Bandarískir hagfræðingar treysta ekki hagtölum frá Kína

Skoð­ana­könnum meðal hag­fræð­inga í Banda­ríkj­unum, sem Wall Street Journal vitnar til í umfjöllun sinni, sýnir að þeir trúa alls ekki hag­tölum frá Kína, og ótt­ast að kín­versk stjórn­völd séu sífellt að fegra stöðu efna­hags­mála með því að senda út falskar hag­tölur.

Hag­vöxtur mæld­ist um sjö pró­sent í Kína á fyrri helm­ingi árs­ins, sam­kvæmt opin­berum hag­tölum stjórn­valda. Skoð­ana­könnun á meðal 64 hag­fræð­inga sem gegna ábyrgð­ar­stöðum í Banda­ríkj­unum sýndi að 96 pró­sent aðspurðra voru á því að þetta væru ekki réttar tölur. Hag­vöxt­ur­inn væri mun minni, og mun­aði lík­lega á bil­inu eins til tveggja pró­sentu­stiga. Þegar Kína er ann­ars vegar þá er hvert pró­sentu­stig í hag­vexti gríð­ar­lega mikil hag­stærð, svo það er óhætt að segja að þessi hag­fræð­ingar treysti ekki stjórn­völdum í Kína.

Nýjustu opin­beru hag­tölur í Kína, sem hafa ekki verið véfengdar með jafn afger­andi hætti og hag­vaxt­ar­töl­urnar, sýna aug­ljósa breyt­ingu í kín­verska hag­kerf­inu, en útflutn­ingur hefur dreg­ist 5,5 pró­sent á þessu ári miðað við árið á undan, og inn­flutn­ingur um fjórtán pró­sent.

Willem Buiter, aðal­hag­fræð­ingur Citibank, er einn þeirra hag­fræð­inga sem segir allt benda til þess að kín­verskar hag­tölur séu ekki nægi­lega áreið­an­legar, og að djúp nið­ur­sveifla í Kína á næstu miss­erum sé óhjá­kvæmi­leg.


What do U.S. economists think of official China statistics? http://t.co/nXPso01Opm by @jeffsparshott pic.twitter.com/061fXwAJ3B


— Wall Street Journal (@WSJ) Sept­em­ber 11, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár