Hjólreiðafólk kvartar undan aðkasti

Hags­muna­á­rekstrar eru á göngu­stígum á höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins milli gang­andi og hjólandi. Hjól­reiða­fólk verður fyrir aðkasti og er jafn­vel slegið fyrir það eitt að vera hjólandi, segir hjól­reiða­konan Þuríður Ósk Gunn­ars­dóttir. Annar hjóla­maður segir ferða­menn á bíla­leigu­bílum sýna meiri til­lits­semi en inn­lenda öku­menn.

Hjólreiðafólk kvartar undan aðkasti
Þuríður Ósk Gunn­ars­dóttir Að mati hjól­reiða­kon­unnar Þuríðar Óskar er merk­ingum á hjóla­stígum ábóta­vant. Hún verður fyrir því að öskrað sé á hana fyrir það að vera á hjóli. Hún hefur hjólað tölu­vert erlendis. Hér er hún í hjóla­ferð við Garda-vatnið á Norður-Ítalíu. Hún seg­ist upp­lifa meiri til­lits­semi öku­manna gagn­vart hjól­reiða­fólki á Spáni en á Íslandi.

Tveir hjól­reiða­menn sem voru á ferð á Sel­tjarn­ar­nesi þegar 67 ára maður seg­ist hafa orðið fyrir „skriðu“ hjól­reiða­manna á göngu­stíg lýsa því hvernig hjól­reiða­menn verða fyrir aðkasti á göngu­stígum án til­efnis.

„Það virð­ist sem einn og einn hjól­ari sé ekki að taka til­lit og sá pirr­ingur yfir­færður á alla heild­ina. Og ég verð vör við að fólk er farið að láta pirr­ing sinn fara út í öfgar og slær jafn­vel til hjólara,“ segir Þuríður Ósk Gunn­ars­dóttir hjóla­kona, sem verður reglu­lega fyrir aðkasti vegna þess eins að hún er á hjóli.

Upplifa ógn af hraðskreiðum hjólreiðamönnum

Eiríkur Einarsson
Eiríkur Ein­ars­son Eiríkur var á kvöld­göngu með vin­konu þegar hann lenti í stymp­ingum við flokk hjól­reiða­manna sem kom á miklum hraða.

Eiríkur Ein­ars­son, 67 ára gam­all maður á Sel­tjarn­ar­nesi lýsti því í við­tali við Stundina í gær að hann hefði upp­lifað að ráð­ist hefði verið á sig þegar tugir hjól­reiða­manna fóru fram hjá honum á göngu­stíg við sjó­inn undir Val­húsa­hæð­inni á Sel­tjarn­ar­nesi. Hann segir hjól­reiða­menn hafa rek­ist á sig ítrekað, en sjálfur við­ur­kennir hann að hafa verið óbil­gjarn, neitað að víkja og misst stjórn á skapi sínu við atvikið, eftir að honum varð hverft við þegar hjól­reiða­menn­irnir komu aðvíf­andi. Honum er hins vegar nóg um hrað­skreiðar keppn­is­hjól­reiðar á göngu­stíg­unum.

„Ég skil ekki almenni­lega hvað gerð­ist. Það var allt í einu eins og hefði verið ráð­ist á mig. Ég heyrði köll og allt í einu var ég far­inn hálf­part­inn að stymp­ast við menn sem dynja á mér. Ég tók nokkur högg. Þeir skullu á öxl­inni á mér,“ lýsti Eiríkur, sem við­ur­kenndi að hann bæri sína ábyrgð á því hvernig fór.

Aðal­varð­stjóri Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sagði í sam­tali við Stundina að hann teldi aukn­ingu á reið­hjóla­notkun komna langt fram úr reið­hjóla­stíga­gerð og að hætta geti stafað af kapp­sömum hjól­reiða­mönnum á göngu­stíg­unum.

Öskrað á hjólreiðafólk

„Þegar ég kom að þessum manni þá pass­aði hann sig að víkja ekk­ert og þau tóku allan stíg­inn,“ lýsir Þuríður Ósk, sem var ein af tugum hjól­reiða­manna á stígnum sem hjólaði fram á Eirík. „Ég smá minnka hrað­ann og verð svo að stöðva alveg. Ég spyr hvort ég geti ekki fengið smá part af stígnum. Þá fékk ég öskrin yfir mig að ég ætti að vera enhvers staðar ann­ars­staðar. Hann var virki­lega dóna­legur og leið­in­legur. Ég sé ekki að það afsaki hann að vera dóna­legur og jafn­vel slá til fólks með til­heyr­andi hættu, við heilan hóp af fólki, jafn­vel þótt ein­hver annar hafi verið dóna­legur við hann. Ég er 53 ára kona og er hluti af stórum hjóla­hópum sem elska að hjóla, á ekki Tour De France galla og hjólið mitt kost­aði ein­ungis brot af milljón. Jú, ég hjóla í þröngum hjóla­fötum því það er bara ekki gaman að hjóla í fötum sem flax­ast til og frá. Ég reyni alltaf að taka til­lit til fólks á stígum, býð góðan dag­inn og lækka hrað­ann almennt fram­hjá fólki, samt hefur ítrekað verið öskrað á mig bara því ég hjóla. Ein úr hópnum mínum var að hjóla með vin­konu sinni um dag­inn og það var slegið til hennar,“ segir hún.

„Það var slegið til hennar“

Hún seg­ist ótt­ast að nei­kvæð umræða um hjól­reiða­menn valdi því að við­horf gagn­vart þeim verði nei­kvæð­ara og fleiri muni veita þeim aðkast. Það megi ekki yfir­færa á allan hóp hjól­reiða­manna þótt einn og einn sé dóna­legur. „Við hjól­reiða­fólk erum almennt kurt­eist og þægi­legt fólk eins og allur þorri fólks. Ég ótt­ast að pirrað fólk telji sig komna með enn meiri afsökun á að láta inni­byrgða reiði yfir allt öðrum hlutum bitna á sak­lausum hjól­urum sem hafa sér eitt til saka unnið að hafa ástríðu fyrir hjól­reiðum.“
Að mati Þuríðar er helsti orsaka­valdur pirr­ings milli hjól­reiða­fólks og gang­andi að stíg­arnir séu aðgreindir á rangan hátt. Þannig ætti að gilda hægri regla á öllum stígum, en línur sem séu á stígum í Elliða­ár­dal og víðar séu til að rugla fólk, enda séu þær úreltar.

Seltjarnarnes
Sel­tjarn­ar­nes Göngu­stígur liggur með­fram strönd Sel­tjarn­ar­ness og heldur áfram við mörk Reykja­vík­ur­borgar. Ekki er sér­stök afmörkun milli gang­andi og hjólandi á stíg­unum.

Hjólreiðamennirnir voru 120

Birgir Birg­is­son hjól­reiða­maður seg­ist hafa verið nær­staddur atvik­inu og hafa heyrt frá­sagnir ann­arra hjól­reiða­manna af því. „Það rétta er að þarna voru í heild­ina ekki um 20-30 hjól­reiða­menn á ferð­inni, heldur mun nær 120. Það vitum við þar sem hóp­ur­inn var tal­inn þegar komið er að Hörpu á leið vestur eftir. Hins vegar, eins og oft ger­ist í þessum viku­legu ferðum, dreifð­ist hóp­ur­inn tals­vert og nokkuð stór hluti hans valdi að nýta Eiðs­granda/Norð­ur­strönd frekar en göngu­stíg­ana, af til­lits­semi við gang­andi veg­far­endur. Það er því líka orðum ofaukið þegar Eiríkur lýsir hópnum sem „skriðu“ eða „fiski­torfu“, þó svo það hafi kannski verið hans per­sónu­lega upp­lifun. Þeir sem not­uðu stíg­inn þetta kvöld, not­uðu, eins og alltaf í þessum hóp­ferðum, sín á milli ákveðið bend­inga- eða merkja­kerfi, sem er ætlað að vara þá við sem hjóla aftar í hópnum þegar önnur umferð, föst fyr­ir­staða eða ein­hver hætta verður á leið­inni. Enda getur á stundum verið erfitt að hafa nægt útsýni langt fram fyrir sig þegar hjólað er í hóp.  Þess vegna voru flestir vel með á nót­unum þegar þeir mættu Eiríki Ein­ars­syni og vin­konu hans, og viku til hægri hliðar á stígnum og hægðu svo­lítið á sér, eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Vinkonu Eiríks, sem virð­ist hafa brugðið mun minna en honum, sáu menn stíga örlítið til hliðar, að jaðri stígs­ins, og gerði hún meira að segja, eftir því sem sjón­ar­vottar segja, til­raun til að toga Eirík í sömu átt. Sem mistókst. Vegna þess að Eiríkur gekk, fullur hvat­vísi, út á miðjan stíg­inn og bað­aði út höndum. Við þær aðstæður getur verið ansi erfitt fyrir þá sem nálæg­astir koma að hægja nægi­lega mikið á sér og kom­ast nógu langt til hliðar án þess að rekast í hend­urnar á mann­inum, enda er stíg­ur­inn ef til vill full­mjór á þessum kafla. Enda fór það svo, eftir því sem ég kemst næst, að tveir í hópnum rák­ust í útbreiddan faðm Eiríks. Hvort ein­hver hafi rek­ist í öxl hans áður en þetta ger­ist, get ég ekki sagt til um. Og ég ætla ekki að afsaka þetta á nokkurn hátt, við­kom­andi hefðu auð­vitað átt að hægja betur á sér og vera meira við­búin,“ segir hann.

Birgir Birgisson
Birgir Birg­is­son Hjól­reiða­menn sem hjóla á göt­unni í stað göngu­stígs verða fyrir því að öku­menn á bif­reiðum keyra nokkra metra fyrir aftan þá, jafn­vel þótt hinir hjólandi séu við hámarks­hraða.

Birgir segir það jákvætt að Eiríkur hafi séð eftir því að hafa brugð­ist öfga­kennt við aðstæð­unum.

„Hins vegar er það sann­reynt að eftir þessa nei­kvæðu upp­lifun Eiríks og vin­konu hans, sá hann ástæðu til að hreyta ónotum í nær allt það hjól­reiða­fólk sem átti leið fram­hjá honum eftir atvikið, og það voru nokkuð margir. En eng­inn þeirra átti sök á því sem gerð­ist, eng­inn þeirra var „í Tour de France galla“ og eng­inn þeirra var „á milljón króna“ hjóli.  Hins vegar sýndu allir sem á eftir komu þá sjálf­sögðu til­lits­semi sem þörf var á og komust klakk­laust fram­hjá mann­inum sem valdi að standa á miðjum stígnum, hrópa og baða út höndum.“

Með tveggja tonna bíl á eftir sér

Birgir lýsir veru­leika hjól­reiða­fólks þegar út á göt­una er komið. Sjálfur valdi hann göt­una fram yfir göngu­stíg­inn þetta kvöld. „Sá hópur hjól­reiða­fólks sem þetta kvöld valdi að nýta göt­una, af til­lits­semi við gang­andi veg­far­endur eins og Eirík og vin­konu hans, upp­lifði það að þrátt fyrir að halda nærri hámarks­hraða út alla göt­una, vorum við eltir af öku­manni sem hafði ein­ungis um fjög­urra til fimm metra bil frá bílnum að okkur. Það get ég borið fullt vitni um, þar sem ég var aft­astur í þeim hóp út nær alla göt­una og fylgd­ist vel með bil­inu, enda er mér sagt að það sé tölu­vert vont að fá tvö tonn af Volvo beint í bakið.“

Birgir seg­ist ekki hafa upp­lifað að verða fyrir aðkasti gang­andi veg­far­enda, enda haldi hann sig mest á akvegum. 

„En hinu hef ég tölu­verða reynslu af, að þegar ég nota bjöll­una mína, með 15 til 20 metra fyr­ir­vara frá gang­andi veg­far­endum, kipp­ist fólk við, stekkur í ein­hverja átt og finnst eins og ég sé alveg að fara að valta yfir það. Sem er víðs fjarri öllum sann­leika. Hinu hef ég jafn­mikla reynslu af, að fyrir mig er svínað, á mig flautað og mér gefnar dóna­legar bend­ingar á götum borg­ar­innar, þar sem ég hjóla gjarna af til­lits­semi við gang­andi veg­far­endur.

„Fyrir mig er svínað, á mig flautað og mér gefnar dóna­legar bend­ingar á götum borg­ar­innar“

Það er einmitt svona lífs­reynsla sem gerir það að verkum að margir sem nota reið­hjól að stað­aldri eru orðnir þreyttir á því að þurfa stöðugt að rétt­læta eigin til­veru. Að óháð lögum og reglu, finnst mörgu fólki það hafa fullt leyfi til að segja hjól­reiða­fólki hvar og hvernig það á að vera, oft­ast þvert ofan í það sem lög og regla segja. Fólk er ýmist á móti því að hjól­reiða­fólk noti gang­stíga, eða finnst hjól­reiða­fólk vera fyrir á göt­unum, jafn­vel þó hjólað sé nálægt leyfi­legum hámarks­hraða. Svo mætir maður sem betur fer líka hinu, fólki sem bregst mjög vel við, heilsar bros­andi og býður góðan dag. Og mér þykir full ástæða til að nefna sér­stak­lega ferða­menn á bíla­leigu­bílum, sem eftir minni reynslu að dæma, taka mun meira til­lit og sýna meiri aðgæslu en margir aðrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umferðarmenning

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár