Dagur: Sterk staða í fjármálum borgarinnar

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík hafnar gagn­rýni á fjár­mála­stjórn meiri­hlut­ans í borg­inni.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, gefur lítil fyrir gagn­rýni á fjár­mál borg­ar­innar sem sett hefur verið fram af póli­tískum and­stæð­ingum hans.

Hann segir að núver­andi meiri­hluti hafi náð við­snún­ingi í rekstri borg­ar­innar eftir að hann hafi þurft að taka tölu­vert á út af launa­hækk­unum, ekki síst inn í skóla­kerf­inu og í grunn­þjón­ustu borg­ar­innar. „Við erum að fara að kynna árs­reikn­ing í næstu viku. Hann sýnir áfram­hald­andi styrka stjórn og sterka stöðu. En það eru ekki nýjar fréttir fyrir þá sem fylgst hafa með fréttum um fjár­mál borg­ar­innar.

[links]Við náðum þessa mikla við­snún­ingi með rekstri Orku­veit­unnar og búum að því ennþá. Það sama gildir um önnur fyr­ir­tæki borg­ar­innar þannig að ég er stoltur þegar ég horfi yfir reikn­ing­anna og horfi yfir árang­ur­inn og sam­starfið sem við höfum átt í meiri­hlut­anum. Við fag­fólkið hjá borg­inni og sam­starfs­að­il­anna úti í fyr­ir­tækjum borg­ar­innar.“

Þetta kemur fram í nýjasta þætti Kjarnans á Hring­braut sem var frum­sýndir í gær­kvöldi. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Reiknað með milljarða afgangi í ár

A-hluti borg­ar­inn­ar, sem er sú starf­semi hennar sem er að hluta eða öllu leyti fjár­mögnuð með skatt­tekj­um, hefur verið í járnum á und­an­förnum árum. Árin 2014 og 2015 var hún til að mynda nei­kvæð upp á 16,4 millj­arða króna. Það þýðir að borg­inni vant­aði þá upp­hæð til að geta staðið undir rekstr­ar­kostn­aði A-hlut­ans. Vert er að taka fram að stærsta ástæða þess að hall­inn var jafn hár og raun ber vitni var sú að breyt­ingar á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum á árinu 2015 gerði það að verkum að bók­færð voru gjöld sem voru rúm­lega tíu millj­örðum krónum hærri en þau voru árið eft­ir. Þrátt fyrir að líf­eyr­is­skuld­bind­ing­arnar væru teknar út fyrir sviga þá var borgin samt sem áður að tapa millj­örðum króna á ári.

[adspot]Þetta breytt­ist árið 2016 þegar afkoma hennar var jákvæð um 2,6 millj­arða króna. Árið 2017 var gert ráð fyrir að rekstr­ar­af­gangur borg­ar­innar yrði um 500 millj­ónir króna og fjár­hags­á­ætlun reikn­aði með að hann verði 3,4 millj­arðar króna á árinu 2018. Hver end­an­leg nið­ur­staða í rekstri borg­ar­innar var í fyrra kemur í ljós í næstu viku þegar árs­reikn­ingur hennar verður birtur. Rekstr­ar­nið­ur­staðan á síðan, sam­kvæmt rekstr­ar­á­ætlun, að batna veru­lega á árunum 2019 til 2022 og vera þá lægst 5,6 millj­arðar króna árið 2019 og mest 10,8 millj­arðar króna.

Stór breyta í þeirri afkomu er áætluð tekju­aukn­ing vegna fast­eigna­gjalda. Þau voru í heild 15,6 millj­arðar króna árið 2016 en áætlað var að þau myndu skila 18 millj­örðum króna í borg­ar­sjóð í fyrra. Það yrði tekju­aukn­ing á þeim lið upp á 2,4 millj­arða króna á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár