Áhætta fólgin í fjárfestingu í Tesla

Neikvætt fjár­streymi Tesla gerir það að verkum að Citi-bank­inn telur mikla áhættu fólgna í fjár­fest­ingu í raf­bíla­fram­leið­and­anum.

Elon Musk er forstjóri fyrirtækisins Tesla.
Elon Musk er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Tesla. Mynd: EPA

Banda­ríska raf­bíla­fyr­ir­tækið Tesla þarf að safna mörgum millj­örðum Banda­ríkja­dala á næstu 12 mán­uðum til þess að greiða upp tap rekst­urs­ins, að því er kemur fram í grein­ingu grein­ing­ar­deildar Citi-bank­ans. CNBC-frétta­stofan banda­ríska greinir frá.

Tesla er nú að setja þriðju bíl­gerð sína á markað, Tesla Model 3, og fjár­festar segj­ast vera von­góðir um að bíll­inn muni selj­ast vel. Þrátt fyrir það telur Citi það áhættu­samt að fjár­festa í Tesla um þessar mundir.

„Fjár­streymi Tesla er nei­kvætt um þessar mundir og við teljum að fyr­ir­tækið muni þurfa aukið rekstr­arfé. Erf­ið­leikar við að sækja fjár­magn gætu sett tölu­verðan þrýst­ing á fjár­hags­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir í minn­is­blaði Italy Michaeli, grein­anda Citi, sem sent var við­skipta­vinum bank­ans.

Michaeli segir vera jákvæðar horfur fyrir Tesla sem er leið­andi á mark­aði með bíla fram­tíð­ar­innar, en að hann myndi vilja bíða með að setja fjár­magn í rekst­ur­inn þar til rekstr­ar­reikn­ing­ur­inn líti betur út.

Grein­ing­ar­deildin spáir því að fjár­streymi Tesla verði nei­kvætt um 1,1 millj­arð dala í lok árs 2017 og að það verði orðið nei­kvætt um fjóra millj­arða dala á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2018. Tapið er vegna fram­leiðslu og þjón­ustu­kostn­aðar við nýja bíl­inn Model 3. Michaeli segir fjár­streymið ekki verða jákvætt fyrr en árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár