Fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar fær laun í sex mánuði

Guð­mundur Gunn­ars­son fær laun í sex mán­uði við starfs­lok en hann hætti sem bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar í vik­unni. Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins seg­ist ekki sækj­ast eftir emb­ætt­inu.

Guðmundur Gunnarsson
Guð­mundur Gunn­ars­son Mynd: Aðsend

Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar, fær laun í sex mán­uði við starfs­lok. Vef­mið­ill­inn BB.is greinir frá í dag.

Daníel Jak­obs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokksis í Ísa­fjarð­arbæ, segir í sam­tali við BB að það sé í sam­ræmi við ákvæði í ráðn­ing­ar­samn­ingi hans.

Fram kom í fréttum í fyrra­dag að Guð­mundur hefði látið af störfum og að ástæða starfs­loka væri ólík­ ­sýn á verk­efni á vett­vangi sveit­ar­fé­lags­ins. Þangað til ráðið verður í starfið mun bæj­ar­rit­ari, sem er stað­geng­ill bæj­ar­stjóra, gegna því.

Daníel seg­ist í sam­tali við BB ekki sækj­ast eftir því að verða bæj­ar­stjóri og að það standi ekki til. Hann vísar til þess að hann sé að huga að öðrum verk­efnum.

Hann vildi ekk­ert segja um tölvu­póst sem Guð­mundur sendi á bæj­ar­full­trúa og sagði að náðst hefði sam­komu­lag um starfs­lok og ein­blína ætti á það fremur en það sem gert er í hita leiks­ins. Sagðist Daníel að lokum óska Guðmundi vel­farn­aðar í því sem hann tæki sér fyrir hendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár