Líf í sóttkví: Sárast að fá ekki að sjá börnin

Natalía Ósk Rík­arðs­dóttir er ein með fjögur börn og þar af eitt fjög­urra mán­aða á meðan eig­in­mað­ur­inn er í sótt­kví. Íris Þórs­dóttir hittir börnin aðeins í fjarska, aðrir við­mæl­endur Stund­ar­innar sem sendir voru í sótt­kví hitta börnin jafn­vel ekk­ert meðan á þessu stendur. Þegar þetta er skrifað eru hátt í 4.000 Íslend­ingar í sótt­kví og þeim fjölgar hratt. Við ræddum við fólk um þá reynslu.

Líf í sóttkví: Sárast að fá ekki að sjá börnin
Aðskiln­að­ur­inn Íris var send beint í sótt­kví eftir þriggja vikna dvöl erlendis og synir hennar mega ekki koma nær móður sinni en þetta. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íris Þórs­dóttir er á þriðja degi í sótt­kví eftir frönsku­nám í Frakk­landi. Þar hugð­ist hún dvelja í fimm vikur en ákvað að drífa sig fyrr heim af ótta við að fest­ast í Frakk­landi. „Í raun held ég að ég hafi rétt sloppið.“

Að senda ást á milli staða 

Áður en hún fór út hafði hún þróað aðferð fyrir sig og syni sína, sem eru fimm ára gamlir, til að hugsa um hvert annað. „Ég und­ir­bjó það þannig heima að ég lét þá prófa að hugsa til mín og sagði þeim að þegar þeir gerðu það þá væri ég að senda ást til þeirra til baka og það gæti farið yfir allan hnött­inn. Um leið og þeir próf­uðu að hugsa til mín þá fundu þeir fyrir hlýju í hjart­anu og það sama átti við um mig. Við getum alltaf notað þetta og eins og þeir segja sjálfir, þá virkar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aðskilin vegna veirunnar

„Mig langar bara til að fá að vera með henni um páskana“
FréttirAðskilin vegna veirunnar

„Mig langar bara til að fá að vera með henni um pásk­ana“

„Við erum vön að vera saman og þekkjum ekk­ert annað.“ Þetta segir Ármann Ingimagn Hall­dórs­son. Eig­in­kona hans, Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir dvelur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dyngju á Egils­stöðum. Gróa, sem er 62 ára, er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Beckers, hún er í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins og þarf mikla umönnun sem Ármann hefur sinnt að miklum hluta síðan hún veikt­ist. Vegna heim­sókna­banns hafa hjónin ekki hist í margar vikur.
Kórónaveiran á Spáni: Flúði elliheimilið af ótta við að deyja einn
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Kór­óna­veiran á Spáni: Flúði elli­heim­ilið af ótta við að deyja einn

Tala lát­inna vegna kór­óna­veirunnar á Spáni er orðin hærri en í Kína. Á föstu­dag­inn höfðu 1.000 lát­ist á Spáni en nú hafa tæp­lega 3.500 beðið bana. Kór­óna­veiran hefur herjað á mörg elli­heim­ili í land­inu, meðal ann­ars á eitt í Madríd þar sem 89 ára heim­il­is­maður ákvað að taka til sinna ráða áður en röðin kæmi að honum.
Mikilvægt að halda í jákvæðnina
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Mik­il­vægt að halda í jákvæðn­ina

Kjartan Jarlsson er dval­ar­maður á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sólvangi. Algjört bann við heim­sóknum aðstand­enda á hjúkr­un­ar­heim­ili vegna COVID-19 far­ald­urs­ins veldur því að kona hans, dætur og barna­börn munu ekki geta heim­sótt hann næstu mán­uði, fari svo að bannið verði ekki end­ur­skoðað. Kjartan lætur þetta þó ekki á sig fá og heldur sem fast­ast í jákvæðn­ina.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár