Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eigið fé sjávarútvegs aukist um 300 milljarða frá 2008

Eigið fé íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja var rúm­lega 220 millj­arðar króna í lok árs 2015. Það var nei­kvætt um 80 millj­arða króna í lok árs 2008 og jókst því um rúm­lega 300 millj­arða króna frá þeim tíma. Þá á eftir að taka til­lit til þeirra 54,3 millj­arða króna sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa greitt sér út í arð frá byrjun árs 2010 og til loka árs 2015, enda hafa þeir pen­ingar verið greiddir út úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum til eig­enda þeirra. Alls voru 38,2 millj­arðar króna greiddir í arð árin 2013, 2014 og 2015.

Þegar sú upp­hæð er lögð saman við eigið féð hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins vænkast um rúm­lega 354 millj­arða króna á örfáum árum. Upp­lýs­ing­arnar um eigið fé sjáv­ar­út­veg­ar­ins, bæði veiða og vinnslu, koma fram í nýjum hag­tíð­indum Hagstofu Íslands um hag veiða og vinnslu árið 2015.

Hagnaðurinn 45,4 milljarðar á einu ári

Hagnaður íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og tekju­skatt á árinu 2015 var tæp­lega 70 millj­arðar króna. Hreinn hagn­aður sjáv­ar­út­vegs var 45,4 millj­arðar króna á því ári þegar búið var að standa skil á öllum kostn­aði. Sam­an­lagt skil­aði íslenskur sjáv­ar­út­vegur hreinum hagn­aði upp á 287 millj­arða króna á sjö ára tíma­bili, frá 2009 til loka árs 2015.

Veiði­gjald útgerð­ar­innar fór úr 9,2 millj­örðum fisk­veiði­árið 2013/2014 í 7,7 millj­arða fisk­veiði­árið 2014/2015. Í reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna er veiði­gjaldið talið með öðrum rekstr­ar­kostn­aði og því er búið að taka til­lit til þess þegar hreinn hagn­aður er reikn­aður út. Á fisk­veiði­ár­inu 2015/2016 voru þau áætluð 7,4 millj­arðar króna og á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári er það áætlað 4,8 millj­arðar króna. Það er um átta millj­örðum króna minna en þau voru fisk­veiði­árið 2012/2013, þegar þau voru 12,8 millj­arðar króna. Veiði­gjöldin sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiða til rík­is­sjóðs hafa því lækkað um átta millj­arða króna á sama tíma og fyr­ir­tækin hafa hagn­ast með for­dæma­lausum hætti.

Eiginfjárhlutfallið 37,3 prósent

Í hag­tíð­indum Hag­stof­unnar kemur fram að sam­kvæmt efna­hags­reikn­ingi hafi heild­ar­eignir sjáv­ar­út­vegs í árs­lok 2015 verið rúmir 590 millj­arðar króna, heild­ar­skuldir voru tæpir 370 millj­arðar og eigið fé því rúmir 220 millj­arðar. „Verðmæti heild­ar­eigna hækk­aði um 2,7 pró­sent frá 2014 og fjár­fest­ingar í var­an­legum eignum hækk­uðu um 11,8 pró­sent. Skuldir lækk­uðu um 4,9 pró­sent. Eig­in­fjár­hlut­fallið reynd­ist 37,3 pró­sent en var 32,3 pró­sent í árs­lok 2014. Eig­in­fjár­hlut­fallið hefur vaxið úr engu í 37,3 pró­sent síð­ast­liðin 5 ár,“ segir enn fremur í úttekt­inni.

Ytri skil­yrði voru atvinnu­veg­inum mjög hag­stæð á árinu 2015. Verð sjáv­ar­af­urða á erlendum mörk­uðum í íslenskum krónum hækk­aði um 6,5 pró­sent frá fyrra ári og verð á olíu í íslenskum krónum lækk­aði að með­al­tali um 17 pró­sent á milli ára. Gengi dollar­ans styrk­ist um 12,9 pró­sent en gengi evr­unnar seig um 5,5 pró­sent á milli ára. „Útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­út­vegs í heild jókst um 8,5 pró­sent, og nam 265 millj­örðum króna á árinu 2015, verð á útflutn­ings­vörum í sjáv­ar­út­vegi hækk­aði um rúm 7 pró­sent og magn útfluttra sjáv­ar­af­urða jókst um rúmt 1 pró­sent.“

Um 7800 manns starf­aði við sjáv­ar­út­veg í heild árið 2015 sem er um 4,2 pró­sent af vinnu­afli á Íslandi.

Greiða tugi milljarða í skatta og tryggingargjald

Til við­bótar við veiði­gjald greiða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins einnig umtals­vert í tekju­skatt og trygg­ing­ar­gjald. Samkvæmt sam­an­tekt Deloitte um stöðu sjáv­ar­út­veg­ar­ins, sem birt var í nóv­em­ber 2016, hafa tekju­skatts­greiðslur frá lokum árs 2009 til loka árs 2015 til að mynda numið sam­tals 36,5 millj­örðum króna. Á sama tíma hefur útgerðin greitt 35,2 millj­arða króna í trygg­ing­ar­gjald. Samtals námu bein opin­ber útgjöld sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna – veiði­gjöld, tekju­skattur og trygg­ing­ar­gjald – 22,6 millj­örðum króna árið 2015, sem er nákvæm­lega sama upp­hæð og greidd var af þeim árið 2014 en um tveimur millj­örðum minna en greitt var á árinu 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár