Sýrland verður minnisvarði um hæfileika okkar til að drepa

Mörgum er í hag að við­halda stríð­inu í Sýrlandi, sem tætir upp eitt elsta menn­ing­ar­ríki heims. Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í sögu Mið-Aust­ur­landa, greinir sam­hengið í stríð­inu sem er að leysa upp Sýrland.

Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í sögu Mið-Aust­ur­landa, bjó í Sýrlandi á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar og segir að þrátt fyrir ein­ræð­is­stjórn hafi stöð­ug­leiki og frið­sæld ein­kennt landið. Hann kom síð­ast til Sýrlands í byrjun árs 2011, rétt áður en arab­íska vorið brast á. Í dag getur hann sagt að það hafi verið lognið á undan storm­inum en á þeim tíma upp­lifði hann það ekki þannig, heldur sá hann jákvæðar breyt­ingar á sam­fé­lag­inu, bæði efna­hags­legar og stjórn­mála­legar. „Við­horfin voru frjáls­lynd­ari og bjart­sýnin meiri en hafði verið áður. Fólk var farið að gera lang­tíma­á­ætl­anir. Sýr­lend­ingar áttu auð­veld­ara með að kom­ast til náms erlendis og biðin við erlend sendi­ráð var mun styttri en áður. Á þessum tíma­punkti fannst mér eins og Sýr­lend­ingar væru loks­ins komnir út á þjóð­braut­ina og væru að setja í þriðja gír. Það var ekk­ert sem gaf til kynna að óveð­urs­ský væru á lofti heldur var spáin góð.“

Átakanleg þróun 

Sýrland er sögu­fræg þjóð, fyrsta staf­rófið er þaðan, akur­yrkja hefur verið stunduð þar í þús­undir ára og Magnús Þorkell bendir á að þarna hafi mann­kynið verið í hvað mestum tengslum við jörð­ina, alls konar trú­ar­brögð og heims­veldi hafa komið og farið. „Sýrland er eins og eitt stórt þjóð­minja­safn. Ef þú spáir í það hvernig þró­unin hefur verið þá er það kannski tákn­rænt fyrir okkar tíma, þar sem tæknin og fram­þró­unin er orðin svo mikil varð­andi það að beita ofbeldi, að birt­ing­ar­mynd nútím­ans er 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár