Stjórnarskrárfélagið segir umfjöllun Morgunblaðsins fjarstæðukennda

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið seg­ir að um­fjöll­un Morg­un­blaðs­ins um meint af­skipti fé­lags­manna af rök­ræðukönn­un um stjórn­ar­skrána, sem fór fram um helg­ina, sé fjar­stæðu­kennd.

Katrín Oddsdóttir, formaður stjórnarskrárfélagsins.
Katrín Odds­dóttir, for­maður stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið hefur sent frá sér til­kynn­ingu í til­efni af umfjöllun mbl.is og leið­ara­höf­unda Moggans um meint afskipti félags­manna stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins af rök­ræðukönnun um Stjórn­ar­skrána sem haldin var um helg­ina. Félagið segir að að umfjöll­unin blaðs­ins sé fjar­stæðu­kennd þar sem að for­stöðu­maður Félags­vís­inda­stofn­unar hafi komið því skýrt á fram­færi að við­vera félags­manna Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins hafi ekki haft áhrif á fund­inn sem í raun var öllum opinn.

Gengið þvert gegn niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar

[links]Síðustu helgi fór fram rök­ræðukönnun á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og Háskóla Íslands um stjórn­ar­skrána í Laug­ar­dags­höll. Í til­kynn­ingu Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins segir að rök­ræðukönn­unin hefði getað unnið með til­lögur stjórn­ar­laga­ráðs sem 2/3 hluta kjós­enda studdu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni 2012. Félagið hafi reynt á fyrri stigum að koma ábend­ingum um þetta á fram­færi við und­ir­bún­ings­nefnd og skipu­leggj­endur rök­ræðukönn­un­ar­innar en án árang­urs.

„Með því móti hefðu lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð verið virt og ekki gengið þvert gegn afger­andi nið­ur­stöðu úr lög­mætri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Félagið seg­ist þó fagna opinni umræðu um stjórn­ar­skrár­málið og ákvað félagið því að gefa þeim sem tóku þátt í rök­ræðukönn­unin ein­stak af nýju stjórn­ar­skránni.

Segir meðlimi Stjórnarskrárfélagsins ekki hafa haft áhrif á fundinn

Mbl.is fjall­aði um við­veru Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins á fund­inum og hafði meðal ann­ars eftir heim­ild­ar­manni að honum þætti vera félags­ins á fund­inum áróður og að það hafi komið honum á óvart að hags­muna­að­ilar hefðu fengið eins greiðan aðgang að fund­inum og raun bar vitni.

Í frétt­inni segir jafn­framt að með­limir úr Stjórn­ar­skrár­fé­lag­inu hafi ekki fengið að sitja við fund­ar­borðin en þeir hafi haft greiðan aðgang að fund­ar­gest­um í hlé­um.

Enn fremur var fjallað um félags­menn­ina í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag. Þar segir meðal ann­ars í gær hafi verið sagðar fréttir af því að „stjórn­ar­skrárruglið“ gengi nú aftur. „Og allur var aðdrag­and­inn jafn vit­laus og síð­ast og jafn­vel voru full­trúar ólög­mæta „stjórn­laga­ráðs­ins“ hafðir í áhrifa­stöðum á nýju upp­hafs­fund­unum, dreif­andi gömlu gögn­unum sem gengu aldrei upp og hleyp­andi upp fund­inum, sem er varla gagn­rýn­is­vert,“ skrifar leið­ara­höf­undur.

Guðbjörg Andrea Jóns­dóttir, for­stöðu­maður Félags­vís­inda­stofn­unar, sagði í sam­tali við Vísi í gær að við­vera með­lima úr Stjórn­ar­skrár­fé­lag­inu hafi engin áhrif haft á fund­inn. „Það var engum bannað að vera þarna. Við leyfðum fólki að koma inn, og sjá hvernig þetta færi fram, en fólki var ekki leyft að taka þátt í umræð­unum nema þeim sem voru valdir í úrtakið,“ sagði Guðbjörg Andrea.

Góð áminning um sérhagsmunaöflin sem standa að útgerð Morgunblaðsins

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið segir í til­kynn­ingu sinni að umfjöllun Morg­un­blaðs­ins sé fjar­stæðu­kennd en að frétta­flutn­ingur sem þessi sé góð áminn­ing um þau „sér­hags­muna­öfl sem standi að útgerð Morg­un­blaðs­ins og undir við­var­andi tap­rekstri þess.“

Að lokum skorar Stjórn­ar­skrár­fé­lagið á alla sem vilja standa vörð um lýð­ræði í land­inu að not­færa sér umræð­una um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar og þrýsta á um gild­is­töku nýju stjórn­ar­skrár­innar, „sem því miður hefur fengið að safna ryki innan veggja Alþingis síð­ast­liðin sjö ár. Þjóðin er stjórn­ar­skrár­gjaf­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár