Vilja stofna sérstaka Kjaratölfræðinefnd

Nefnd hefur skilað for­sæt­is­ráð­herra skýrslu um til­lögur að umbótum í úrvinnslu og nýt­ingu töl­fræði­upp­lýs­inga hér á landi. Nefndin leggur meðal ann­ars til að stofnuð verði Kjara­töl­fræði­nefndar, sem væri sam­ráðs­vett­vangur aðila í aðdrag­anda kjara­samn­inga.

Nefnd á vegum forsætisráðuneytisins hefur nú skilað af sér skýrslu um tillögur að umbótum á úrvinnslu og nýtingu tölfræðiupplýsinga hér á landi. Nefndin leggur meðal annars til að stofnuð verði sérstök Kjaratölfræðinefnd, sem væri samráðsvettvangur milli aðila í aðdraganda kjarasamninga. Auk þess leggur nefndin áherslu á að Hagstofan ljúki við að uppfæra íslenska starfaflokkunarkerfið, ÍSTARF95.

„Skýrslan og þær umbætur sem þar eru lagðar til er að mínu mati mik­il­vægt fram­lag til þeirrar víð­tæku vinnu sem nú á sér stað á vett­vangi stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Bætt launa­töl­fræði er meðal atriða sem ég hef lagt ríka áherslu á að verði bætt til fram­búðar og ég fagna sér­stak­lega til­lögu nefnd­ar­innar um stofnun Kjara­töl­fræði­nefndar, sem er vett­vangur aðila í aðdrag­anda kjara­samn­inga líkt og tíðkast m.a. í Noregi,” sagði Katrín en rík­is­stjórnin fjall­aði um skýrsl­una á fundi sínum í morgun.

Aðilar vinnumarkaðrins takist á um efnisatriði frekar en tölfræðilegar aðferðir og niðurstöður

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra skip­aði nefnd­ina í kjöl­far fundar stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins um launa­töl­fræði í jan­úar í fyrra. Nefndin var skipuð full­trúum frá for­sæt­is­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, vel­ferð­ar­ráðu­neyti, heild­ar­sam­tökum á vinnu­mark­aði, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, Rík­is­sátta­semj­ara og Hagstofu Íslands.

Nefndin skoð­aði sér­stak­lega hvort að taka ætti upp launa­töl­fræði­nefnd að erlendri fyr­ir­mynd. Í Noregi er slík nefnd sem starfað hefur með góðum árangri í rúm­lega 50 ár. Norska nefndin kall­ast TBU en hún er skipuð er full­trúum heild­ar­sam­taka á vinnu­mark­aði, stjórn­valda og Hag­stof­unnar. Hlutverk TBU að greina þróun launa og efna­hags­mála til und­ir­bún­ings kjara­samn­ingum og birtir tölu­leg gögn sem leggja grunn að samn­inga­við­ræðum og tryggja þannig sam­ræmdan skiln­ing á þeim hag­tölum sem liggja til grund­vallar.

Í skýrsl­unni segir að sam­bæri­leg sam­ráðs­nefnd milli aðila hér á landi myndi skapa vett­vang fyrir sam­ræður um for­sendur í aðdrag­anda kjara­samn­inga, jafnt launa­töl­fræði sem aðrar hag­tölur og auka traust milli aðila óháð því hvaða samn­ings­líkan eða fyr­ir­komu­lag lagt væri til grund­vallar kjara­samn­ingum á hverjum tíma. „Hlutverk nefnd­ar­innar er að tryggja sam­eig­in­lega sýn aðila á stöðu og þróun launa og efna­hags­mála og ýta undir það að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins tak­ist á um efn­is­at­riði frekar en töl­fræði­legar aðferðir eða nið­ur­stöður,“ segir í skýrsl­unni.

Kjaratölfræðinefndin tekur ekki beinan þátt í kjarasamningum

Í skýrsl­unni má nú þegar finna drög að sam­komu­lagi um stofnun Kjara­töl­fræði­nefndar; „Aðilar að sam­komu­lagi þessu eru sam­mála um að stofna til sam­starfs heild­ar­sam­taka á vinnu­mark­aði, ríkis og sveit­ar­fé­laga um gerð og hag­nýt­ingu töl­fræði­gagna um launa og efna­hag til und­ir­bún­ings og eft­ir­fylgni með kjara­samn­ingum. Nefnd­inni er ætlað að stuðla að því að aðilar sam­komu­lags­ins hafi sam­eig­in­legan skiln­ing á eðli, eig­in­leikum og þróun þeirra hagtalna sem mestu varða við gerð kjara­samn­inga.“

Í drögunum segir að með hliðsjón að framansögðu lýsi forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, BSRB, Kennarasamband Íslands, Samtök atvinnulífsins, Hagstofa Íslands og Ríkissáttasemjari hér með yfir stofnun Kjaratölfræðinefndar.

Í drög­unum segir að mark­mið nefnd­ar­innar sé að fyrir liggi áreið­an­legar upp­lýs­ingar um laun og efna­hag sem nýt­ast við und­ir­bún­ing og eft­ir­fylgni kjara­samn­inga á hverjum tíma. Kjara­töl­fræði­nefndin tekur þó engan beinan þátt í kjara­samn­ingum. Nefndin á að gefa út tvær skýrslur árlega, fyrir lok mars og lok sept­em­ber og skal fyrsta skýrslan birt fyrir lok mars árið 2020.

Vilja að Hagstofan skoði hvernig launavísitalan endurspegli hækkandi starfsaldur og aukna menntun

Hagstofa Íslands gefur út mánaðarlega út launavísitölu á grundvelli laga. Í skýrslu nefndarinnar segir hins vegar að á undanförnum misserum hefur aðferðafræði við gerð launavísitölunnar verið gagnrýnd á opinberum vettvangi og snýr gagnrýnin einkum að aðferðafræði við vinnslu verðvísitalna, sem byggir á svokölluðum pöruðum samanburði. Í gagnrýninni kemur fram, að talið er að sú aðferð ofmeti launabreytingar, meðal annars vegna starfsaldursbreytinga.

Nefndin fékk Dr. Kim Zieschang., sérfræðing í verðvísitölum til að gera úttekt á launavísitölunni. Niðurstöður hans voru að launavísitala Hagstofunnar sé traust afurð sem byggð sé á aðferðafræðilega sterkum grunni en að rétt sé að skoða ítarlega hvort að vænta megi áhrifa af auknum gæðum vinnuafls yfir tíma. Nefndin leggur því til að Hagstofa Íslands skoði hvernig launavísitalan endurspegli hækkandi starfsaldur og aukna menntun. Jafnframt er lagt til að niðurstöður greiningarinnar verði birtar opinberlega og brugðist við ef þær leiði í ljós að bjögun sé á launavísitölunni.

Mikilvægt að uppfæra íslenska starfaflokkunarkerfið

Launarannsókn Hagstofunnar er helsta heimild opinberrar launatölfræði en einnig eru notaðar aðrar heimildir eins og staðgreiðslugögn. Rannsóknin nær til allra ríkisstarfsmanna en tekið er úrtak úr fyrirtækjum á almenna vinnumarkaðnum, með 10 eða fleiri starfsmenn, sem og hjá sveitarfélögum. Í skýrslu nefndarinnar segir aftur á móti að þekju launarannsóknar sé ábótavant meðal annars vegna þess að rannsóknin nær ekki til allra atvinnugreina og takmarkar það upplýsingagjöf. Aðilar vinnumarkaðarins leggja ríka áherslu á að þekja rannsóknarinnar sé aukin þannig að hún nái til alls vinnumarkaðarins og eru tvær leiðir mögulegar til að auka þekjuna. Annars vegar er hægt að bæta núverandi launarannsókn og stækka úrtakið og hins vegar að fara í heildarsöfnun launaupplýsinga líkt og gert er í Noregi.

Í skýrslunni segir að starfshópur innan fjármálaráðuneytisins skoði nú kosti þess að koma á miðlunarkerfi fyrir greiðslu launa og launatengdra gjalda og skilagreinum sem tengjast launaupplýsingum. „Verulegt hagræði felst í því að gera launagreiðendum kleift að ganga frá greiðslum og upplýsingagjöf miðlægt á einum stað í stað þess að skila til nokkurra aðila eins og nú er gert.“ segir í skýrslunni. Því telur nefndin að koma eigi á heildarsöfnum launaupplýsinga beint frá launagreiðendum. Nefndin leggur þó áherslu á að einnig er mikilvægt að efla núverandi launarannsókn samhliða heildargagnasöfnun til að áhætta við breytta gagnaöflun verði viðunandi og unnt verði að brúa bilið milli ólíkra gagna og tímaraðar.

Enn fremur segir í skýrslunni að á undanförnum árum hafi Hagstofan unnið að mati á vinnutíma til að geta betur áætlað vinnumagn að baki framleiðsluþáttum í þjóðhagsreikningum og vinnutíma vegna launakostnaðar og mun áfram vinna að úrbótum í vinnutímamælingum. Nefndin telur það því mikilvægt að tekið sé upp nýtt starfaflokkunarkerfi en kerfið sem nú er notað, ÍSTARF-95, var fyrst gefið út 1994 og svo aftur aukið og endurbætt árið 2009. Hagstofan er nú þegar að vinna að upptöku á nýju starfaflokkunarkerfi og í skýrslunni segir að nefndin sé sammála um að mikilvægt sé að uppfæra íslenska starfaflokkunarkerfið svo það taki betur mið af þeim störfum sem hafa breyst og orðið til á síðustu áratugum og leggur áherslu á að Hagstofan ljúki því verkefni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár