Bjarni braut jafnréttislög við skipan skrifstofustjóra

Kona sem taldi sig hæf­ari en sá sem var ráð­inn kærði skipan í emb­ætti skrif­stofu­stjóra skrif­stofu opin­berra fjár­mála til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Úrskurður hennar er sá að ráð­herra hafi brotið jafn­rétt­islög með því að skipa karl í emb­ættið.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, braut lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna þegar hann skip­aði Björn Þór Her­manns­son til að gegna emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu opin­berra fjár­mála í ráðu­neyt­inu í lok ágúst í fyrra. Þetta er nið­ur­staða kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála í mál­inu en úrskurður hennar var birtur í dag.

Kona sem sótti um starfið kærði skipun Björns Þórs til kæru­nefnd­ar­innar þar sem hún taldi sig hafa verið hæf­ari en hann til að gegna starf­inu. Hún væri með tölu­vert meiri og víð­tæk­ari reynslu en sá sem var skip­aður. Í ljósi þess að fimm karlar og þrjár konur skipi emb­ætti skrif­stofu­stjóra hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og ein kvenn­anna sé sett tíma­bundið í for­föllum karl­kyns skrif­stofu­stjóra halli á konur hvað varðar skipan í emb­ætti skrif­stofu­stjóra hjá ráðu­neyt­inu. Því taldi konan að henni hafi verið mis­munað á grund­velli kyn­ferðis og vís­aði í lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna því til stuðn­ings. Samkvæmt þeim lögum ber að skipa umsækj­anda af því kyni sem hallar á ef umsækj­endur eru jafn­hæfir. Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála tók undir þetta og sagði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið ekki hafa sýnt fram á að aðrar ástæður en mis­munun á grund­velli kyn­ferðis hafi legið til grund­vallar því að konan var ekki skipuð í starfið. Því hafi þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem skip­aði í starfið, brotið gegn ákvæðum laga með ákvörðun sinni.

Hallaði á konur

Alls bár­ust 13 umsóknir um starfið þegar það var aug­lýst til umsóknar. Ákveðið var að kalla fyrst fjóra umsækj­endur í við­töl og að þeim loknum voru þeir tveir umsækj­endur sem skorað höfðu hæst sam­kvæmt mati hæfn­is­nefndar boð­aðir í við­tal hjá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Um var að ræða þann sem skip­aður var í starfið og kon­una sem kærði þá skipun. Þegar kon­unni var til­kynnt um skipan karls­ins í starfið var sú nið­ur­staða sögð í sam­ræmi við nið­ur­stöðu hæfn­is­nefndar. Konan sem kærði skip­un­ina taldi að hæf­is­nefnd­inni hefði mis­tek­ist að fram­kvæmda heild­stætt mat á umsækj­endum svo sem skylt sé að gera. í úrskurð­inum segir: „Hafi kærða mátt vera það ljóst að skipun umsækj­anda sem hafi jafn stutta starfs­reynslu í sam­an­burði við marga aðra umsækj­endur gæti falið í sér brot á ákvæðum jafn­rétt­islaga sem og óskráðum reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins. Einkum sé þetta mik­il­vægt í ljósi þess að sá sem skip­aður var hafi verið inn­an­húss­maður hjá kærða og að aðal­at­riðið í rök­stuðn­ingi hæfn­is­nefndar fyrir ráðn­ing­unni hafi verið frammi­staða í við­tali ásamt hástemmdri umsögn yfir­manns hans hjá kærða. Þannig hafi þessi atriði rutt úr vegi öðrum veiga­meiri sjón­ar­miðum, svo sem meiri stjórn­un­ar­reynslu, reynslu af starfs­manna­á­byrgð, rekstri og starf­semi opin­berra stofn­ana og félaga­sam­taka. Þá blasi við að skip­unin sé í blóra við ákvæði laga nr. 10/2008 þar sem veru­lega hallar á konur í stjórn­un­ar­stöðum hjá kærða.“

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sagði hins vegar að það væri almennt við­ur­kennt að stjórn­völd hefðu all­mikið svig­rúm til að ákveða við emb­ætt­is­veit­ingar hvaða sjón­ar­mið séu lögð til grund­vallar og til að leggja heild­ar­mat á kosti og eig­in­leika umsækj­enda sem og hæfni þeirra. „Þetta eigi ekki síst við í þessu til­viki þar sem um sé að ræða þá skrif­stofu ráðu­neyt­is­ins sem ætlað sé að leiða marga þætti inn­leið­ingar nýrra laga um opin­ber fjár­mál en lögin feli í sér veru­legar breyt­ingar á því lagaum­hverfi sem áður hafi gilt. Embætti skrif­stofu­stjóra opin­berra fjár­mála sé lyk­il­staða í því ferli. Megi hér vísa til þess sem fram hafi komið í aug­lýs­ingu að skrif­stofan hafi yfir­um­sjón með gerð fjár­mála­stefnu og árlegri fjár­mála­á­ætlun fyrir hið opin­bera í heild og hafi for­ystu um und­ir­bún­ing frum­varps til fjár­laga í sam­ræmi við ný lög um opin­ber fjár­mál. Jafn­framt hafi komið fram að skrif­stofan sam­hæfi starf sem fram fari í öðrum ráðu­neytum vegna und­ir­bún­ings fjár­mála­stefnu, fjár­mála­á­ætl­unar og fjár­laga­frum­varps á grund­velli grunn­gilda sem séu skil­greind í lögum um opin­ber fjár­mál. Það er afstaða kærða að val ráð­herra á fram­an­greindu sjón­ar­miði hafi verið lög­mætt og mál­efna­legt og hæf­asti umsækj­and­inn hafi verið skip­aður í emb­ættið á grund­velli þess.“

Kæru­nefnd

jaf­rétt­is­mála

var ósam­mála þessum rök­stuðn­ingi og sagði að lög hefðu verið brotin þegar karl var skip­aður í emb­ættið í lok ágúst í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár