Karolina Fund: Önnur sólóplata Heiðu

Heiða Ólafs­dóttir ætlar að gefa út nýja sóló­plötu, 14 árum eftir að sú fyrsta, og síð­asta, kom út. Hún safnar fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Heiðu Ólafs­dóttur þekkja margir síðan hún lenti í öðru sæti í Idol Stjörnu­leit árið 2005 en síðan þá hefur hún starfað sem söng­kona og lærði leik­list í New York, þaðan sem hún útskrif­að­ist 2009. Tón­listin hefur þó alltaf verið aðal­starfið og 2015 sendi hún frá sér sitt fyrsta frum­samda lag. Stefnan var sett á að senda frá sér plötu.

Fyrsta sóló­platan kom út 2005 fyrir tæpum 14 árum síðan, og kom­inn tími á nýja plötu.

Á plöt­unni verða lög eftir Heiðu í bland við lög eftir nokkra af hennar upp­á­halds íslensku laga­höf­undum í nýjum útgáfum Heiðu og upp­töku­stjór­ans Snorra Snorra­sonar, en þau eru búin að ráða ein­vala­lið tón­list­ar­manna til þess að spila á plöt­unni.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég hef alltaf ætlað mér að þora meiru varð­andi tón­list­ar­sköpun mína og hef alltaf haft þörf fyrir að semja sjálf ásamt því að hafa þörf fyrir að túlka önnur lög með mínu nefi. En þegar maður starfar sem söng­kona þá auð­vitað fer oft­ast mesti tím­inn í það að syngja og æfa lög sem maður er beð­inn um að syngja á giggum heldur en að gera akkúrat það sem mann langar mest, þó auð­vitað sé alltaf gaman að syngja og vinna við fjöl­breytt verk­efni.

[adspot]Ég hugs­aði með mér að með til­komu Karolina Fund væri komin til­valin leið til þess að geta gert plötu án þess að taka alltof mik­inn séns en kost­ur­inn við Karolina Fund er auð­vitað þessi snilld að selja vör­una fyr­ir­fram til þess að geta síðan kostað fram­kvæmd­ina. Lands­lagið er svo breytt í tón­list­ar­út­gáfu þannig að það hefur orðið miklu erf­ið­ara að gera heila plötu en að senda bara frá sér eitt og eitt lag en þar sem þema plöt­unnar er svo skýrt í mínum huga að þá fannst mér að þetta yrði að vera í einni heild og þá kom Karolina Fund svo sterkt inn.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Platan mun inni­halda ein­göngu lög sem fjalla um ást, von, hlýju og yl. Tónlist er nefni­lega svo öflug og getur breytt líðan á svip­stundu, farið með mann upp og niður og allt þar á milli. Árið 2018 var einmitt þannig fyrir mér, upp og niður, út og suður, vegna þess að í byrjun árs lenti ég í bílslysi sem tók toll lík­am­lega og and­lega og náði svo hápunkti með brjósklosi.

Það er eitt­hvað svo hrika­lega glatað að geta ekki gert allt sem manni finnst að maður eigi að geta og missa þannig stjórn en það er þó alla­vega eitt sem ég get og það er að syngja og skapa tón­list en það er jafn­framt það sem er hvað mest lækn­andi fyrir mig. Og akkúrat það sem ég hef svo oft látið sitja á hak­anum, yfir­leitt út af sjálfs­efa og skorti á tíma. Þess vegna er það mik­il­vægt fyrir mig að vinna núna bara að lögum sem færa hug­ann í átt að feg­urð­inni sem er allt í kringum okkur og tón­list sem lætur fólki mest megnis líða vel og gefur von.

Eins og ég sagði fyrr hér að þá er lands­lagið virki­lega breytt og sumum finnst maður kannski gal­inn að vera að gefa út plötu á þessum tíma Spotify, Youtube og smá­skífa en þessi miðlar eru frá­bærir og mun tón­listin mín auð­vitað halda áfram að rata þangað. En ég vona samt svo heitt og inni­lega að tón­list­ar­menn haldi áfram að gera heilar plötur því að til dæmis ég sem hlust­andi elska að setja plötu í gang og hlusta frá upp­hafi til enda. Það slítur stundum í sundur upp­lifun­ina af tón­list­inni að ein­hverju leyti að þurfa alltaf að vera að leita að næsta lagi og næsta lagi, að mínu mati. Þannig að ég er virki­lega spennt fyrir verk­efn­inu en svo ætlum við að fagna útgáf­unni með útgáfu­tón­leikum í Salnum í Kópavogi 23. mars.

Ég hlakka líka svo mikið til að vinna með þessum snill­ingum sem ég er búin að raða í kringum mig en útsetn­ingar og upp­töku­stjórn verður í höndum Snorra Snorra­sonar, Helgi Hannesar spilar á píanó, Pétur Valgarð á gítar, Ólafur Þór Krist­jáns­son á bassa og tromm­urnar lemur Benni Bryn­leifs. Hönnun umslags sér svo lista­konan Ynja Mist um.

Fyrsta lagið sem hefur fengið að hljóma af plöt­unni er hið fal­lega lag KK, Kær­leikur og tími, en útsetn­ingin sem Snorri gerði af þessu lagi sýnir vel hljóð­heim­inn sem platan mun geyma.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár