Málaði yfir sárin með gleði

Mynd­list­ar­konan Hulda Vil­hjálms­dóttir ólst upp við óskil­greind veik­indi móð­ur­innar. Eftir að hafa alist upp við mikla reiði ákvað hún að lifa í gleði. Lífið hefur þó ekki alltaf verið auð­velt, sonur hennar brennd­ist lífs­hættu­lega og hún missti hann frá sér, hefur þurft að berj­ast fyrir heim­il­inu, börn­unum og sjálfri sér. En hún gefst aldrei upp.

Hulda Vil­hjálms­dóttir tekur á móti mér úti á Granda, í hráu hús­næði þar sem lista­menn hafa aðsetur. Þegar ég kem sé ég hvar hún stendur hlæj­andi frammi á gangi, í kaffi með konu úr næstu vinnu­stofu, hún brosir hlý­lega til mín og leiðir mig inn á vinnu­stof­una, sem hún deilir með tveimur öðrum. Eftir að hafa rótað aðeins í verkum hennar býður hún til sætis á sófa sem stendur í miðju rým­inu. Vinur hennar stendur við strig­ann og heldur áfram að mála á meðan hún segir frá því sem mót­aði hana sem mann­eskju.

Hún segir frá veik­indum móð­ur­innar sem aldrei fengu nafn en birt­ust í reiði, örygg­is­leys­inu sem fylgdi föð­ur­missi og slysi son­ar­ins sem brennd­ist lífs­hættu­lega með þeim afleið­ingum að hún varð sjálf veik og þurfti að leita aðstoðar geð­læknis: „Ég hef heyrt þetta allt áður,“ segir vin­ur­inn vin­gjarn­lega og lætur frá­sögn­ina ekki slá sig út af lag­inu, frá­sögn­ina af því hvernig hún hefur alla ævi þurft að berj­ast fyrir öryggi sínu og fram­tíð, berj­ast við fátækt, alkó­hól­isma og dóm­hörku, fyrir börn­unum og sjálfri sér. Því þegar hún gekk í gegnum skilnað, glímdi við krabba­mein og þurfti að láta börnin tíma­bundið frá sér á meðan hún náði bata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár