Tíu staðreyndir um Ástþór Magnússon

Ástþór Magnússon gefur kost á sér til embættis forseta Íslands.
Ástþór Magn­ús­son gefur kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands.

1. Ástþór Magn­ús­son Wium fædd­ist í Reykja­vík þann 4. ágúst árið 1953. Eig­in­kona hans heitir Natalia Wium og er fædd í Moskvu í Rúss­landi árið 1975. Þau kynnt­ust á styrkt­ar­tón­leikum fyrir Mæðra­styrks­nefnd á Gauknum í Reykja­vík jólin 2001 og giftu sig í Þing­valla­kirkju rúmum tveimur árum síðar. Ástþór á eina dóttur frá fyrra hjóna­bandi, tvö barna­börn og það þriðja á leið­inni.

2. Árið 1979 stofn­aði Ástþór fyrsta kredit­korta­fyr­ir­tæki lands­ins, Kredit­kort hf. Hann hefur meðal ann­ars unnið sem ljós­mynd­ari og getið sér gott orð sem slíkur. Hann stofn­aði alþjóða­sam­tökin Friður 2000 árið 1995 með alheims­frið að mark­miði.

3. Ástþór heldur reglu­lega fram­boðs­fundi sem streymt er í beinni útsend­ingu á Facebook síðu hans undir kjör­orð­inu Virkjum Bessa­staði.

4. Hann vill að á Íslandi rísi heimsmið­stöð lýð­ræð­is­þró­unar, frið­ar­mála og stjórn­stöð alþjóð­legrar frið­ar­gæslu. Nái hann kjöri mun hann beita sér fyrir því sem for­seti.

5. Árið 1998 var Ástþór meðal þeirra sem stofn­uðu Lýð­ræð­is­hreyf­ing­una, þverpóli­tísk sam­tök sem vinna að auk­inni lýð­ræð­is­þátt­töku almenn­ings. Hann hefur aldrei til­heyrt stjórn­mála­flokki og aldrei starfað með neinum þeirra.

6. Þetta er fimmta til­raun Ástþórs til for­seta­fram­boðs. Hann bauð sig fyrst fram árið 1996 og kynnti hann þá hug­myndir sínar með bók­inni Virkjum Bessa­staði, sem dreift var inn á öll heim­ili í land­inu. Fjórum árum síðar, árið 2000, ætl­aði hann aftur fram, en fram­boð hans var dæmt ógilt þar sem nægi­legan fjölda með­mæl­enda vant­aði. Í næstu kosn­ingum á eftir, árið 2004, bauð hann sig einnig fram, en Ólafur Ragnar var einn í fram­boði árið 2008 og var því sjálf­kjör­inn. Ástþór ætl­aði að taka slag­inn aftur að fjórum árum liðnum, árið 2012, en fram­boð hans var einnig dæmt ógilt þar sem ekki fékkst lög­boðið vott­orð yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

7. Ástþór mætti í rétt­ar­sal Hér­aðs­dóms Reykja­víkur úta­t­aður í tómatsósu í apríl 2003 til að mót­mæla stríð­inu í Írak. Ári síðar, í for­seta­kosn­ing­unum 2004, var Ástþór ósáttur með þá litlu athygli sem fjöl­miðlar höfðu veitt honum og færði því Markúsi Erni Ant­ons­syni útvarps­stjóra tómatsósu.

8. Ástþór hefur verið að mæl­ast með í kring um eitt pró­senta fylgi í skoð­ana­könn­unum und­an­farið.

9. Hann er krist­inn og er skráður í Óháða söfn­uð­inn.

10. Ástþór seg­ist ítrekað hafa verið sann­spár um það sem hann kallar stríðsæs­inga­stefnu Banda­ríkj­anna og að hann hafi spáð fyrir um hryðju­verkin 11. sept­em­ber 2001 í sjón­varps­við­tali á Stöð 2 mörgum mán­uðum áður en þau gerð­ust.

Fram­boðs­síða Ástþórs - Facebooksíða Ástþórs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár