Biðla til stjórnvalda að spila ekki með framtíð þeirra

Tæplega þrjú hund­ruð ung­menni lýsa því yfir að þau styðji áfram­hald­andi aðild Íslands að EES-samn­ingnum í opnu­aug­lýs­ing í Frétta­blað­inu og biðla til stjórn­valda að spila ekki fram­tíð þeirra. Seinni umræðu um orku­pakk­ann verður haldið áfram á Alþingi í dag

Tæplega þrjú hundruð ungmenni birtu auglýsingu í Fréttablaðinu í dag undir yfirskriftinni, „Ekki spila með framtíð okkar. Við styðjum áframhaldandi aðild Íslands að EES-samningnum. Við viljum frjálst, opið og alþjóðlegt samfélag og stöndum saman gegn einangrunarhyggju.“

Í fréttatilkynningu frá forsvarsmanni hópsins segir að umræðan um EES-samninginn undanfarin misseri hafi verið knúin áfram af síendurteknum rangfærslum og ósannindum, nú síðast um þriðja orkupakkann. Vegna þessa hafi ungt fólk úr öllum áttum séð ástæðu til þess árétta þessi skilaboð.

EES-samningurinn fært Íslendingum ótal tækifæri

Aug­lýs­ing hóps­ins er kostuð af fólk­inu á mynd­un­um, 272 ungmenna Í til­kynn­ing­unni segir fólkið í aug­lýs­ing­unn­i sé allt undir fer­tugu og spannar megnið af hinu póli­tíska lit­rófi, bæði flokks­bundið og óflokks­bund­ið. Fólkið sé af öllum kynj­um, með ólíkan bak­grunn, búsett erlendis og víðs veg­ar um land­ið. Í aug­lýs­ing­unni má meðal ann­ars finna Hildi Björns­dóttur borg­ar­full­trú­a ­Sjálfstæðisflokksins í borg­ar­stjórn­, ­Dóru Björt Guð­jóns­dótt­ur, borg­ar­full­trú­i P­írat­i, og Egil Þór Jóns­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Í tilkynningunni er ungt fólk sagt hafa sofið á verðinum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Brexit og við kjör Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, afleiðingarnar séu öllum ljósar. Hópurinn bendir á EES samningurinn hafi fært Íslendingum hluti sem í dag þykja sjálfsagðir. „EES samningurinn og annað alþjóðlegt samstarf hefur fært Íslendingum lífsgæði ótal tækifæri sem væri óhugsandi að vera án. Tækifæri eins og frelsi til að ferðast, stunda viðskipti, búa og mennta okkur í Evrópu og lengi mætti telja. Þetta eru hlutir sem við öll njótum góðs af og lítum í dag á sem sjálfsagðan hluta af okkar dagsdaglega lífi. Því segjum við einum rómi: Ekki spila með framtíð okkar.“

Seinni umræðunni um orkupakkann haldið áfram í dag

Efnt var til mótmælafundar á Austurvelli um helgina þar sem andstæðingar þriðja orkupakkans hvöttu stjórnvöld til þess að að hafna orkupakkanum. Talið er að um þrjú hundruð manns hafi tekið þátt en mótmælendur kröfðust meðal annars þess að haldið yrði þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Á mótmælunum komu meðal annars fram Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra, og þingmennirnir Ólafur Ísleifsson, Inga Sæland.

Seinni umræðu um þingsályktunartillögu vegna þriðja orkupakkans verður haldið áfram á Alþingi í dag. Þann 15. maí síðastliðinn stóð umræðan um þriðja orkupakkann á Alþingi frá klukkan 15:48 til 6:18 næsta morgun. Þingmenn Miðflokksins voru áberandi í umræðunni og mæltu mjög gegn samþykkt þingsályktunartillögu um að staðfesta þriðja orkupakkann.

Fimm þingmenn eru á mælendaskrá Alþingis vegna umræðunnar um orkupakkann í dag, allir úr Miðflokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár