Segir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis standast tímans tönn

Ólafur Þór Hauksson segir nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefndar Alþingis enn vera full­gildar í dag. Inn­lendir þættir hefðu leikið lyk­il­hlut­verk í því að banka­hrunið hafi orðið, sér­stak­lega hegðun bank­anna sjálfra. Umfang mark­aðs­mis­notk­unar kom honum á óvart.

Ólafur Þór Hauks­son, hér­aðs­sak­sókn­ari og áður sér­stakur sak­sókn­ari, segir að honum finn­ist sem nið­ur­stöð­urnar á ástæðum banka­hruns­ins sem settar voru fram í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis eld­ast vel.

[links]„Mér finnst í tím­ans rás að skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis hafi stað­ist tím­ans tönn og margt sem þar er leitt fram full­kom­lega standa enn þann dag í dag. Margt af því sem þar er skrifað fékk síðan end­ur­lit eða speglun í þeim málum sem við rann­sök­uðum sem saka­mál. Þannig að stærstu nið­ur­stöður skýrsl­unnar finnst mér alveg full­gildar enn þann dag í dag. Það er hverjum og einum mjög holl lesn­ing í umræð­unni núna að taka sér eitt hefti í hönd og renna yfir nið­ur­stöð­urnar þar því þær eru býsna stöndugar.“

Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við Ólaf í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut á mið­viku­dag þar sem þeir ræddu hrunið og afleið­ingar þess í til­efni af því að ára­tugur er lið­inn frá atburð­unum afdrifa­ríku nú um stund­ir. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

Veikt eigið fé og stórfellt útlán til eigenda

Meg­in­nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar voru þær að orsök banka­hruns­ins væri vegna inn­lendra þátta. Eft­ir­litið hafi verið of los­ara­legt, stjórn­mála­menn of væru­kærir og stóru bank­arnir þrír: Kaupþing, Lands­bank­inn og Glitnir, farið allt of geyst. Þeir hefðu 20- fald­ast á stærð á sjö árum, sótt of hratt og áhættu­samt inn á nýja mark­aði erlendis, að utan­um­hald og eft­ir­lit með útlánum þeirra hefði ekki fylgt útlána­vexti og að gæði útlána­safns­ins hefði minnkað veru­lega við áður upp taldar aðstæður.

Þá hafi eig­endur allra stóru bank­anna þriggja fengið óeðli­legan aðgang að lánsfé hjá þessum sömu bönkum í krafti eign­ar­halds síns. Auk þess hefðu bank­arnir þrír tekið umtals­verða áhættu vegna eigin hluta­bréfa með því að lána fyrir kaupum á þeim með veðum í bréf­unum. Það vr nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar Alþingis að veiga­mikil rök hafi leitt til þeirrar nið­ur­stöðu að „draga hefði átt lán, sem ein­vörð­ungu eru tryggð með veði í eigin hluta­bréfum, frá eigin fé fjár­mála­fyr­ir­tækis. Hið sama gildi um hluti sem voru að formi til skráðir í eigu þriðja aðila en „fyrir reikn­ing“ við­kom­andi fjár­mála­fyr­ir­tækis.“

Mun umfangsmeiri mál en reiknað var með

Aðspurður um hvað hafi komið honum mest á óvart þegar emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara fór að skoða hin svoköll­uðu hrun­mál segir Ólafur að upp­haf­lega hann og sam­starfs­fé­lagar hans talið að þeir myndu rekast á mál sem tengd­ust ástand­inu sem skap­að­ist við hrunið, rétt fyrir það eða rétt eftir. Að um yrði að ræða mál þar sem ein­stak­lingar reyndu að nýta sér tæki­færi til þess að koma með ólög­mætum hætti yfir fjár­muni á ögur­stundu. „En ein­hverra hluta vegna varð miklu meira um það að þessi mál voru að teygja sig mun lengra aftur í tím­ann. Og við vorum að eiga við hátt­semi sem var fyrir vikið mun alvar­legri og mun fleiri sem tóku þátt í. Og var kannski mun skipu­legri en við áttum von á til að byrja með.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið undanfarið ár