Mynd: EPA

7,5 prósent þjóðarinnar verður í Laugardalnum í kvöld

Stærstu tón­leikar sög­unnar hér á landi verða haldnir í kvöld þegar rokk­hljóm­sveitin Guns N’Roses stígur á stokk á þjóð­ar­leik­vang­inum á Laug­ar­dals­velli. Búist er við hátt í 27 þús­und manns á völl­inn á tón­leika þar sem öllu verður tjaldað til.

Tónleikarnir í kvöld

Gólf hefur verið lagt yfir völl­inn sjálfan, en um 160 manns koma að und­ir­bún­ingi tón­leik­anna sem tók meira en heila viku. Til lands­ins bár­ust 56 gámar af alls kyns varn­ingi auk 100 vöru­bíla full­hlaðna af græjum. Full­byggt er sviðið 65 metra breitt og 22 metrar þar sem það rís hæst. Þrír risa­skjáir koma til með að sýna áhorf­endum öll smá­at­riði á svið­inu, sá stærsti sem er fyrir miðju sviðs­ins er 18 metrar að breidd og 9 metrar að hæð. Hlóð­kerfið ku vera hið öfl­ug­asta sem sett hefur verið upp á Íslandi og auk þess mega tón­leika­gestir eiga von á gríð­ar­legum fjölda eld­varpa og reyk­sprengja, ásamt ljósa­sýn­ingu.

Tölvugerð teikning eftir Tómas Pétursson þar sem sjá má stærðarhlutföllin eins og þau munu blasa við tónleikagestum í kvöld.
Tölvu­gerð teikn­ing eftir Tómas Pét­urs­son þar sem sjá má stærð­ar­hlut­föllin eins og þau munu blasa við tón­leika­gestum í kvöld.

Hliðin á tón­leika­svæð­inu munu opna klukkan 16.30, en til upp­hit­unar koma fram Tyler Bryant & the Shakedowns og íslenska sveitin Brain Police sem hefja spilun um klukkan 18.00.

Áætlað er að hljóm­sveitin sjálf hefji sína veislu um klukkan 20.00 og búist er við að hún spili í um þrjár klukku­stundir.

Í gær feng­ust þær upp­lýs­ingar að meira en 23 þús­und miðar væru seldir, en um 2.000 miðum var bætt við á loka­sprett­inum eftir að seld­ist upp á tón­leik­ana um miðjan júní. Sýslu­maður hefur veitt leyfi fyrir mest 26.900 manns á svæð­inu í kvöld.

Veð­ur­spáin er ágæt fyrir kvöldið í Reykja­vík. Búast má við um 11-12 stiga hita, 1-3 metrum á sek­úndu og þótt ótrú­legt megi virð­ast er ekki úti­lokað að sólin láti eitt­hvað sjá sig.

Veðurspáin í kvöld.
Veð­ur­spáin í kvöld.

Aðstand­endur hátíð­ar­innar hafa skipu­lagt sam­göngur og aðgengi sér­stak­lega í ljósi fjölda gesta sem munu leggja leið sína í Lauga­dal­inn í kvöld. Tón­leika­gestir eru ein­dregið hvattir til að fara tíma­lega niður á völl til að forð­ast of langar raðir. Þá eru gestir hvattir til að nýta sér virka ferða­máta, ganga eða hjóla. Þá er mælt með því að hleypa fólki út úr leigu eða fólks­bílum við Glæsibæ eða á Sund­laug­ar­vegi.

Reykja­vegur verður lok­aður fyrir og á meðan tón­leikum stendur og þá verður Engja­vegur lok­aður frá klukkan 16 nema fyrir tón­leika­gesti. Suð­ur­lands­braut verður lokuð að hluta eftir að tón­leikum lýkur. Boðið verður upp á sér­stakar hrað­ferðir Strætó frá þremur stöðum í borg­inni og beint niður í Laug­ar­dal. Þessar hrað­ferðir munu fara frá Háskól­anum í Reykja­vik, Mjódd­inni og Strætó­stoppi­stöð­inni norð­an­megin við Kringl­una (hjá Orkunni). Þar er mælst til þess að leggja bílum á bíla­stæð­inu við Sjóvá og fyrir aftan Versl­un­ar­skól­ann. Sömu leiðir munu fara frá Laug­ar­dals­höll við Suð­ur­lands­braut og til baka eftir tón­leika. Tón­leika­gestir fá frítt í þessar ferðir gegn fram­vísun miða.

Slagaraframleiðsla

Guns N´Roses var stofnuð árið 1985 og sló í gegn með frum­burð­inum „Appetite for Destruction“ sem kom út tveimur árum síðar. Hún hefur selst í yfir 30 millj­ónum ein­taka síðan að hún kom út og er enn þann dag í dag sú fyrsta plata hljóm­sveitar eða tón­list­ar­manns sem selst hefur best. Á meðal laga plöt­unnar sem náðu feiki­legum vin­sældum eru „Welcome to the Jungle“, „Paradise City“ og „Sweet Child o´Mine“.

Í sept­em­ber 1991 gaf hljóm­sveitin svo út tví­bura­plöt­unar „Use Your Illusion I&II“. Í aðdrag­anda þeirrar útgáfu, og eftir hana, fór Guns N´Roses á 28 mán­aða langt tón­leik­ar­ferða­lag um allan heim­inn sem átti eftir að taka sinn toll. Alls hélt hljóm­sveitin 192 tón­leika í 27 löndum á þeim tíma. Um er að ræða eitt lengsta, ef ekki lengsta, sam­fellda tón­leika­ferða­lag sög­unnar.

Báðar plöt­urnar slógu í gegn og hafa selst í yfir 35 millj­ónum ein­taka sam­tals um heim allan. Á meðal laga þeirra sem fólk ætti að muna eftir eru epísku ball­öðusmell­irnir „Don´t Cry“, „November Rain“ og „Estranged“. Þar var einnig að finna lög á borð við „Civil War“, „14 years“, „Yester­days“ og tök­u­lögin „Knockin´on Heavens Door“ og „Live and Let Die“.

Ósætti...

Ósætti milli hljóm­sveita­með­lima gerði það hins vegar að verkum að hljóm­sveitin leyst­ist upp á árunum 1994 til 1999. Mest mun­aði um það þegar gít­ar­leik­ar­inn goð­sagna­kenndi Slash, annar leið­toga Guns N´Roses, hætti í sveit­inni í októ­ber 1996. Hinn leið­tog­inn, söngv­ar­inn sér­lund­aði Axl Rose hélt hljóm­sveit­inni hins vegar starf­andi, að minnsta kosti annað veifið, með nýjum liðs­mönnum.

Svona litu liðsmenn út árið 1987 þegar „Appetite for Destruction“ kom út.
Svona litu liðs­menn út árið 1987 þegar „Appetite for Destruction“ kom út.

Árið 2008 gaf Guns N´Roses, sem var þá í raun bara Axl Rose, út plöt­una „Chinese Democracy“ sem hafði verið meira en ára­tug í vinnslu og kostað um 1,4 millj­arð króna í fram­leiðslu. Það gerir hana að lang­dýr­ustu rokk­plötu allra tíma. Almennt álit aðdá­enda og gagn­rýnenda er að þeim fjár­munum hafi ekki verið vel varið.

...og endurkoma

Árið 2016, 20 árum eftir að Slash hætti í Guns N´Roses, var til­kynnt um að sættir hefðu náðst. Slash, bassa­leik­ar­inn Duff McKagan og Dizzy Reed gengu aftur í hljóm­sveit­ina og boð­uðu „Not in This Lifetime…“ tón­leika­ferða­lagið. Auk þeirra þriggja var Axl Rose vit­an­lega með auk gít­ar­leik­ar­ans Richard Fortus, trommar­ans Frank Ferrer og hljóm­borðs­leik­ar­ans Mellisu Reese.

Sú tón­leika­ferð stendur enn yfir og nú á Íslandi. Hún hafði við lok síð­asta árs halað inn tæp­lega 50 millj­örðum króna sem gerir hana að fjórða arð­bærasta tón­leik­ar­ferða­lagi allra tíma. Alls höfðu þá um 4,4 millj­ónir manna séð hljóm­sveit­ina á umræddu tón­leika­ferð­ar­lagi, þar sem Guns N´Roses hafa haldið 125 tón­leika. Þá eru ekki með­taldir tón­leikar sveit­ar­innar í sumar en þeir íslensku í kvöld eru þeir síð­ustu á ferða­lagi sveit­ar­innar um Evrópu sem hófst í júní og mun hún svo taka upp þráð­inn í Mexíkó í nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár