Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, sat fund þjóðarleiðtoga um sjötíu ríkja, sem ræddu málefni Sýrlands, í London. Ákveðið var að leggja til allt að tíu milljarða Bandaríkjadala, rétt um 1.300 milljarða króna, til þess að vinna að eflingu hjálparstarfs.
Fram kom í máli Sigmundar Davíðs,
í viðtali við RÚV
, og flestir hefðu verið sammála um mikilvægi þess að efla hjálparstarf í nágrannaríkjum Sýrlands, þar sem er mikið álag vegna straums flóttamanna frá stríðshrjáðum svæðum.
Það er gott að forsætisráðherra taki þátt í mikilvægum umræðum um málefni Sýrlands, og þau hrikalegu vandamál sem fylgja stríðsrekstri í landinu. Vonandi mun fjárstuðningurinn, sem var hærri en Sameinuðu þjóðirnar höfðu óskað eftir, nýtast hratt og vel til uppbyggingar og mannúðarstarfa.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir