Mislingar breiðast út

Fjögur misl­inga­smit hafa nú verið stað­fest á skömmum tíma.

Fjórir hafa greinst með misl­inga á Íslandi á skömmum tíma, og þar af eru tvö börn, sem eru innan við 18 mán­aða aldur og því ekki búin að fá bólu­setn­ingu við sjúk­dómnum. Um 90 Íslend­inga eru með bólu­setn­ingu við misl­ingum, en misl­inga­til­fellum hefur fjölgað hratt í Evrópu á und­an­förnum tveimur árum og það sama á við um Banda­ríkin.

Til­fellin fjögur má rekja til flug­ferðar til Egils­staða. Maður með misl­inga kom hingað til lands um miðjan mánuð, og fór svo með inn­an­lands­flugi til Egils­staða, þar sem tvö börn, bæði undir 18 mán­aða gömul, hafi smit­ast.

Í við­tali við Síð­deg­is­út­varp RÚV sagði Ásgeir Har­alds­son pro­fessor í barna­lækn­ingum að annað barnið hafi verið lagt inn á sjúkra­hús og sé á bata­vegi. „Bæði þessi börn eru innan við 18 mán­aða gömul en það er einmitt við þann aldur sem fyrsta misl­inga­bólu­setn­ingin er gefin. Það er ágætt að það komi fram að það er ekki við neinn að sakast. Það er ekki neinn sem gerði neitt vit­laust. Það var ekki neinn sem gleymdi eða vildi ekki láta bólu­setja. Því er ekki til að dreifa. Þetta eru frá­bærir for­eldrar yfir­veg­aðir og skyn­samir en börnin voru bara ekki komin á þann aldur að það eigi að bólu­setja þau,“ sagði Ásgeir.

Misl­inga­til­fellum hefur fjölgað veru­lega að und­an­förnu bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Bólu­setn­ing við misl­ingum fer yfir­leitt fram við 18 mán­aða aldur, en þeir sem hafa ekki bólu­setn­ingu geta átt á hættu að veikj­ast illa og lífs­hættu­lega, enda misl­ingar bráðsmit­andi.

Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin WHO hefur ítrekað hvatt til bólu­setn­inga við misl­ingum og öðrum sjúk­dómum sem hindra má útbreiðslu við, með bólu­setn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár