Launin gera fólk háð maka sínum

Thelma Björk fær 20 þús­und krónum meira útborgað en hún þarf að borga í leigu á mán­uði. Henni þætti ekki ósann­gjarnt að útborguð laun hennar myndu tvö­fald­ast.

Vill fá miklu hærri laun
Vill fá miklu hærri laun Thelma segir að henni þætti ekki ósann­gjarnt að hún fengi tvö­falt það greitt út sem hún fær núna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Thelma Björk Brynj­ólfs­dóttir vinnur á leik­skól­anum Múlaborg og hefur gert í um næstum ald­ar­fjórð­ung. Hún fær útborgað um 260 þús­und krónur á mán­uði en þarf að greiða 240 þús­und krónur í leigu. Thelma seg­ist heppin að eiga góðan mann og saman kom­ist þau bæri­lega af, en jafn lág laun og þessi geri það að verkum að fólk geti fest í sam­böndum og ekki átt raun­hæfa mögu­leika á að skilja að skiptum ef eitt­hvað bjátar á.

Thelma byrj­aði að vinna á Múlaborg um 17 ára aldur og hefur lengst af unnið þar, með barn­eign­ar­hléum og stuttri við­komu í öðrum umönn­un­ar­störfum. Thelma er 45 ára og segir að hún sé byrjuð að fá börn til sín á leik­skól­ann sem séu börn fólks sem var hjá henni þegar þau voru lítil. „Ég kann rosa­lega vel við mig og er sæl í mínu starfi. Ég dýrka að vinna með börnum, elska það hrein­lega. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár