu og fram­kvæmd Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Samtökin hafa ítrekað gagn­rýnt brott­vís­anir flótta­barna og bent á að aðstæður í við­tök­u­löndum séu langt frá því að upp­fylla staðla um mann­sæm­andi lífs­skil­yrði.

75 börn75 börnum var neitað um land­vist­ar­leyfi á Íslandi á síð­asta ári. Hér horfir Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á tusku­dýrin sem tákna börnin.

Óar við frumvarpi ráðherra

Inn­setn­ing bangsanna er hluti af tákn­rænum mót­mælum Ung­menna­ráðs­ins gegn fram­kvæmd stjórn­valda. Fram­kvæmdin byggir ekki á laga­skyldu af neinum toga, og brýtur gegn upp­haf­legum til­gangi Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, sem var að dreifa ábyrgð á flótta­fólki um Evrópu, en íslensk stjórn­völd nota almennt til að rétt­læta end­ur­send­ingar við­kvæmra hópa. Bangs­anir halda á skiltum þar sem stendur meðal ann­ars með rit­hendi barns: „Áslaug Arna, er þér sama um rétt­indi barna?“

„Áslaug Arna, er þér sama um rétt­indi barna?“

Ung­menna­ráð­inu óar við yfir­vof­andi þreng­ingum á rétt­indum hæl­is­leit­enda. Frumvarp dóms­mála­ráð­herra myndi gera stjórn­völdum skylt að hafna umsókn þeirra, óháð aldri og mögu­leikum við­komu­landa til að upp­fylla ákvæði alþjóða­laga um grund­vall­ar­rétt­indi barna, til dæmis frið, fjöl­skyldu, skóla­göngu og vernd gegn hvers kyns ofbeldi, en börn í yfir­fullum flótta­manna­búðum eru afar ber­skjölduð fyrir vændi og vinnu­þrælkun.

Börn sem þurftu á aðstoð að halda

Gerður Ævars­dóttirGerður er vara­for­maður Ung­menna­ráðs UNICEF á Íslandi, sem stóð fyrir mót­mæl­unum.

Samkvæmt Gerði á aðgerðin að veita alþing­is­mönnum teng­ingu við mála­flokk­inn. „Þetta eru ekki bara tölur á blaði, heldur raun­veru­leg börn, sem þurftu á hjálp okkar að halda.“ Afdrif end­ur­sendra barna eru yfir­leitt óljós vegna tak­mark­aðra sam­skipta­tæki­færa, en árið 2018 birtu tengiliðir flótta­fjöl­skyldu, sem end­ur­send var til Þýska­lands, almenn­ingi myndir af tveimur smá­börnum sem neydd­ust til að dvelja í skóg­lendi um hávetur.

 „Bangs­arnir og skiltin eiga að vekja alþing­is­mönnum sam­visku­bit, ef ekki hrein­lega sekt­ar­kennd“

Gerður segir aðgerð­inni beint að alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis, sem ber ábyrgð á mála­flokknum. „Bangs­arnir og skiltin eiga að vekja alþing­is­mönnum sam­visku­bit, ef ekki hrein­lega sekt­ar­kennd. Hvað hefðu þau getað gert til að stöðva brott­vís­anir? Hver ber ábyrgð­ina? Alþingi setur vissu­lega lögin, en það er hlut­verk okkar allra að vera á verði og vernda börn, sama hvaðan þau koma.“ 

Fyrir utan nefnd­ar­sviðBöngs­unum var komið fyrir fyrir utan nefnd­ar­svið Alþingis. Hér má sjá Lilju Rafneyju Magn­ús­dóttur, þing­konu Vinstri grænna, á leið fram­hjá.
Gengið fram­hjáBrynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gengur inn á nefnda­svið og fram­hjá böngs­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár