Bakkafrost veit ekki hvað varð um 220 þúsund eldislaxa úr sjókvíum sem skemmdust í stormi

Regin Jacobsen, forstjóri Bakka­frosts í Færeyjum, segir að fyrir­tækið hafi hreinsað upp 800 þúsund dauða eldislaxa sem drápust í stormi sem gekk yfir eyjarnar. Bakka­frost veit ekki um 220 þúsund eldislaxa. Hafrann­sókn­ar­stofnun segir dæmi um að eldis­fiskur frá Færeyjum hafi veiðst á Íslandi.

Stærsta slysasleppingin
Stærsta slysa­slepp­ingin Um er að ræða stærsta slysa­slepp­ing­una á eld­is­laxi í sögu Bakka­frosts í Færeyjum að sögn Regins Jacobsen for­stjóra. Fyr­ir­tækið veit ekki hvað varð um 220 þús­und eld­is­laxa.

Stærsta laxeldis­fyrirtæki Færeyja, Bakka­frost, veit ekki hvað varð um 220 þúsund eldislaxa sem voru í tveimur eldis­kvíum sem skemmdust hjá fyrir­tækinu í mannskaða­stormi um mánaða­mótin febrúar-mars. Bakka­frost veit fyrir víst að 800 þúsund laxar drápust og hefur fyrir­tækið safnað þessum laxa­hræjum saman síðustu daga en fyrir­tækið hefur ekki vitneskju um 220 þúsund fiska. Þetta kemur fram í svörum frá Regin Jacobsen, forstjóra Bakka­frosts, við spurningum Stundarinnar.

Blaðið hefur reynt að fá svör fá Regin um málið frá því á mánudaginn. Laxar sem sleppa úr eldis­kvíum í Færeyjum geta mögulega komið til Íslands og farið upp í íslenskar ár. Má nefna að Hafrannsóknarstofnun telur að einn eldislax sem veiddist á Íslandi í fyrra hafi komið frá Færeyjum. Þetta sagði Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, við Stundina fyrr í þessari viku. Slíkur eldislax getur tekið með sér sjúkdóma og sýkt villtan íslenskan lax og einnig valdið erfða­breytingum í íslenska laxastofninunum. 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár