Skipulag og húsnæði eftir heimsfaraldur

Þétting byggðar er komin til að vera og sömu­leiðis fólks­fjölgun í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, ef marka má sér­fræð­inga sem Stundin ræddi við um hús­næð­is­upp­bygg­ingu og borg­ar­skipu­lag. Atvinnu­hús­næði verður sveigj­an­legra og sömu­leiðis verður mik­il­vægt að nýta þau rými sem fyrir eru og finna þeim nýjan til­gang ef þess þarf. Grænni áherslur verða ríkj­andi. Í þessum öðrum hluta af þremur verður litið nánar á skipu­lags­mál og hús­næð­is­upp­bygg­ingu.

Skipulag og húsnæði eftir heimsfaraldur

Þótt skamm­tíma­á­hrif Covid og efna­hag­skrepp­unnar af hennar völdum gæti valdið tíma­bund­inni kulnun á hús­næð­is­mark­aði, eru allar líkur á að hús­næð­is­upp­bygg­ing komi til með að ná sér fljót­lega aftur. Met­fjöldi íbúða hefur verið í bygg­ingu í Reykja­vík á und­an­förnum fimm árum, eða lið­lega 1000 að með­al­tali á ári. Um þessar mundir eru um 8000 nýjar íbúðir í kort­unum, og það aðeins í Reykja­vík. Hin marg­um­tal­aða þétt­ing byggðar í höf­uð­borg­inni er að raun­ger­ast með nýjum bygg­ing­ar­reitum og jafn­vel heilum hverfum innan borg­ar­innar. Sem dæmi má nefna nýja byggð við Efsta­leiti, hverfi sem er í upp­bygg­ingu við Hlíð­ar­enda, ný íbúa­byggð í Voga­hverfi, þétt­ing­ar­reitur við Orku­húsið og fram­kvæmdir á Kringlu­reit og mikið af nýju hús­næði á Kirkju­sandi, svo eitt­hvað sé nefnt. En hvað ger­ist nú? Hefur veiran áhrif á fram­tíð­ar­horfur í hús­næð­is­málum, eða rétt­ara sagt, efna­hag­skreppan sem er nú þegar hafin? Hafa þarfir og kröfur fólks um hús­næði breyst? Halda bæj­ar­fé­lög á borð við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lífið í borginni eftir Covid 19

Menningarstarf þarf einfaldara og þéttara stuðningsnet
GreiningLífið í borginni eftir Covid 19

Menn­ing­ar­starf þarf ein­fald­ara og þétt­ara stuðn­ings­net

Tón­list­ar­fólk, tón­leika­staðir, skemmti­kraftar, íþrótta­fé­lög, leik­hús, veit­inga­hús og barir standa afar illa í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins. Fyrir fólk og atvinnu­greinar sem byggj­ast að mestu leyti á því að fólk komi saman til að eiga skemmti­legar stundir, voru sam­komu­tak­mark­anir aug­ljós­lega skellur, sem enn sér ekki fyrir end­ann á. Þó má greina létti og mikla bjart­sýni. En hvað er hægt að gera til að vernda þessa ómissandi þætti borg­ar­sam­fé­lags­ins?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár