Er þeirrar skoðunar að embættisfærsla dómsmálaráðherra hafi verið röng

Svandís Svav­ars­dóttir segir að hún hafi ekki skipt um skoðun á emb­ætt­is­færslu Sigríðar Á. Andersen í Lands­rétt­ar­mál­inu. Hún hafi verið röng og dóm­stólar hafi einnig kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu.

„Ég er áfram þeirrar skoð­unar að þessi emb­ætt­is­færsla hafi verið röng. Og raunar er þar sam­mála dóm­stólum um þá nið­ur­stöðu.“ Þetta segir Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra um ákvörðun Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um að leggja fram til­lögu um 15 dóm­ara við nýjan Lands­rétt fyrir tæpu ári síðan, sem vék frá til­lögu dóm­nefndar um hverja ætti að skipa án þess að rök­stuðn­ingur ráð­herr­ans væri nægj­an­legur.

[links]Svandís seg­ist þó ekki hafa litið svo á að van­traust­s­til­laga sem lögð var fram á Sigríði í mars, og hún kaus gegn, hafi snú­ist um þá emb­ætt­is­færslur heldur hvort að Vinstri græn styddu áfram rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Þetta er meðal þess sem fram kom í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut í gær­kvöldi. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Vantraustið snerist um ríkisstjórnarsamstarfið

Í júní 2017 skrif­aði Svandís, ásamt, Katrínu Jak­obs­dótt­ur, nú for­sæt­is­ráð­herra, grein á vef Vinstri grænna sem fjall­aði meðal ann­ars um Lands­rétt­ar­mál­ið. Þar stóð: „Upp­­­­­nám milli­­­­­dóm­­­stigs­ins er nú algjört, á ábyrgð dóms­­­mála­ráð­herr­ans og rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­innar all­r­­­ar. Enn er ekki séð fyrir endan á mála­­­lyktum þessa og gæti svo farið að Lands­­­réttur yrði að glíma við van­­­traust og skort á trú­verð­ug­­­leika um ára­bil.“

[adspot]Aðspurð hvort að Svandís telji að ábyrgð dóms­mála­ráð­herra á mál­inu sé ekki lengur til staðar, í ljósi þess að hún og Katrín kusu báðar gegn van­traust­s­til­lögu á Sigríði í mars­mán­uði, sagði Svandís svo ekki vera og að hún hafi ekki skipt um skoðun í þessu máli. Hún telji enn að emb­ætt­is­færsla Sigríðar hafi verið röng.

Á sínum tíma hafi hún ekki tekið þátt í atkvæða­greiðslu um skipun Lands­rétt­ar­dóma vegna per­sónu­legra tengsla hennar við einn þeirra sem dóm­nefnd hafði metið hæf­asta til að sitja í rétt­inum en Sigríður hafði ákveðið að skipa ekki. Þau tengsl eru við Ástráð Har­alds­son, nú hér­aðs­dóm­ara, sem er fyrr­ver­andi eig­in­maður og barns­faðir Svan­dísar. Þegar Vinstri græn hafi ákveðið að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf þá sagði Svandís að þau hafi áttað sig á því að flokk­ur­inn væri að fara að gera það eins og ger­ist og gengur í íslenskum stjórn­málum. „Það eru flokk­arnir sem sam­mæl­ast um það að ganga til sam­starfs og flokk­arnir velja sér síðan sín ráð­herra­efni. Og við það situr. Hér erum við að tala um emb­ætt­is­færslur frá fyrri tíð, sem eru frá því fyrir kosn­ingar, og þær voru ekki til umfjöll­unar í þessu van­trausti að mínu mati heldur í raun og veru hvort að við ætl­uðum að halda áfram að styðja þetta sam­starf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár