Ísland með langminnst fjölmiðlafrelsi á Norðurlöndunum

Ísland fellur enn á árlegum lista yfir vísi­tölu fjöl­miðla­frelsis. Súrnun í sam­skiptum stjórn­mála­manna og fjöl­miðla nefnd sem ástæða. Hin Norð­ur­löndin eru öll á meðal þeirra fimm landa sem njóta mest fjöl­miðla­frelsis.

Reporters without boarders, eða Blaða­menn án landamæra, hafa birt lista sinn um vísi­tölu fjöl­miðla­frelsis fyrir árið 2019.

[links]Ísland er í 14. sæti, neðst Norð­ur­land­anna. Nor­egur skipar efsta sætið, Finnland er í öðru sæti og Svíþjóð í því þriðja. Danmörk er í fimmta sæti.

Ísland hefur færst niður um fjögur sæti á list­anum á tveimur árum, en landið sat í 10. sæti árið 2017.

Ekki er að finna ítar­lega grein­ingu um for­sendur sem liggja að baki mat­inu en í stuttri sam­an­tekt er tals­vert gert úr metn­að­ar­fullri þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem sam­þykkt var 2010 um að gera Ísland að for­ystu­ríki í vernd upp­ljóstr­ara, gagn­sæ­is, tján­ing­ar­frelsis og fjöl­miðla­frels­is.

[adspot]Í umfjöllun sam­tak­anna um Ísland segir þó að aðstæður blaða­manna á land­inu hafi versnað frá árinu 2012 vegna þess að sam­skipti milli stjórn­mála­manna og fjöl­miðla hafi súrnað. Það er sama rök­semd­ar­færsla og var færð fyrir versn­andi ástandi í umfjöllun sam­tak­anna í fyrra.

Í úttekt­inni er 180 löndum og svæðum raðað upp í röð eftir fjöl­miðla­frelsi. Hún byggir á því að sér­fræð­ingar svara spurn­inga­list­anum sem gerður er af sam­tök­unum. Þau svör eru síðan greind og lönd­unum gefin ein­kunn. Því lægri sem hún er, því meira er fjöl­miðla­frelsið. Noregur fær til að mynda ein­kunn­ina 7,82 og Finnland, Svíþjóð og Danmörk fá öllu ein­kunn sem er lægri en 10,0.

Ísland fær hins vegar 14,71 og stiga­fjöldi lands­ins eykst um 0,61 á milli ára. Það þýðir að ein­kunn Noregs er helm­ingur af ein­kunn Íslands.

Norð­ur­-Kórea, sem vermt hefur neðsta sæti list­ans und­an­farin ár, er þar ekki lengur. Í stað­inn hefur Túrk­menistan sest í botns­ætið. Norður-Kórea er þó ekki langt undan, eða í sæti 179. Þar fyrir ofan eru Eritrea, Kína, Víetnam og Súd­an.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár