Birgittu leið „mjög illa“ þegar hún sat við hlið Jóns Gunnarssonar

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, sagði frá því á þingi í morgun að henni hefði liðið mjög illa þegar hún sat við hlið­ina á Jóni Gunn­ars­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manni atvinnu­vega­nefndar, á síð­asta þingi. „[Ég] gerði allt sem ég gat til að fá að vera flutt. Mig lang­aði oft ekki í vinn­una því mér leið svo illa við hlið­ina á þessum manni,“ sagði hún í morgun.

Hún hafði í gær­kvöldi skrifað færslu á Facebook þar sem hún sagði að Jón myndi aldrei biðj­ast afsök­unar á sínum „dylgjum og mann­vonsku“ í garð Bjarkar Guð­munds­dóttur lista­manns. „Ég þurfti að sitja við hlið­ina á honum í heilt ár og þurfti nán­ast að leita mér áfalla­hjálpar vegna dóna­skapar hans enda er hann þekktur fyrir að tudd­ast áfram yfir allt og alla á þing­inu.“ Í kjöl­far við­tals við Björk fyrir helgi og ummæla sem hún við­hafði um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og Bjarna Bene­dikts­son spurði Jón að því hvort Björk borg­aði skatta hér á landi og sagði hana daufa til augn­anna.

Jón kom fyrstur í ræðu­stól Alþingis í morgun til þess að lýsa yfir furðu sinni á ummælum Birgittu á Facebook.

Jón sagð­ist sjá ástæðu til þess að tala sér­stak­lega um þessi ummæli Birgittu. „Mér finnst þetta alvar­leg ummæli,“ sagði hann og sagði að hann hefði ekki fengið neinar athuga­semdir um fram­komu sína gagn­vart Birgittu frá for­seta þings­ins eða for­sætis­nefnd. Hann óskaði eftir því að hlut­ast yrði til um það að ummæli Birgittu yrði skoðuð og rann­sökuð. Honum þætti leitt ef svo væri að þing­menn sem sætu við hlið hans þyrftu að leita sér áfalla­hjálpar eftir það.

Í kjöl­far þess kom Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, í ræðu­stól og sagð­ist hafa orðið fyrir miklum von­brigðum með ræðu Jóns. „Ég hélt að hann ætl­aði að koma upp og lýsa iðrun vegna ummæla sinna um Björk Guð­munds­dóttur. [...] Mér fannst það nú ákveðið hámark á súr­r­eal­ism­anum að í stað þess kom hátt­virtur þing­maður upp og krafð­ist afsök­un­ar­beiðni frá Birgittu Jóns­dóttur.“ Jón hefði í stað þess að biðj­ast sjálfur afsök­unar ráð­ist á sam­þing­mann sinn.

Það var þá sem Birgitta kom í ræðu­stól og sagði frá því að henni hefði liðið mjög illa sitj­andi við hlið Jóns. Bæði for­seti þings­ins, margir þing­menn og skrif­stofu­stjóri Alþingis hefðu vitað af því. Hún hafi að lokum fengið leyfi til að skipta um sæti ef hún fyndi annan þing­mann til að skipta um sæti við sig. Enginn hafi feng­ist til þess.

Áður en form­leg dag­skrá þings­ins hófst komu svo bæði Jón og Birgitta aftur í ræðu­stól til að lesa upp þau ummæli sem hvort um sig hafði við­haft á net­inu. Jón sagði að hann bæri mikla virð­ingu fyrir lista­kon­unni Björk, en það hljóti að mega svara „þessu fólki“ þegar það kysi að tala niður til for­sætis- og fjár­mála­ráð­herra.

Birgitta hafði rétt hafið að lesa sín ummæli, sem lesa má hér í færsl­unni að ofan, þegar fussað var úr þing­sal. Hún stopp­aði og spurði hver hefði fussað, og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sagð­ist hafa gert það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár