Maurar rækta plöntur Eina dýrið sem vitað er um, utan manns­ins, sem ræktar plöntur. Mynd: maksim shutov / unsplash

Skordýr sem rækta sér mat

Maðurinn er ekki eina dýra­teg­undin sem hefur tekið upp á land­bún­aði.

Það þarf kannski ekki að færa mörg rök fyrir því að mað­ur­inn er sú dýra­teg­und sem hefur vinn­ing­inn þegar keppt er í hug­viti. Að því er við best vitum erum við að minnsta kosti eina dýra­teg­undin sem notar snjall­síma og keyrir bíla. Maðurinn hefur þó ekki alltaf lifað við þessar aðstæður og þær aðstæður sem við lifum við í dag eru óra­fjar­lægar þeim raun­veru­leika sem frummað­ur­inn bjó við.

Fjöl­margar breyt­ingar eins og notkun á eldi og áhöldum hefur fleytt mann­inum áfram í þróun. Eitt af okkar stærri skrefum verður svo lík­lega að telj­ast þegar við hófum mat­væla­rækt fyrir u.þ.b. 12 þús­und árum.

Svo fórum við að rækta

Að rækta sér mat var ótrú­lega sniðug hug­mynd. Í stað þess að safna og veiða var mat­ur­inn bara til staðar úti í garði eða á túni og auð­velt að ná sér í eitt­hvað gúmmelaði í pott­inn. Með því að taka …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár