Gengissveiflur og háir vextir uppspretta deilna og ójafnvægis

Mikil óánægja er hjá atvinnu­rek­endum með þá ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar um að halda meg­in­vöxtum óbreyttum.

Geng­is­sveiflur íslensku krón­unnar eru nú farnar að valda tölu­verðum titr­ingi í íslenska hag­kerf­inu, enn eina ferð­ina. Evran kostar nú 127 krónur en hún kost­aði 110 krónur í júní. Veik­ingin hefur því verið þó nokkur að und­an­förnu, og það á mesta háanna­tíma í ferða­þjón­ust­unni. 

Innflæði magnar upp sveiflur

Eitt af þvi hefur verið að magna upp geng­is­sveiflur að mati Agnars Tómasar Möllers, sjóðs­stjóra hjá Gamma, eru höft á inn­flæði fjár­magns. Þau gera það að verkum að erlendir fjár­festar koma ekki inn á skulda­bréfa­markað, og það er að ger­ast á sama tíma og líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa verið að beina fjár­fest­ingum sínum annað, meðal ann­ars úr landi. Í við­tali við Við­skipta­Mogg­ann í vik­unni nefndi hann þetta sem eina af skýr­ing­unum á auknum sveiflum og óró­leika þegar gengi krón­unnar væri ann­ars vegar. „Vonandi bregst Seðla­bank­inn við með skyn­sam­legum hætti og afnemur inn­flæð­is­höftin. Ef af yrði gæti krónan fundið jafn­vægi og dregið yrði úr geng­is­sveiflum,“ sagði hann meðal ann­ars. Þar sem erlendir aðilar hafa nær ein­göngu fjár­fest í óverð­tryggðum skulda­bréfum hefur þessi þróun ásamt geng­is­veik­ing­unni ýtt veru­lega upp verð­bólgu­á­lagi á skulda­bréfa­mark­aði und­an­farið.

Seðlabankinn vill halda háum raunvöxtum

Ákvörðun Seðla­banka Íslands, um að halda meg­in­vöxtum óbreyttum í 4,5 pró­sentum, var illa tekið í atvinnu­líf­inu og segir í pistli á vef Samtaka atvinnu­lífs­ins að svo virð­ist sem bank­inn sé stað­ráð­inn í að halda raun­vöxtum háum. „Seðla­bank­inn virð­ist stað­ráð­inn í því að halda raun­vaxta­stig­inu háu og eru meg­in­rök fyrir óbreyttum vöxtum nú að raun­vaxta­stigið hafði lækkað. Það er þó mik­il­vægt að hafa í huga að nú hefur verð­bólga verið undir mark­miði sam­fleytt í 42 mán­uði og á sama tíma hefur Seðla­bank­inn kerf­is­bundið spáð meiri verð­bólgu en raunin hefur orðið. Aðhald pen­inga­stefn­unnar hefur því þegar reynst meira en upp­haf­lega var lagt upp með. Þá hafa lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar á skulda­bréfa­mark­aði verið undir eða við mark­mið síð­astaliðið ár. Ekki verður betur séð en að geng­is­veik­ing krón­unnar sé meg­in­skýr­ingin að baki óbreyttu vaxta­stigi þrátt fyrir að flestar und­ir­liggj­andi hag­stærðir gefi til­efni til ann­ars. Það er eðli­legt að spurt sé hvað ger­ist þegar góð­ær­inu lýkur og efna­hags­slaki mynd­ast, krónan veik­ist og verð­bólgu­horfur versna - mun Seðla­bank­inn þá lækka vexti veru­lega? Það má efast um það,“ segir í pistl­inum.

Spenna og breyttar horfur

Meginrök pen­inga­stefnu­efndar fyrir ákvörð­un­inni eru þau, spenna sé í þjóð­ar­bú­skapnum og sem kalli á pen­inga­legt aðhald. Þá séu blikur á lofti í hag­kerf­inu, meðal ann­ars á hús­næð­is­mark­aði. „Frá síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar hafa skamm­tíma verð­bólgu­vænt­ingar hækkað lít­il­lega sem lík­lega end­ur­speglar að hluta áhrif lækk­unar á gengi krón­unnar að und­an­förnu. Verð­bólgu­vænt­ingar til langs tíma hafa hins vegar lítið breyst sé miðað við nýlega könnun Seðla­bank­ans á verð­bólgu­vænt­ingum mark­aðs­að­ila. Lengri tíma verð­bólgu­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði hefur þó hækkað und­an­farna daga en það sem af er þessum árs­fjórð­ungi er það í ágætu sam­ræmi við verð­bólgu­mark­mið bank­ans.

Spenna í þjóð­ar­bú­skapnum kallar á pen­inga­legt aðhald svo að tryggja megi verð­stöð­ug­leika til með­al­langs tíma. Hrær­ingar hafa verið á gjald­eyr­is­mark­aði og vís­bend­ingar eru um að breyt­ingar gætu verið framundan í utan­rík­is­við­skiptum og á hús­næð­is­mark­aði. Of snemmt er að full­yrða um umfang og afleið­ingar þeirra. Raun­vextir bank­ans hafa lækkað lít­il­lega frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar en virð­ast við núver­andi aðstæður sam­rým­ast því sem þarf til að verð­bólga verði að jafn­aði við mark­mið. Aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar á kom­andi miss­erum mun ráð­ast af fram­vindu efna­hags­mála og annarri hag­stjórn,“ segir í til­kynn­ingu pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar.

Óboðlegt

Samtök atvinnu­lífs­ins segja að það sé „óboð­legt“ fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki að fá þessa ákvörðun fram nú, um að halda vöxtum óbreyttum. „Með eina af hæstu raun­vöxtum í heimi og inn­flæð­is­höft við lýði er verið að grafa undan efna­hags­legu jafn­vægi. Vaxta- og hafta­stefna Seðla­bank­ans dregur úr fjár­fest­ingu í land­inu og hvata til nýsköp­unar. Á sama tíma og líf­eyr­is­sjóðir og íslensk fyr­ir­tæki og kjósa nú að fjár­festa erlendis eftir að hafa verið lokuð innan hafta í átta ár þá eru hömlur settar á erlenda fjár­fest­ingu inn í landið. Það er óboð­legt fyrir fyr­ir­tæki og heim­ili í land­inu að halda stýri­vöxtum óbreyttum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár