Umfang skattaundanskota öðru hvoru megin við 100 milljarða á ári

Stefán Ólafsson segir að allar gluf­urnar sem hafi verið bor­aðar í okkar skatt­kerfi séu fyrst og fremst í þágu þeirra tekju­hæstu og eigna­mestu.

Hópur Íslend­inga hefur fundið glufur til að koma sér undan rétt­mætum skatti og geymir eignir í felum, bæði í eign­ar­halds­fé­lögum inn­an­lands og erlendis í skatta­skjólum.

Þetta segir Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands.

Aðspurður um umfangið á þessum skattaund­anskotum segir hann mat á því liggja fyrir. „Það er til opin­bert mat á þessu, bæði inn­lent og erlent og þau lenda yfir­leitt þannig að umfang skattaund­an­skota geti verið öðru hvoru megin við 100 millj­arða á ári. Sem eru nátt­úru­lega gríð­ar­legar upp­hæðir og þú þarf ekki að ná mjög miklum árangri í að draga úr því til þess að það séu alvöru upp­hæðir. Sem er þá hægt að skila til almenn­ings í lækkun skatta.“

[adspot]Þetta segir Stefán í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur var síð­ast­liðið mið­viku­dags­kvöld.

Þar ræðir Stefán meðal ann­ars þær breyt­ing­ar­til­lögur á skatt­kerf­inu sem hann og Ind­riði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, unnu fyrir Efl­ingu og kynntar voru í síð­ustu viku, umfang skattaund­an­skota, hert skatta­eft­ir­lit og átök milli póli­tískra hug­mynda­fræða innan rík­is­stjórnar Íslands. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an:

Stefán segir að fyrir banka­hrun hafi þau rök verið gild­andi að hér­lendis ætti að vera mjög lágir skattar á fjár­magn, til þess að aftra því að eign­ar­fólkið og fjár­fest­arnir færu með fjár­magnið úr landi. „Hver var nið­ur­staðan af því? Hún var sú að þessir aðilar fluttu meira fé úr landi í erlend skatta­skjól heldur en tíðk­að­ist í nágranna­lönd­unum. Það var sagan úr Panama­skjöl­unum.“

Samt hafi þeir aðilar sem þetta stund­uðu verið að borga tíu pró­sent fjár­magnstekju­skatt hér­lendis, sem var ekk­ert mikið lægri en í skatta­skjól­unum. „Það dregur líka athygl­ina að því af hverju menn séu að nota skatta­skjól. Kannski er aðal­á­stæðan sú að menn eru að gera það til að fela eignir. Koma sér undan ábyrgðum frekar en að þeir séu að kom­ast í lága álagn­ingu. Allavega dugði það ekki til að aftra þessu flæði úr landi.“

Stefán segir að Indriði H. Þor­láks­son hafi bent á að flækju­stigið sem sé almenn­ingi mest í óhag teng­ist með­ferð á eignum, fjár­magni og flæði milli landa. „Allar þessar glufur sem hafa verið bor­aðar í okkar kerfi og eru fyrst og fremst í þágu þeirra tekju­hæstu og eigna­mestu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár