Fjölmennt á samstöðufundi: „Við erum að styðja líf svartra manna í öllum heiminum“

Mikill fjöldi fólks var sam­an­kom­inn á Aust­ur­velli til þess að syrgja George Floyd sem lét lífið af völdum lög­reglu­of­beldis.

Fjöl­mennt var á Aust­ur­velli í dag þangað sem fólk mætti til að styðja bar­áttu svartra gegn lög­reglu­of­beldi í Banda­ríkj­unum. Það sem ein­kenndi þessi mót­mæli umfram önnur fjöl­menn mót­mæli á Aust­ur­velli síð­ustu ár var hryggð­ar­blær­inn sem lá yfir þátt­tak­endum. Sumir föðm­uð­ust, á meðan aðrir felldu tár í minn­ingu George Floyd og ann­arra sem látið hafa lífið með sam­bæri­legum hætti og flestir lutu höfði er þeir hlust­uðu á ræðu­menn tjá reynslu­sögur sínar af ras­isma og ofbeldi.

Mót­mæl­endur voru mættir til þess að sýna sam­stöðu og mót­mæla með frið­sælum hætti and­láti George Floyd, sem átti sér stað um hábjartan dag í Minnisota fylki, af völdum lög­reglu­of­beldis. Fjórir lög­reglu­menn áttu hlut í dauða Floyd, en einn þeirra að nafni Derek Chauvin kraup með hné sitt á hálsi hans í nærri því níu mín­útur og gaf ekk­ert eftir jafn­vel þótt George Floyd léti vita að hann gæti ekki andað. Yfirvöld í Minnsota hafa verið undir miklum þrýst­ingi til þess að draga lög­reglu­menn­ina fyrir dóm og hafa þeir nú allir verið ákærðir, ýmisst fyrir ann­arar gráðu morð eða aðstoð við morð, sam­kvæmt BBC.

Frið­sælir mót­mæl­endur á Aust­ur­velli báru margir skilti áletruð „I can't bre­athe“ til þess að minn­ast loka­orða Floyd. Orða sem voru hunsuð af lög­reglu­mönn­unum sem drógu hann til dauða. Fjöldi ann­arra mót­mæl­enda báru skilti sem á stóð „Black Lives Matter“ sem er slag­orð hreyf­ingar sem berst fyrir félags­legum rétt­indum svartra Banda­ríkja­manna, en hefur fengið alþjóð­legan með­byr, meðal ann­ars á Íslandi. Orðin fela í sér áfelli­dóm á sam­fé­lög sem mis­muna fólki eftir lit­ar­hafti og lætur sem líf hinna svörtu vegi minna en hinna hvítu. Þessi hug­mynda­fræði kyn­þátta­stig­veldis hefur kostað ómæld manns­líf.

Lög­reglan hefur ekki gefið út fjölda­tölur en um er að ræða fjöl­menn­ustu sam­komu hér á landi frá því að sam­komu­bann var sett á um miðjan mars. Fund­ur­inn var skipu­lagður var af Dori Levett Bald­vins­son, Derek T. Allan og Sante Feaster sem eiga það sam­eig­in­legt að vera þeldökkir Banda­ríkja­menn, búsett á Íslandi.

Meðal við­staddra voru tón­list­ar­konan Björk Guð­munds­dóttir og þing­menn­irnir Helga Vala Helga­dóttir og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir. Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri Grænna, var einnig við­staddur. Hann sagði í við­tali við Stundina: „Mér finnst bara mik­il­vægt að við sýnum sam­stöðu þessum góða mál­staði hvar sem við erum í heim­inum. Hvert líf skiptir máli, hvernig á lit­inn sem það er.“

Stundin ræddi við unga konu sem sagð­ist hafa mætt til þess að styðja Black Lives Matter-hreyf­ing­una og sýna stuðn­ing við fjöl­skyldur þeirra sem látið hafa lífið. Önnur ung kona sló í sama streng og bætti við að „morðið á George Floyd hafi vakið umtalið veru­lega mikið, því það var tekið upp á vídjó og svo margir við­staddir.“ Rasismi væri til staðar hér á landi líkt og ann­ars staðar og það hafi alltaf angrað hana, en oft sé hann und­ir­liggj­andi og fólk taki ekki eftir honum.

Ungur, svartur Íslend­ingur stóð ásýndar og bar litla dóttur sína á herðum sér. „Við erum bara að styðja líf svartra manna í öllum heim­inum. Frétt­irnar í dag eru að segja fullt um hvað er í gangi í heim­inum og við þurfum að laga það.“ 

Lista­konan Sólveig Eir Stewart sagði: „Mér finnst bara mik­il­vægt að sem flestir í öðrum löndum sýni stuðn­ing við þessa bar­áttu. Líka vegna ástands­ins sem er í Banda­ríkj­unum. Fyrir utan þetta atvik sem kom upp, þá er þetta sam­fé­lags­legt vanda­mál.“ 

Banda­rísk kona sem búsett er á Íslandi tjáði þakk­læti sitt fyrir þátt­töku Íslend­inga í þessum sam­stöðu­fundi. Hún sagði fólk þurfa að gera betur og nefndi mik­il­vægi þess að ræða hlut­ina og hlusta á raddir þeirra sem eru dökkir á hör­und. Ísland væri heim­ili hennar núna og það væri mik­il­vægt að gera betur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

#BlackLivesMatter

Rísa upp gegn misrétti, ofbeldi og niðurlægingu
Erlent#BlackLivesMatter

Rísa upp gegn mis­rétti, ofbeldi og nið­ur­læg­ingu

Mótmælin vegna dauða George Floyd hafa varpað kast­ljósi á elsta og rót­grón­asta vanda­mál Banda­ríkj­anna. Aðgerða­sinnar og skipu­leggj­endur mót­mæla segja að komið sé að löngu tíma­bæru upp­gjöri við þá kyn­þátta­hyggju sem gegn­sýrir allt dag­legt líf og póli­tík vest­an­hafs. Banda­ríska lög­reglan er sögð órjúf­an­legur hluti af kerfi sem hefur frá upp­hafi nið­ur­lægt blökku­fólk og beitt það skipu­lögðu póli­tísku ofbeldi fyrir hönd hvíta meiri­hlut­ans.
Elliði varar við því að íslenska lögreglan gæti þurft að vígbúast
Fréttir#BlackLivesMatter

Elliði varar við því að íslenska lög­reglan gæti þurft að víg­bú­ast

Ummæli Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra Ölfuss, um ofbeldi almennra borg­ara gegn lög­regl­unni vöktu hörð við­brögð. Hann áréttar áhyggjur sínar af stöðu íslensku lög­regl­unnar og varar við því að hún gæti þurft að vopn­bú­ast enn frekar. Afbrota­fræð­ingur bendir á að ekk­ert styðji full­yrð­ingar Elliða um vax­andi nei­kvæðni í garð lög­reglu, sem þurfi að fara var­lega í vald­beit­ingu gagn­vart minni­hluta­hópum.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár