Ríkislögreglustjóri lýsir formlega eftir egypsku fjölskyldunni

Sex manna fjöl­skylda sem vísa átti úr landi á mið­viku­dag í síð­ustu viku hefur verið í felum síðan þá. Nú hefur Rík­is­lög­reglu­stjóri lýst form­lega eftir henni.

Börnin fjögur.
Börnin fjögur. Mynd: Solaris

Stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hefur sent út til­kynn­ingu þar sem hún óskar eftir upp­lýs­ingum um ferðir og dval­ar­stað Ibrahim Mahrous Ibrahim Khedr og Doaa Mohamed Mohamed Eldeib og barna þeirra fjög­urra.

Flytja átti fjöl­skyld­una úr landi síð­ast­lið­inn mið­viku­dag eftir að Útlend­inga­stofnun hafði úrskurðað að þau ættu að sæta frá­vísun. Hún fór hins vegar í felur áður en að af því varð og yfir­völd hafa ekki fundið hana síðan.

Rík­is­lög­reglu­stjóri óskar eftir því að allir þeir sem geti gefið upp­lýs­ingar um „ferðir fjöl­skyld­unnar eða vita hvar hún er nið­ur­komin“.

[adspot]Málið hefur vakið mikla athygli hér­lendis und­an­farið. Lög­regla átti að sækja fjöl­skyld­una á heim­ili þeirra á Ásbrú klukkan hálfsex í mið­viku­dag­inn 16. sept­em­ber og áttu þau að fljúga héðan til Amster­dam og þaðan til Kaíró í Egypta­landi. Þegar það átti að sækja þau var fjöl­skyldan hins vegar horfin.

[links]Þessir atburðir urðu meðal ann­ars til þess að Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, sagði sig úr flokknum. Í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér stóð meðal ann­ars: „Nýlegir atburðir er varða brott­vísun stjórn­valda á barna­fjöl­skyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mán­uði og við­brögð rík­is­stjórnar sem VG er í for­ystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn end­an­lega að ég á ekki lengur sam­leið með þing­flokki VG.“

Magnús Davíð Norðdahl, lög­maður fjöl­skyld­unnar, lagði í dag fram stefnu og beiðni um flýti­með­ferð í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir hönd hennar. Þar er meðal ann­ars byggt á því að við máls­með­ferð stjórn­valda hafi þeim láðst að fram­kvæma sjálf­stætt og heild­stætt mat á hags­munum barn­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnkerfi

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Okkar ógeðs­lega þjóð­fé­lag

Mikill stormur hefur geisað und­an­farna daga vegna þess að opin­berað var að nokkrir hæsta­rétt­ar­dóm­arar ættu hluta­bréf. Aðallega hefur sú opin­berun snú­ist um að Markús Sig­ur­björns­son, for­seti Hæsta­réttar, hafi erft hluta­bréf eftir móður sína, selt þau hluta­bréf og sett afrakstur þeirrar sölu í eigna­stýr­ingu hjá Glitni banka. Upp­haf­lega var því haldið fram að Markús hefði ekki til­kynnt um þessa eign sína...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár