Þorsteinn hefur ítrekað lagst gegn gjaldtöku í sjávarútvegi – leiðir nú nefnd um framtíðarfyrirkomulag gjaldtökunnar

Þor­steinn Pálsson var hvata­maður þess að veð­setn­ing fisk­veiði­heim­ilda var heim­iluð árið 1997. Þegar vinstri­st­jórnin kynnti frum­varp um veiði­gjöld árið 2012 sagði hann flest útgerð­ar­fyr­ir­tæki myndu leggja upp laupana. Nú leiðir hann sátta­nefnd rík­is­stjórn­ar­innar um fram­tíð­ar­skipan gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi.

Þorsteinn hefur ítrekað lagst gegn gjaldtöku í sjávarútvegi – leiðir nú nefnd um framtíðarfyrirkomulag gjaldtökunnar

Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun fara fyrir nefnd sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Sem ráð­herra var Þor­steinn einn helsti hvata­maður þess að útgerð­ar­menn fengu heim­ild til að veð­setja fisk­veiði­heim­ildir. 

Á tíma­bil­inu 1996 til 2012 hefur hann ítrekað varað við gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi og meðal ann­ars talað gegn því að tekið sé upp veiði­leyfa­gjald eða auð­linda­skattur á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Þá hefur hann lagst gegn upp­boði afla­heim­ilda. Þegar rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­gríms J. Sig­fús­sonar lagði fram frum­varp til laga um veiði­gjöld í mars 2012, full­yrti Þor­steinn að ef lögin yrðu að veru­leika myndu flest útgerð­ar­fyr­ir­tæki á Íslandi leggja upp laupana. 

Greint var frá því í frétta­til­kynn­ingu á vef atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins í gær að gengið hefði verið frá skipan nefndar til að móta til­lögur um hvernig tryggja megi sann­gjarna gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Nefndin á að skila til­lögum sínum til ráð­herra í formi laga­frum­varps eigi síðar en 1. des­em­ber 2017 en í henni sitja full­trúar allra stjórn­mála­flokka.

Veðsetning kvóta var heimiluð í ráðherratíð Þorsteins

Þor­steinn Pálsson gegndi emb­ætti sjáv­ar­út­vegs-, dóms- og kirkju­mála­ráð­herra á tíma­bil­inu 1991 til 1999. Árið 1997 stóð hann fyrir lög­gjöf sem fól í sér að útgerð­ar­menn fengu heim­ild til að veð­setja veiði­heim­ildir með því skipi sem þær eru skráðar á. Frumvarp Þor­steins til laga um samn­ings­veð var umdeilt og hlaut tals­verða gagn­rýni á Alþingi.

Einna harð­orð­ust var Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þá þing­kona Þjóðvaka, sem hélt því fram að með lög­unum væri verið að gera 1. gr. laga um stjórn fisk­veiða, sem kveður á um að nytja­stofnar á Íslands­miðum séu sam­eign þjóð­ar­innar, hálf­merk­ing­ar­lausa.

„Jú, útgerð­ar­menn fá nú ókeypis afnota­rétt á auð­lind­inni og mega síðan fara með veiði­heim­ild­irnar að vild, láta þær ganga kaupum og sölum og nú er heim­ild til að veð­setja afla­heim­ildir eins og hverja aðra þing­lýsta eign þeirra. Með þeim áformum er verið að stað­festa í raun og sanni einka­rétt örfárra útgerð­ar­að­ila á auð­lindum sjávar sem þjóðin byggir helst afkomu sína á. Hér er með blessun og heim­ild frá hinu háa Alþingi verið að brjóta öll lög­mál sem gilda í við­skiptum og fjár­málum manna á milli að heim­ila örfáum aðilum sem braskað hafa árum saman með auð­lind­ina að veð­setja eign sem er eign allrar þjóð­ar­innar,“ sagði hún. Þá var­aði hún við því að veð­setn­ing kvóta myndi magna upp ójöfnuð í íslensku sam­fé­lagi. „Eiga útgerð­ar­að­ilar að búa við þau for­rétt­indi umfram aðra að geta bara veð­sett eigur ann­arra? Ég tel að þetta séu sið­laus áform og stór spurn­ing hvort þetta brjóti ekki eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár­innar og ákvæði um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum.“

„Verið er að stað­festa í raun og sanni einka­rétt örfárra útgerð­ar­að­ila á auð­lindum sjávar sem þjóðin byggir helst afkomu sína á“

Þor­steinn lagði hins vegar áherslu á að með lög­unum væri ekki stefnt að því að breyta grund­vall­ar­skipan fisk­veiða eða veikja ákvæðið um þjóð­ar­eign fisk­veiði­auð­lind­ar­innar. Með lög­unum væri einmitt tekið fyrir að úthlut­aðar veiði­heim­ildir væru veð­settar einar og sér. „Veðlögin eru eðli máls sam­kvæmt hlut­laus gagn­vart þeirri skipan mála sem þar er ákveðin. Þau hvorki styrkja hana né veikja. Mark­miðið er það eitt að tryggja öryggi í við­skiptum,“ sagði hann. Þá velti hann því fyrir sér hvort Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir væri ef til vill á móti öllum við­skiptum með afla­heim­ildir og sagði hana tala með niðr­andi hætti um við­skiptin, kalla þau „brask“.

Eins og bent er á í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið átti heim­ildin til veð­setn­ingar afla­heim­ilda eftir að öðl­ast aukna þýð­ingu eftir því sem mark­aðs­verð á veiði­heim­ildum hækk­aði. Þetta leiddi til þess að eig­endur fyr­ir­tækj­anna skuld­settu sig í auknum mæli og færðu út kví­arnar í íslensku atvinnu­lífi. Árið 1992 tal­aði Þor­steinn á ráð­stefnu um fram­tíð kvóta­kerf­is­ins og sagði að um það yrði ekki deilt að útveg­inum bæri að greiða í sam­eig­in­lega sjóði fólks­ins í land­inu þegar atvinnu­fyr­ir­tækj­unum hefði verið tryggð eðli­leg arð­semi. Hann bætti við: „Hvenær menn ná því marki vitum við ekki en ég hef bæði í gamni og alvöru sagt að óum­deilt hljóti að vera að mark­inu sé náð þegar útveg­ur­inn hefur eign­ast meiri­hluta í þjón­ustu­fyr­ir­tækjum eins og Morg­un­blað­inu og Eimskip.“

Gagnrýndi hugmyndir um auðlindaskatta
og lagðist gegn uppboði aflaheimilda

Nokkrum árum síðar lagð­ist Þor­steinn hins vegar gegn upp­töku auð­linda­skatta með afger­andi hætti. „Sjáv­ar­út­veg­ur­inn ber nú þegar marg­vís­leg gjöld sem lögð eru sér­stak­lega á veiði­heim­ildir, bæði til þess að standa straum af veiði­eft­ir­liti og enn­fremur til að styrkja Þró­un­ar­sjóð. Hvað menn eiga við þegar þeir ræða um auð­linda­skatt er ekki alltaf gott að skilja,“ sagði hann í viðtali við tíma­ritið Ægi árið 1996. „Telja menn að það bæti sam­keppn­is­stöðu íslensks sjáv­ar­út­vegs í sam­keppni við rík­is­styrktan og nið­ur­greiddan sjáv­ar­út­veg sam­keppn­is­land­anna að leggja á hann aukna skatta? Í stöð­unni í dag myndi aukin skatt­heimta veikja sam­keppn­is­stöð­una. Er það eitt­hvað sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn þarf á að halda? Mitt svar er nei.“

Árið 1998 skrif­aði Þor­steinn grein í Morg­un­blaðið þar sem hann gagn­rýndi harð­lega hug­myndir um upp­boð afla­heim­ilda. „Upp­boðs­leiðin er sú aðferð, sem for­ystu­menn sam­fylk­ingar jafn­að­ar­manna hafa lýst sem stefnu sinni. Fjár­sterk­ustu útgerð­ar­fyr­ir­tækin gætu staðið sæmi­lega vel að vígi í sam­keppni um veiði­heim­ild­irnar á slíku upp­boði. Þau er ekki að finna í þeim byggðum sem höllustum fæti standa. Sérhver heil­vita maður sér í hendi sér að minni útgerðir, ein­stak­lings­út­gerð­ar­menn og trillukarlar ættu í vök að verj­ast í slíkri sam­keppni, svo ekki sé dýpra í árinni tekið,“ skrif­aði Þor­steinn.

Þetta er í takt við þau sjón­ar­mið sem enn er haldið á lofti, bæði af hægri- og vinstri­vængnum, í umræðum um upp­boð afla­heim­ilda.  

Erfitt að færa rök fyrir því að réttlæti felist í skattheimtu

Níu árum síðar, árið 2007, birti Þor­steinn grein í Frétta­blað­inu um auð­linda­skatta. „Stundum er því haldið fram að auð­linda­skattur sé ann­arrar nátt­úru en aðrir skattar fyrir þá sök að hann snú­ist um rétt­læti. Sann­leik­ur­inn er þó sá að erfitt er að færa gild rök fyrir því að rétt­lætið sjálft felist í skatt­heimtu. Hún er hins vegar að ákveðnu marki rétt­læt­an­leg nauð­syn,“ skrif­aði hann. „Flestum er til að mynda ljóst að ekki er sér­lega rétt­látt að láta eina auð­lind bera skatt en ekki aðrar eins og gild­andi lög­gjöf gerir ráð fyrir. Ástæðan fyrir því að þeir sem telja auð­linda­skatt vera rétt­læt­is­mál hafa ekki árætt að krefj­ast skatt­lagn­ingar á orku­bú­skap­inn er sú að skattur á því sviði á greiða leið beint út í verð­lagið. Hækkun raf­orku­verðs og hita­veitu­reikn­inga yrði með öðrum orðum óvin­sælt rétt­læti.

„Ekki er sér­lega rétt­látt að láta
eina auð­lind bera skatt“

Áhrifin á hag almenn­ings eru óbeinni í sjáv­ar­út­vegi. En þar gildir eins og ann­ars staðar að skattar eru ekki útflutn­ings­vara. Þeir fá ekki útrás í mark­aðs­verði erlendis. Skattar sem leggj­ast á sjáv­ar­út­veg en ekki aðrar atvinnu­greinar hafa því fyrst og fremst þau hag­rænu áhrif að veikja sam­keppn­is­stöðu atvinnu­grein­ar­innar um fjár­magn og vinnu­afl.“

Sagði fá fyrirtæki mundu starfa áfram eftir upptöku veiðigjalds

Þann 31. mars 2012, nokkrum dögum eftir að Stein­grímur J. Sig­fús­son þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hafði lagt fram frum­varp til laga um veiði­gjald, hélt Þor­steinn því fram að frum­varpið myndi valda því að fá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki myndu halda áfram starf­semi sinni. „Eins og áform rík­is­stjórn­ar­innar eru nú á að taka að með­al­tali nær allan hagnað fyr­ir­tækj­anna í rík­is­sjóð miðað við núver­andi hag­kvæmni. Það segir sig sjálft að fá þeirra munu starfa áfram eftir það,“ skrif­aði hann í pistli í Frétta­blað­inu og spáði því að skatt­hlut­fallið yrði lækkað til að lág­marka skað­ann. Engu að síður myndu lögin draga þrótt úr atvinnu­grein­inni.

„Það segir sig sjálft að fá þeirra munu
starfa áfram eftir það“

„Þess vegna mun rík­is­stjórnin gefa eftir og lækka skatt­hlut­fallið. En rétt­lætið ætti þá eftir kenn­ing­unni að minnka í sama hlut­falli. Sú eft­ir­gjöf mun fækka þeim fyr­ir­tækjum sem leggja upp laupana. Eigi að síður mun ráða­gerðin draga mjög þrótt úr atvinnu­grein­inni. Hvaða svar á rík­is­stjórnin þegar stór hluti fyr­ir­tækj­anna sýnir halla á rekstri? Hún lætur þau ekki fara á haus­inn. Gengi krón­unnar verður lækkað þannig að verst reknu fyr­ir­tækin kom­ist á núll­punkt­inn.“

Af skrifum og ummælum Þor­steins Páls­sonar að dæma á tíma­bil­inu 1996 til 2012 hefur hann verið afar tor­trygg­inn gagn­vart flestum hug­myndum um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi og jafn­framt mót­fall­inn upp­boði afla­heim­ilda. Nú mun hann fara fyrir nefnd um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni.

Þor­steinn er skip­aður af Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra úr röðum Við­reisnar sem er sá flokkur sem tal­aði einna harð­ast fyrir upp­boðs­leið í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga. Eftir kosn­ingar mynd­aði flokk­ur­inn rík­is­stjórn með Bjartri fram­tíð og Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar er lögð áhersla á að unnið verði að mati á þeim kostum sem tækir eru til gjald­töku fyrir afnot sjáv­ar­auð­lind­ar­innar, svo sem mark­aðsteng­ingu, sér­stöku afkomu­tengdu gjaldi eða öðrum leiðum, í því skyni m.a. að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sam­eig­in­legri auð­lind verði í eðli­legu hlut­falli við afrakstur veið­anna,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Mark­miðið er að til­lögur nefnd­ar­innar geti orðið grund­völlur að þverpóli­tískri og víð­tækri sátt í sam­fé­lag­inu um sjáv­ar­út­veg­inn og þar með grunnur að auknum stöð­ug­leika í starfs­um­hverfi hans og tengdra greina til fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár