Danskar rjómabollur. Á ofanverðri 19. öld fluttu danskir bakarar þann sið að borða bollur í föstuinngangi með sér til Íslands.
Danskar rjóma­bollur. Á ofan­verðri 19. öld fluttu danskir bak­arar þann sið að borða bollur í föstu­inn­gangi með sér til Íslands. Mynd: Wikimedia/RhinoMind

Hvað varð um bolluvöndinn?

Alsiða var í eina tíð að börn vektu for­eldra sína með fleng­ingum á bollu­dag en bollu­vönd­ur­inn hefur átt undir högg að sækja á síð­ustu árum. Vönd­ur­inn er ekki útdauður enn að sögn þjóð­fræð­ings, þó minna fari fyrir fleng­ingum en áður.

Sá siður að gæða sér á rjóma­bollum á mánu­degi í sjö­undu viku fyrir páska er orðin rót­gróin hefð og full­yrða má að fjöldi þeirra bolla sem lands­menn gæða sér á á bollu­degi auk­ist með hverju árinu. Minna hefur hins vegar farið fyrir bollu­vend­inum sem börn flengdu for­eldra sína með stóran hluta síð­ustu aldar og var fastur liður á bollu­degi.

Lesendur sem slitu barns­skónum hér á landi á síð­ustu öld kann­ast eflaust við það að hafa í æsku vakið for­eldra sína að morgni bollu­dags með hrópum og fleng­ingum. „Bolla! Bolla! Bolla!“ görg­uðu börnin á sama tíma og þau flengdu for­eldra sína með þartil­gerðum bollu­vendi og þannig unnu þau sér inn rjóma­bollur.

En hvaðan kemur þessi siður, að hefja bollu­dag með fleng­ingum? Eins og margir aðrir mis­rót­grónir siðir kemur þessi til Íslands frá frænd­þjóðum okkar í Skand­ínavíu, líkt og Dagrún Ósk Jóns­dóttir, þjóð­fræð­ingur við Háskóla Íslands, útskýrir í sam­tali við Kjarnann.

Tengist kaþólskum sið

„Hann virð­ist koma frá Danmörku og hinum Norð­ur­lönd­unum hingað. Árni Björns­son hefur tengt þetta við hirt­ingar í kaþ­ólskum sið, þar sem að þeir voru í upp­hafi föst­unnar að hýða sig. Svo hefur verið vísað í að bollu­vönd­ur­inn sjálfur sé svo­lítið í lag­inu eins og stökk­ull sem var not­aður til að dreifa vígðu vatni við upp­haf föst­unnar,“ segir Dagrún.

Þrátt fyrir þessa teng­ingu við hýð­ingar segir Dagrún að sið­ur­inn hafi aldrei haft á sér þetta alvar­lega yfir­bragð hér á landi. „Hvaða rætur sem þessi siður hefur, eins og þessar kaþ­ólsku hirt­ingar, þá var það alveg klár­lega þannig að þegar dag­ur­inn kemur til Íslands þá var þetta bara orð­inn ein­hver gam­an­leikur fyrir börn. Þegar hann berst hingað þá er þetta bara skemmtun og ærsla­gangur fyrir krakka, að hrekkja for­eldra sína og reyna að græða bollur.“

Í upp­hafi voru bollu­vendir iðu­lega not­aðir á morgn­anna. „Þá átti að „bolla“ fólk, að slá það með bollu­vend­inum. Þá þurfti sá sem var með bollu­vönd­inn að vera full­klæddur og sá sem var boll­aður að vera óklæddur. Þannig að börnin reyndu svo­lítið að grípa for­eldra sína í rúm­inu áður en þau voru farin á fætur,“ segir Dagrún en þegar leið á öld­ina breytt­ust regl­urnar. Hún segir að í sinni barn­æsku hafi til dæmis mátt „bolla“ óháð tíma dags auk þess sem fólk mátti vera eins mikið klætt og það vildi.

Að sögn Dagrúnar barst sú hefð að halda upp á bollu­dag hingað til lands á seinni hluta 19. aldar og festi sig í sessi í upp­hafi 20. aldar. Hún bendir einnig á að upp­haf þess­arar hefðar megi rekja til komu danskra bak­ara til lands­ins, að baka bollur á þessum degi í föstu­inn­gangi.

Elsta auglýsing um bolluvendi frá 1912

Siðurinn virð­ist hafa breiðst nokkuð hratt út um landið. Dagrún segir að um og upp úr alda­mót­unum 1900 hafi heitið bollu­dagur verið ráð­andi í Reykja­vík og í kaup­stöðum en á lands­byggð­inni hafi dag­ur­inn hins vegar ýmist verið kall­aður fleng­inga­dagur eða flengi­dagur. „Þannig að þar virð­ist samt hafa verið þessi hefð til staðar að vera með bollu­vönd og að flengja til að fá bollu.“

Auglýsing Hagkaupa frá 1998. Þá kostaði bolluvöndurinn 47 krónur en í dag samsvarar það 134 krónum samkvæmt verðlagsreiknivél Hagstofu Íslands.
Aug­lýs­ing Hagkaupa frá 1998. Þá kost­aði bollu­vönd­ur­inn 47 krónur en í dag sam­svarar það 134 krónum sam­kvæmt verð­lags­reikni­vél Hagstofu Íslands.

Bollu­vend­irnir festu sig í sessi skömmu eftir land­nám boll­unnar. „Elsta aug­lýs­ingin um bollu­vönd er frá 1912. Þá var hægt að fara og kaupa þá, þá voru bollu­vendir til sölu. Svo er í Æskunni að mig minnir aug­lýs­ing frá 1925 þar sem verið er að selja bollu­vendi og þar er aðeins útskýrt hvað þeir eru. Þá er nefnt að þetta séu tré­hríslur með skauti á end­anum, þannig að það er eins og það hafi þurft aðeins útskýr­ingar við. Þetta virð­ist því vera komið snemma á 20. öld­inni,“ segir Dagrún og bendir á að bollu­vendir hafi verið til sölu langt fram eftir 20. öld, til að mynda í bak­ar­íum og í Hag­kaupum.

Þrátt fyrir að minna fari fyrir bollu­vend­inum nú en hér áður fyrr, þá er þessi siður ekki útdauður enn. „Það er svo­lítið áhuga­vert að oft virð­ast leik­skólar verða ein­hvers konar vernd­arar hefð­ar­innar og bollu­vendir eru föndraðir á nokkrum leik­skólum enn þá. Oft er þetta pappa­diskur sem er heft­aður saman á spýtu. En ann­ars held ég að það fari ekki mikið fyrir þeim,“ segir Dagrún.

Einfalt mál að föndra bolluvönd

Að mati Dagrúnar er erfitt að festa reiður á það hvað hafi valdið hnignun bollu­vand­ar­ins. „Þegar hefðir hverfa, þá er eitt­hvað í sam­fé­lag­inu sem veldur þeim breyt­ingum að það er ekki þörf á hefð­inni eða að það verður of mikið, hún er meira til ama en skemmt­unar. Þó að það sé erfitt að segja nákvæm­lega í til­felli bollu­vand­ar­ins.“

Fyrir áhuga­sama er lítið mál að föndra bollu­vönd, hægt er að kom­ast af með lítið annað en papp­írs­af­ganga og dag­blöð. Þeir bollu­vendir sem algeng­astir voru í versl­unum voru aftur á móti að uppi­stöðu til gerðir úr kreppappír. Hér að neðan má horfa á kennslu­stund rit­höf­und­ar­ins Herdísar Egils­dóttur í bollu­vanda­gerð. Þessi klippa er frá árinu 1985 og er úr barna­tíma Rík­is­sjón­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár