„Ég treysti ekki ríkinu fyrir hálendinu okkar“

Hálend­is­þjóð­garður mynda taka skipu­lags­vald af sveit­ar­stjórnum, segir bóndi og sveit­ar­stjórn­ar­maður í Blá­skóga­byggð. Tómas Guð­bjarts­son segir svæðið „gull­mola“ sem beri að varð­veita og til þess að svo megi verða þurfi allir að gefa eitt­hvað eftir.

Guðrún Svanhvít sagði Bláskógabyggð hafa hugsað vel um hálendið og staðið þar fyrir uppbyggingu og verndun.
Guðrún Svanhvít sagði Blá­skóga­byggð hafa hugsað vel um hálendið og staðið þar fyrir upp­bygg­ingu og verndun. Mynd: Skjáskot RÚV

„Miðað við hvernig ríkið hefur staðið að málum, meðal ann­ars í Vatna­jök­uls­þjóð­garði og við sum frið­lýst svæði sem mitt sveit­ar­fé­lag þekkir mjög vel, þá treysti ég ekki rík­inu fyrir hálend­inu okkar. Það er betur staðið að ýmsum málum á okkar afrétti heldur víða þar sem ríkið hefur komið að málum.“

Þetta sagði Guðrún Svanhvít Magn­ús­dóttir, bóndi í Bræðra­tungu og sveit­ar­stjórn­ar­maður í Blá­skóga­byggð, í umræðu um fyr­ir­hug­aðan hálend­is­þjóð­garð í Silfrinu á RÚV í morgun. Tómas Guð­bjarts­son, hjarta­skurð­læknir og nátt­úru­vernd­ar­maður, sagð­ist skilja áhyggjur sveit­ar­stjórn­ar­fólks og að til þeirra yrði að taka til­lit en benti á að sam­rýma yrði upp­bygg­ingu og skipu­lags­mál til verndar hálend­inu sem væri hjarta lands­ins. Allir yrðu að gefa eftir í því sam­bandi.

„Ég átta mig algör­lega á [að stofnun hálend­is­þjóð­garðs] sé umdeild og þetta rok sem er í gangi núna er við­búið,“ sagði Tómas. Ýmsar efa­semdir hafa komið fram um garð­inn síð­ustu vikur. Nátt­úru­vernd­ar­fólk gerir athuga­semdir við að leyfðar verði nýjar virkj­anir innan garðs­ins, en Lands­virkjun vill að tryggð verði áfram­hald­andi rekstur og fram­þróun orku­kerf­is­ins á svæð­inu. Þá ótt­ast sveit­ar­stjórn­ar­menn að skipu­lags­valdið verði frá þeim tekið.

Hjarta landsins

Tómas sagð­ist til dæmis per­sónu­lega ekki vera sáttur við öll útfærslu­at­riði frum­varps­ins, m.a. að þar yrði heim­il­aðar nýjar virkj­anir. „En aðal­at­riðið er þetta, ég tel mjög brýnt að við verndum hálendið. Ég vil ekki bara tala um nátt­úru­vernd ég vil eig­in­lega tala um auð­linda­vernd vegna þess að þetta er hjarta lands­ins sem við þurfum að varð­veita fyrir kom­andi kyn­slóðir. Við verðum að hugsa þetta lengra en eina mannsævi eða tvær.“

[links]Benti hann á að mikil ásókn væri í virkjun jök­uláa sem og ferða­manna og því yrði upp­bygg­ing að vera sam­ræmd og í sátt við nátt­úr­una. Stofnun hálend­is­þjóð­garðs væri álíka mik­il­væg fyrir íslenska þjóð e og verndun fiski­mið­anna á sínum tíma.

Gagnrýnir samráðsleysi

Guðrún sagði að nokkrar skýr­ingar væru á and­stöðu sveit­ar­stjórn­ar­manna á Suð­ur­landi við stofnun hálend­is­þjóð­garðs meðal ann­ars sú að sam­talið um hvort slíkt væri skyn­sam­legt hafi „aldrei farið fram“.

Benti hún á að svæðið innan marka síns sveit­ar­fé­lags, sem færi inn í garð­inn, væri þjóð­lenda í dag.

„Ég veit ekki hvort að íslenska þjóðin áttar sig á mun­inum á þjóð­garði og þjóð­lendu. Þjóð­garður er rík­is­stofnun, stórt rík­is­bákn, þar sem allur kostn­aður við báknið er greiddur af skatt­greið­endum. Þjóð­lenda er vissu­lega sam­eign okkar allra og við höfum öll aðgengi að henni.“

Sjálfboðavinna og gjafir

Stjórn­sýslan í tengslum við þjóð­lendur sé ein­föld í sam­vinnu sveit­ar­stjórna og for­sæt­is­ráðu­neytis. „Öll vinnan, upp­bygg­ingin, hún fer fram af okkur. Það er eng­inn sem fær greidd laun fyrir að taka ákvarð­anir. Við förum inn á þjóð­lend­una okkar, afrétt­inn okkar, gerum okkar vinnu, gefum efni í upp­bygg­ingu á svæð­unum. Heima­menn hafa margir hverjir gefið stórar fjár­upp­hæðir í ákveðin verk­efni og við höfum átt mjög gott sam­starf við ýmis úti­vi­star­fé­lög.“

Á þjóð­lend­unni eru fjórir fjalla­skálar og stór land­græðslu­svæði. Sveit­ar­fé­lagið hefur byggt göngu­brýr, sett upp merk­ingar m.a. í sam­starfi við lands­sam­band hesta­manna. „Það var gríð­ar­lega stórt verk­efni sem kost­aði innan við tvær millj­ónir. Ég velti því fyrir mér hvað það myndi kosta í höndum rík­is­ins.“

Helmingur svæðis þegar friðlýstur

Tómas sagð­ist telja mis­skiln­ing hér á ferð. „Í fyrsta lagi eiga sveit­ar­fé­lögin að koma áfram að skipu­lags­málum inni á sínum afrétti þannig að það er alls ekki verið að taka frá þeim allt skipu­lags­vald en það yrði sam­ræmt.“ Til að ná að vernda hálendið yrðu allir að gefa eitt­hvað eftir. Það væri til dæmis raunin varð­andi mögu­legar nýjar virkj­anir inni á svæð­inu.

Innan hálend­is­þjóð­garðs yrði yfir 30% Íslands. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is­ráð­herra, hefur í kynn­ingu sinni á áformunum bent á að um helm­ingur þess svæðis sé nú þegar frið­lýstur með einum eða öðrum hætti.

Í frum­varp­inu er m.a. lögð áhersla á að stjórnun hálend­is­þjóð­garðs sé bæði hjá ríki og við­kom­andi sveit­ar­fé­lögum. Gert er ráð fyrir að sér­stök stjórn, sem í sitji ell­efu stjórn­ar­menn, fari með stjórn þjóð­garðs­ins og að hún verði að meiri­hluta skipuð full­trúum sveit­ar­fé­laga, auk félaga­sam­taka og hags­muna­að­ila. Þá verði þjóð­garð­inum skipt upp í sex rekstr­ar­svæði og yfir hverju þeirra sér­stakt umdæm­is­ráð, skipað fimm full­trúum sveit­ar­fé­laga, auk full­trúum frá úti­vist­ar­sam­tökum, umhverf­is­vernd­ar­sam­tökum, Bænda­sam­tökum Íslands og ferða­þjón­ustu­að­ilum.

Óskiljanlegt að taka verkefnið úr höndum sveitarfélaga

Guðrún sagð­ist ekki sam­mála því að sveit­ar­stjórnir hafi áfram vald. Benti hún á að sam­kvæmt drögum frum­varps­ins ættu sjö sveit­ar­fé­lög á suð­vest­ur­svæði að koma sér saman um fimm full­trúa í umdæm­is­ráði. „Það gefur alveg auga leið að við höfum ekki mikið að segja ef við höfum full­trúa þar inni.“

Sagði hún ein­kenni­legt að ríkið væri að hlut­ast til um það að taka verk­efni frá sveit­ar­fé­lögum sem þau hefðu sann­ar­lega sinnt og það ekki með skatt­pen­ingum lands­manna. „Það er óskilj­an­legt.“

Tók hún dæmi mál­efni Skafta­fells­þjóð­garðs, sem fyrir nokkrum árum varð hluti af Vatna­jök­uls­þjóð­garði. Fyrir um tveimur árum kom út „mjög svört skýrsla“ heil­brigð­is­yf­ir­valda um frá­veitu­málin í Skafta­felli þar sem talað var um „skolppolla“ meðal ann­ars. „Við hefðum aldrei sýnt okkar nátt­úru inni á hálend­inu slíka van­virð­ingu. Þetta hefði aldrei gerst á okkar vakt.“

Enn fleiri dæmi tíndi hún til. Stofnun gesta­stofu við Gullfoss sem átti að vera virð­ing­ar­vottur við Sigríði í Bratt­holti. Það hafi endað með því að ríkið gerði gesta­stof­una að kló­settum „og svo gafst ríkið upp. Það gat ekki einu sinni rekið sal­erni við Gullfoss.“ Það hafi ekki heppn­ast fyrr en heima­maður tók rekst­ur­inn yfir.

Umbætur í Vatnajökulsþjóðgarði

Tómas tók undir gagn­rýni Guðrúnar á rekstur Vatna­jök­uls­þjóð­garðs en sagði hann horfa til betri vegar nú eftir að breyt­ingar hefðu verið gerðar. „Heilt yfir er reynsla Íslend­inga af þjóð­görðum og frið­lýs­ingum er mjög góð.“ Sem dæmi blómstrar Þjóð­garður á Snæ­fells­nesi og frið­lýs­ing Horn­stranda hafi tek­ist vel til.

Hann sagði máli ekki aðeins byggja á hag­fræði­legum rökum og að stefnt sé að því að „setja túrista inn á hálendið“ heldur að varð­veita landið fyrir kom­andi kyn­slóðir. „Ef við höldum áfram með þessa virkj­ana­vél sem er í gangi núna þá verður ekk­ert eftir. Þetta væri eins og að henda [forn]hand­rit­unum í ruslið.“

Álverið í líknandi meðferð

Sagði hann ýmsa gerjun í gangi í raf­orku­málum, t.d. þær fréttir að fram­leiðsla álvers­ins í Straums­vík hefði verið minnkuð og hjá Lands­virkjun yrði þá til orka sem mætti nýta í annað en málm­bræðslu.

Líkti hann fram­tíð álvers­ins við sjúk­ling sem fengi nú líkn­andi með­ferð. „Ef það verða fleiri hjart­slátt­ar­trulfl­anir þar þá er ég ekki viss um að það verði farið í neina end­ur­lífgun.“

Vill hann vernda?

Guðrún sagði að áform um stofnun hálend­is­þjóð­garðs hefðu „snú­ist um pjúra mark­aðs­setn­ingu hjá umhverf­is­ráð­herra. Hann talar um að þetta sé þjóð­hags­lega hag­kvæmt, að þjóð­garðar séu vöru­merki.“ Vill hann vernda eða vill hann fleiri ferða­menn, spurði hún. „Hvert eru menn að fara?“

Í grein­ar­gerð með frum­varpi að hálend­is­þjóð­garði kemur fram að með stofnun hans skap­ist tæki­færi til að ná utan um stjórnun og marka stefnu fyrir svæðið með mark­vissum og heild­stæðum hætti. Þá skap­ist tæki­færi til að ráð­stafa fjár­munum í auknum mæli til inn­viða­upp­bygg­ingar á svæð­inu sem m.a. er nauð­syn­leg til að fyr­ir­byggja að verð­mæt svæði verði fyrir skemmdum af völdum ágangs vegna auk­innar aðsóknar ferða­manna. „Ef vel er á málum haldið getur stofnun þjóð­garðs haft jákvæð áhrif á byggða­þróun og verið upp­spretta tekna fyrir atvinnu­starf­semi í nærum­hverf­inu og á lands­vísu.“

Fjármagn verður að fylgja

Verðmiði á nátt­úr­unni er ekki mik­il­vægastur þegar kemur að stofnun þjóð­garðs, að mati Tómasar. Víðerni Íslands séu gull­moli sem verði að varð­veita. Fé yrði að fylgja til upp­bygg­ingar, ann­ars væri verk­efnið „and­vana fætt“.

„Báknið“ Vatna­jök­uls­þjóð­garður hefur ekki virkað, ítrek­aði Guðrún. Nú ætti að taka sama módel og setja yfir þjóð­lendur Blá­skóga­byggðar sem hefur hingað til verið sinnt vel af sveit­ar­fé­lag­inu. „Við erum mjög montin af okkar fram­göngu. Þetta er bara ákveðin van­virð­ing við okkar stjórn og eig­in­lega bara árás á sjálf­stæði lands­byggð­ar­fólks. Af hverju má ekki treysta okkur fyrir þessu? [...] Það þarf ekki rík­is­bákn yfir allt hálendið. Það er ekki þörf á því, við erum að gera þetta og erum stolt af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár