Innan við fjórðungur mæðra fær hámarksgreiðslur frá Fæðingarorlofssjóði

Feður sem taka fæð­ing­ar­or­lof eru mun betur laun­aðir en mæður sem það gera. Yfir helm­ingur feðra fékk hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði í fyrra en tæp­lega fjórð­ungur mæðra.

Feður sem fá fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur eru mun tekju­hærri heldur en mæður sem fá fæð­ing­ar­or­lof. Meira en helm­ingur feðra sem tóku fæð­ing­ar­or­lof í fyrra fengu hámarks­greiðslur, en innan við fjórð­ungur mæðra.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í svari Þor­steins Víglunds­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Andrési Inga Jónssyni, þing­manni VG. Andrés spurði um fjölda for­eldra sem hafa fengið greitt fæð­ing­ar­or­lof og fæð­ing­ar­styrk und­an­farin fjögur ár og eftir sund­ur­liðun eftir tekjum þeirra.

Í fyrra voru flestir feður sem tóku fæð­ing­ar­or­lof með laun á bil­inu 500 til 750 þús­und krónur í mán­að­ar­tekjur, eða þriðj­ungur þeirra. Aftur á móti var algeng­asta launa­bilið hjá mæðrum 200 til 300 þús­und krónur í mán­að­ar­tekjur, en fjórð­ungur mæðr­anna hafði þær tekjur. Litlu færri voru með á bil­inu 300 til 400 þús­und krónur í mán­að­ar­laun.

Fimm pró­sent feðra og eitt pró­sent mæðra sem tóku fæð­ing­ar­or­lof voru með meira en milljón króna í mán­að­ar­tekjur, og níu pró­sent feðra og þrjú pró­sent mæðra voru með tekjur á bil­inu 750 þús­und til milljón.

Gagnast fæstum mæðrum

Í októ­ber í fyrra voru hámarks­greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi hækk­aðar úr 370 þús­und krónum í 500 þús­und krónur. Miðað er við að fólk fái 80 pró­sent launa sinna, en þó að hámarki þessa upp­hæð. Stærstur hluti mæðra, eða um 80 pró­sent þeirra, er ekki með 500 þús­und krónur á mán­uði svo hækk­unin gagn­ast þeim ekki.

Starfs­hópur sem Eygló Harð­ar­dóttir skip­aði þegar hún var félags­mála­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili lagði það til að fyrstu 300 þús­und krón­urnar af tekjum fólks yrðu óskertar, sam­hliða til­lögum sínum um hækkun á hámarks­greiðslum. Þær til­lögur hafa ekki orðið að veru­leika, þótt hámarks­greiðsl­urnar hafi verið hækk­aðar. Núver­andi rík­is­stjórn hefur lagt áherslu á að hækka hámarks­greiðsl­urnar í skrefum á þessu kjör­tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár