Innflytjendur mikilvægir Íslendingum

Koma inn­flytj­enda til lands­ins er nauð­syn­leg fyrir íslenskt sam­fé­lag, viljum við halda uppi þeim lífs­gæðum sem við þekkjum, sam­kvæmt grein í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Lilja Dögg Jónsdóttir, hagfræðingur og MBA.
Lilja Dögg Jóns­dóttir, hag­fræð­ingur og MBA. Mynd: Aðsend

Mik­il­vægt er fyrir Íslend­inga að greiða leið inn­flytj­enda að land­inu þar sem koma þeirra mun hafa góð efna­hags­leg og sam­fé­lags­leg áhrif. Mögu­legar leiðir til þess að ná því mark­miði eru meðal ann­ars gagna­söfnun um félags­lega stöðu inn­flytj­enda auk tví­hliða aðlög­unnar inn­flytj­enda og heima­fólks. Þetta kemur fram í grein Lilju Daggar Jóns­dóttur, hag­fræð­ings og MBA, sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kom síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.

í grein­inni beinir Lilja sjónum að hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara á íslenskum vinnu­mark­aði, en það hefur hækkað úr 8% árið 2009 í 12% árið 2017. Samkvæmt henni er þró­unin hér­lendis í takti við það sem hefur sést um alla Evrópu þar sem fjöldi inn­flytj­enda hefur almennt verið á upp­leið. Ísland sé raunar að bæt­ast frekar seint í hóp landa þar sem hlut­fall inn­flytj­enda af mann­fjölda hefur auk­ist, en nú nálg­ast íslenska hlut­fallið ört hlut­fall nágranna­landa okkar í Evrópu.

Óttinn sjaldnast á rökum reistur

Lilja bendir einnig á algengan ótta heima­fólks við að inn­flytj­endur „steli störfum þess,“ en sam­kvæmt henni er sá ótti nær und­an­tekn­ing­ar­laust ekki á rökum reistur. Þvert á móti þurfa Íslend­ingar á inn­flytj­endum að halda, þótt að upp­lifun margra sé sú að þeir þarfn­ist okkar.

Vegna lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni og hækk­andi með­al­ald­urs muni þörf Íslend­inga á erlendu vinnu­afli vaxa til muna á næstu árum, vilji þeir styðja við líf­eyr­is­skuld­bind­ingar fram­tíðar og við­halda þeim lífs­gæðum sem þeir þekkja.

Viðhorfið ræður úrslitum

Þar sem inn­flytj­endur eru mik­il­vægir íslensku sam­fé­lagi nefnir Lilja nokkrar til­lögur að því hvernig Ísland gæti tekið betur á móti þeim. Meðal þeirra er gagna­söfnun um líðan og félags­lega stöðu inn­flytj­end­anna og tví­hliða aðlögun, en hún miðar að því að inn­fæddir kynn­ist menn­ing­ar­sam­fé­lagi inn­flytj­enda og öfugt.

Að lokum bætir Lilja við að við­horf heima­fólks gagn­vart inn­flytj­endum ráði úrslitum um hversu vel tekst til. Þótt flestir við­ur­kenni jákvæð efna­hags­leg áhrif fólks­flutn­inga mæta inn­flytj­endur oftar en ekki ein­hvers konar and­stöðu í sínu nýja sam­fé­lagi. Ekki dugi að gera lítið úr þeirri and­stöðu en nauð­syn­legt sé að ræða hana og byggja þá umræðu á stað­reyndum.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár