Umferðin um Víkurskarð miklu meiri en gert var ráð fyrir

Þrátt fyrir kostn­að­ar­aukn­ingu við gerð Vaðla­heið­ar­ganga þá eru rekstr­ar­for­sendur þeirra mun betri en reiknað var með þegar farið var í fram­kvæmd­ina. Umferð­ar­aukn­ingin, meðal ann­ars vegna vaxtar í ferða­þjónst­unni, hefur næstum 50 pró­sent á fjórum árum.

Gangnagerð í Vaðlaheiði var samþykkt á Alþingi sumarið 2012.
Gangna­gerð í Vaðla­heiði var sam­þykkt á Alþingi sum­arið 2012. Mynd: vadlaheidi.is

Margt hefur verið skrifað um Vaðla­heið­ar­göngin og sýn­ist sitt hverjum eins og eðli­legt er þegar stórar sam­göngu­fram­kvæmdir eru ann­ars vegar. Líkt og með öll jarð­göng eru Vaðla­heið­ar­göngin kostn­að­ar­söm fram­kvæmd en þau verða 7,5 km að lengd.

Göngin munu til­heyra þjóð­vegi nr 1 og leysa af fjall­veg­inn um Vík­ur­skarð sem oft hefur reynst far­ar­tálmi yfir vetr­ar­tím­ann.

Með til­komu gang­anna mun hring­veg­ur­inn stytt­ast um 16 kíló­metra. Fyrir íbúa á Norð­ur­landi, ferða­menn á svæð­inu og fyr­ir­tæki verður þessi sam­göngu­bót lyfti­stöng. Með göng­unum stytt­ist vega­lengdin á milli Eyj­ar­fjarð­ar­sýslu og Þing­eyj­ar­sýslna með til­heyr­andi hag­ræð­ingu fyrir þá sem þurfa að sækja atvinnu á þessum svæðum, auk þess sem sam­göngur verða trygg­ari allan árs­ins hring sem styrkir meðal ann­ars ferða­þjón­ust­una á svæð­inu.

Þá verða göngin ekki síður mik­il­væg fyrir öryggi íbú­anna í Þing­eyj­ar­sýslum þar sem Sjúkra­húsið á Akureyri þjónar þeim sem aðal­sjúkra­hús. Ekki verður mikil hætta á að lok­ast austan Vik­ur­skarðs vegna veð­urs, eins og mörg dæmi eru um, þegar göngin verða komin í gagnið.

[adspot]

Göngin verða dýrari

Margar fréttir hafa verið skrif­aðar um vand­ræðin sem upp hafa komið við gerð Vaðla­heið­ar­ganga. Þau hafa þau tekið lengri tíma en reiknað var með og svo verða þau tals­vert dýr­ari en lagt var upp með.

Í júní 2012 sam­þykkti Alþingi lög um gerð jarð­ganga undir Vaðla­heiði. Í þeim fólst að rík­is­sjóður gat lánað allt að 8,7 millj­arða króna til verk­efn­is­ins, á því verð­lagi sem var í lok árs 2011. Vextir á lán­unum voru allt að 3,7 pró­sent og átti það fé að duga fyrir stofn­kostn­aði.

Sér­stakt félag var stofnað utan um fram­kvæmd­ina, Vaðla­heið­ar­göng ehf. Meiri­hluta­eig­andi þess félags er Greið leið ehf. í eigu Akur­eyr­ar­bæj­ar, fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins KEA og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga. Minni­hluta­eig­andi í félag­inu er Vega­gerð­in. Gert var ráð fyrir að fram­kvæmdum yrði lokið í árs­lok 2016 og að ganga­gröftur myndi klár­ast í sept­em­ber 2015. Vinnan hefur hins vegar gengið hægar, meðal ann­ars vegna mik­ils vatns­is­flæðis og erf­ið­leika við að bora, en nú er útlit fyrir að göngin verði til­búin á næsta ári. Stjórn­völd ákváðu á dög­unum að sam­þykkja frek­ari lán­vet­ingar til að ljúka fram­kvæmdum um allt að 4,7 millj­arða.

En þrátt fyrir þetta, þá munu not­endur gang­anna sjálfir borga fyrir þau á end­anum með veggjöld­unum sem inn­heimt verða og ríkið mun eign­ast þau eftir ára­tugi og þá verða þau skuld­laus eins og nú er að ger­ast með Hval­fjarð­ar­göng.

Umferðarspár

Þegar ákveðið var að ráð­ast í gerð Vaðla­heið­ar­ganga var gerð spá um umferð, enda umferð um göngin grund­völl­ur­inn fyrir því að glöggva sig á rekstr­inum. Í skýrslu IFS um mat á for­sendum Vaðla­heið­ar­ganga sem unnin var fyrir Fjár­mála­ráðu­neytið árið 2012 kemur fram að umferð­ar­spáin sem lá til grund­vallar (með­al­spá) var upp á 1% aukn­ingu (með­al­tals­um­ferð um Vík­ur­skarð á dag á heils­árs­vísu – ÁDU) í umferð fram til 2015 en 2% aukn­ingu frá 2015-2025.

Skrifað var undir samn­inga við verk­taka um verkið í upp­hafi árs 2013.

Rauntölur vs umferðarspár

Frá því skýrsla IFS kom út árið 2012 og frá því skrifað var undir við verk­tak­ana árið 2013 hefur mikið vatn runnið til sjávar. Ekki er úr vegi að skoða ofan í kjöl­inn hvernig umferð­ar­spáin sem lá til grund­vallar við ákvörðun um smíði gang­anna hefur stað­ist tím­ans tönn.

Með því að skoða raun­tölur Vega­gerð­ar­innar um umferð á þjóð­vegi nr 1 frá 2012-2016 kemur ýmis­legt merki­legt í ljós.

Á Vík­ur­skarði er taln­ing­ar­staður yfir umferð á hring­veg­inum. Á með­fylgj­andi mynd sést að umferðin yfir Vík­ur­skarð hefur auk­ist mun meira en spáin sem lá til grund­vallar fram­kvæmd­inni gerði ráð fyrir. Umferðin hefur auk­ist um 47% á ára­bil­inu 2012-2016 en spáin gerði ráð fyrir 8% aukn­ingu. Aukn­ingin hefur haldið áfram á fystu mán­uðum árs­ins 2017 og útlit fyrir að hún geti orðið mun meiri, sam­hliða vexti í ferða­þjón­ustu.

Helstu skýr­ingar á þess­ari miklu umferð­ar­aukn­ingu er auk­inn ferða­manna­straumur um hring­veg­inn. Þá hefur auk­inn kraftur í atvinnu­málum á Norð­ur­landi einnig haft sitt að segja.

Umferðargrunnurinn sterkur

Umferð­ar­tölur Vega­gerð­ar­innar á Vík­ur­skarði sýna að umferð hefur auk­ist tæp­lega 40% meira á ára­bil­inu 2012-2016 sam­an­borið við þá spá sem lá til grund­vallar ákvörð­un­inni um smíði gang­anna.

Tekju­grunnur gang­anna er miklu sterk­ari en áður var reiknað með og þegar göngin verða opnuð á næsta ári verður umferðin um þau að lík­indum um 30-40% meiri á fyrsta rekstr­ar­ári þeirra heldur en talið var á þeim tíma sem fram­kvæmdin var ákveðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár