Vigdís „gæti ekki verið rólegri“

Fresta þurfti fundi fjár­laga­nefndar fram yfir helgi vegna langs fundar rík­is­stjórn­ar­innar. Ljóst að áætlun þings­ins mun ekki stand­ast.

Formaður fjárlaganefndar lofar þjóðinni að fjárlög verði samþykkt fyrir áramót.
Formaður fjár­laga­nefndar lofar þjóð­inni að fjár­lög verði sam­þykkt fyrir ára­mót. Mynd: Anton Brink

Fresta þurfti boð­uðum fundi fjár­laga­nefndar Alþingis, þar sem ræða átti til­lögur vegna ann­arrar umræðu fjár­laga og fjár­auka­laga, vegna þess að rík­is­stjórn­ar­fundur, þar sem sama mál var rætt, dróst á lang­inn.

Fund­ur­inn í fjár­laga­nefnd átti að hefj­ast klukkan tvö í dag en var sem fyrr segir frestað. Hann hefur verið boð­aður klukkan hálf­níu á mánu­dags­morgun í stað­inn, að sögn Vigdísar Hauks­dóttur, for­manns nefnd­ar­innar.

Vigdís segir í sam­tali við Kjarnann að rík­is­stjórnin hafi lokið við sínar til­lögur á fund­inum í dag, og því hefði verið hægt að halda fund í fjár­laga­nefnd nú seinni part­inn. Hins vegar séu margir lands­byggð­ar­þing­menn í fjár­laga­nefnd og það hefði verið ósann­gjarnt ef hún hefði verið með hörku og haft fund­inn klukkan hálf­fjögur í dag.

Samkvæmt starfs­á­ætlun þings­ins átti önnur umræða um fjár­lögin að fara fram næst­kom­andi fimmtu­dag, en ljóst er orðið að það verður ekki þar sem fjár­laga­nefnd hefur ekki enn fengið til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar. „Það er bara aug­ljós­lega komin seinkun“ segir Vigdís. „Ég er algjör­lega óstressuð yfir því. Ég get lofað þér og þjóð­inni því að það verður búið að afgreiða fjár­lögin fyrir ára­mót.“ Hún segir að verið sé að skapa úlfúð með tali um að umræðan stand­ist ekki starfs­á­ætlun þings­ins, og stjórn­ar­and­staðan hugsi ekki um dag­skrá þings­ins þegar verið sé að stunda mál­þóf. „Ég gæti ekki verið rólegri yfir þessu.“

Ellefu þing­funda­dagar eru eftir af þing­inu fram að jólum sam­kvæmt áætl­un­inni, þar af eru tveir dagar sér­stak­lega áætl­aðir í umræður um fjár­lögin. Þriðja og síð­asta umræðan á að fara fram þriðja des­em­ber næst­kom­andi, en það mun vænt­an­lega ekki stand­ast heldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár