Tíu staðreyndir um íslenskan vinnumarkað

Mikill upp­gangur er nú í íslensku efna­hags­lífi. Þetta sést á tölum sem Hagstofa Íslands tekur saman um íslenskan vinnu­markað.

1. Fjöldi ein­stak­linga á vinnu­mark­aði sam­kvæmt Hagstofu Íslands, það er frá sextán til 74 ára, er 236 þús­und ein­stak­lingar. Heildar­í­búi fjöldi á Íslandi er nú um 333 þús­und. Því eru um 103 þús­und ein­stak­lingar utan þessa ald­urs­bils sem skil­greinir vinnu­mark­að­inn. Til sam­an­burðar má nefna að vinnu­mark­að­ur­inn á Oslóar svæð­inu í Noregi, þar sem um 1,5 milljón ein­stak­linga býr, er um 660 þús­und manns.

2. Atvinnu­þátt­taka er 82,3 pró­sent sem þýðir að 194.200 manns eru á vinnu­mark­aði, en utan vinnu­mark­aðar á fyrr­nefndu ald­urs­bili eru 41.800 manns, 17.100 karlar og 24.700 konur.

3. Af þessum 194.200 ein­stak­lingum sem telj­ast vera vinnu­afl þjóð­ar­innar, þá eru 5.900 án atvinnu, en starf­andi eru 188.300. Atvinnu­leysi er nú 3,1 pró­sent, en því er spáð að það muni fara enn neðar í sumar, á háanna­tíma í ferða­þjón­ust­unni.

4. Atvinnu­leysi er meira meðal karla en kvenna. Nú eru 3.800 karlar án atvinnu en 2.100 konur. Atvinnu­leysi hjá körlum er því 3,8 pró­sent en 2,3 pró­sent hjá konum.

5. Ein­stak­lingum á vinnu­mark­aði fjölg­aði um 7.300 í fyrra. Atvinnu­lausum fækk­aði um 2.500 manns.

6. Greini­legt er að tölu­verður upp­gangur er nú í atvinnu­líf­inu, og má sjá merki um það í tölum Hagstofu Íslands. Þannig fjölg­aði starf­andi ein­stak­lingum á vinnu­mark­aði um 5.700 á ein­ungis fimm mán­aða tíma­bili, frá sept­em­ber í fyrra til febr­úar á þessu ári. Í sept­em­ber voru þeir 183.800 en á þessu ári voru þeir 189.500.

7. Á sama tíma­bili, frá sept­em­ber í fyrra til febr­úar á þessu ári, fækk­aði atvinnu­lausum um 2.100. Þeir voru 8.000 í sept­em­ber, en eru komnir niður í 5.900 nú.

8. Atvinnu­leysi eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins fór hæst upp undir 9 pró­sent á árinu 2009 og það hélt hátt fram á árið 2010. Frá því tíma hefur það minnkað mikið, og stefnir í að tölu­verður fjöldi þurfi að koma til Íslands frá útlöndum á hverju ári til að halda í við hag­vöxt og eft­ir­spurn eftir vinnu­afli.

9. Atvinnu­leysi eftir hrunið var mun meira hjá körlum en konum. Skýr­ingin var meðal ann­ars sú, að stórar karla­stéttir, þar á meðal iðn­aðn­ar­menn, misstu verk­efni þegar nær algjört frost var á fast­eigna­mark­aði. Atvinnu­leysi var 8,6 pró­sent hjá körlum árið 2009, en á sama tíma var það 5,9 pró­sent hjá konum.

10. Atvinnu­leysi hefur sögu­lega verið lítið á und­an­förnum ald­ar­fjórð­ungi, í sam­an­burði við flest önnur ríki. Frá 1991 og fram að árinu 2008 hafði atvinnu­leysi aldrei farið yfir sex pró­sent, og oft­ast verið á bil­inu tvö til fjögur pró­sent. Árið 2007, sem í huga margra er ein­kenn­isár fyrir efna­hags­bóluna á Íslandi sem sprakk með látum, þá mæld­ist atvinnu­leysi 2,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár