Forsetinn staðfestir innleiðingu þriðja orkupakkans

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur stað­fest lög um breyt­ingar á raf­orku­lögum. Orkan okkar skor­aði á for­set­ann að stað­festa ekki lögin og vísa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, hefur und­ir­ritað og stað­fest tvenn lög; lög um breyt­ingu á raf­orku­lögum, nr. 65/2003, með síð­ari breyt­ingum (flutn­ings­kerfi raf­orku), og lög um breyt­ingu á raf­orku­lögum og lögum um Orku­stofnun (EES-reglur, við­ur­laga­á­kvæði). Alþingi sam­þykkti lögin þann 2. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá for­set­anum.

Í henni segir: „Frumvörp til þess­ara laga voru lögð fram á Alþingi 1. apríl síð­ast­lið­inn, fyrir rúmum fimm mán­uðum. Umræður um efni þeirra og skyld mál­efni höfðu varað mán­uðum saman fyrir það, ef ekki lengur. Í 26. grein stjórn­ar­skrár lýð­veld­is­ins hefur frá upp­hafi verið kveðið á um þann rétt for­seta að synja lögum stað­fest­ingar þannig að þau öðlist gildi en verði lögð í dóm kjós­enda til sam­þykktar eða synj­unar. Frá lokum síð­ustu aldar hefur all­mörgum sinnum verið skorað á for­seta að beita þessum rétti, með og án til­ætl­aðs árang­urs eins og dæmin sanna.“

7.643 skrifuðu undir

Þá kemur fram hjá for­seta að í byrjun ágúst hafi verið birt áskorun til for­seta á vefnum Synjun.is og haf­ist um leið söfnun und­ir­skrifta. Tekið hafi verið fram að hægt væri að „að skrá sig sjálfan, fjöl­skyldu­með­limi og vinnu­fé­laga“. Áskor­unin var svohljóð­andi:

„Við undirrituð skorum á þig forseta lýðveldisins Íslands Hr. Guðna Th. Jóhannesson að beita málskotsrétti þínum til þjóðarinnar skv. 26. grein stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og synja staðfestingar á hverjum þeim lögum samþykktum af Alþingi Íslendinga sem fela í sér afsal á yfirráðum Íslendinga yfir náttúruauðlindum okkar, svo sem orku vatnsaflsvirkjana og jarðhitasvæða, drykkjarvatni og heitu vatni, og afsal á stjórn innviða tengdum þeim til erlendra aðila, hvort sem það eru einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, ríki eða ríkjasambönd, og vísa þannig lögum til þjóðaratkvæðagreiðslu.“

Guðni tók í gær á móti lista með nöfnum þeirra sem höfðu á raf­rænan hátt lýst yfir fylgi við þessa áskorun, sam­tals 7.643 nöfn. Það eru rúm þrjú af hundraði kjós­enda. For­set­inn þakkar þeim sem lýstu þannig afstöðu sinni í „mik­il­væga álita­máli.“

Þann 2. sept­em­ber síð­ast­lið­inn sam­þykkti Alþingi einnig þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem heim­il­aði rík­is­stjórn að stað­festa fyrir Íslands hönd ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar, nr. 93/2017, um breyt­ingu á IV. við­auka (Orka) við EES-samn­ing­inn, sem í almennri orð­ræðu kall­ast þriðji orku­pakk­inn.

Áskorun frá Orkunni okkar

Guðni tók þann 28. ágúst síð­ast­lið­inn á móti full­trúum sam­tak­anna Orkan okkar. Þeir afhentu svohljóð­andi áskorun:

„Samtökin Orkan okkar skora á forseta Íslands að staðfesta ekki upptöku þriðja orkupakkans inn í EES-samninginn nema annað tveggja komi til: a) sameiginlega EES-nefndin hafi veitt Íslandi undanþágu frá innleiðingu eða b) þjóðin hafi í þjóðaratkvæðagreiðslu fallist á að undirgangast skuldbindingar orkupakkans.“

Í til­kynn­ingu for­seta segir að full­trúar sam­tak­anna hafi átt fund með honum. Þeir hafi fært rök sín fram af kurt­eisi, festu og sann­girni. Það hafi fleiri gert sem haft hafa sam­band við for­set­ann vegna orku­pakka­máls­ins. „Ég þakka þeim fyrir að nýta þá leið til að láta skoðun sína í ljós,“ skrifar Guðni. 

Ákvarð­anir sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar eru teknar með stjórn­skipu­legum fyr­ir­vara ef breyta þarf lögum vegna inn­leið­ingar þeirra.

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni: „Slíkum fyr­ir­vara er aflétt með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í sam­ræmi við 21. grein stjórn­ar­skrár­innar um það hvenær Alþingi þarf að koma að gerð þjóð­rétt­ar­samn­inga. Þings­á­lykt­un­ar­til­lögur Alþingis eru ekki lagðar fyrir for­seta, hvorki til upp­lýs­ingar né sam­þykktar eða synj­unar. Fari svo að Alþingi sam­þykki að aflétta stjórn­skipu­legum fyr­ir­vara veitir þingið rík­is­stjórn hins vegar heim­ild til að stað­festa ákvarð­anir sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar. Slíkar ákvarð­anir eru lagðar fyrir for­seta til stað­fest­ingar, með vísan til áður­nefndar 21. greinar stjórn­ar­skrár­innar sem kveður á um að for­seti Íslands geri samn­inga við erlend ríki.

Má hér nefna til frek­ari upp­lýs­ingar að árin 2013 til 31. júlí 2016 stað­festi for­seti (eða hand­hafar for­seta­valds) 41 ákvörðun sam­eig­in­legu EESnefndarinnar með þessum hætti. Frá 1. ágúst 2016 til þessa dags hafa 32 ákvarð­anir verið stað­festar á sama hátt.“

Myndi ekki leiða til þjóðaratkvæðagreiðslu

Guðni seg­ist í dag hafa fall­ist á til­lögu um stað­fest­ingu ákvörð­unar sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar, og end­urstað­fest þá til­lögu í rík­is­ráði. Kysi for­seti að stað­festa ekki form­lega með und­ir­ritun sinni þá ákvörðun Alþingis að heim­ila rík­is­stjórn að stað­festa fyrir Íslands hönd ákvörðun sam­eig­in­legu EES nefnd­ar­innar myndi sú afstaða ekki leiða til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, ólíkt því sem skýrt er kveðið á um í 26. grein stjórn­ar­skrár­innar um synjun stað­fest­ingar laga. Enginn réttur af því tagi yrði virkj­aður af því að hann er ekki að finna í stjórn­skipun lýð­veld­is­ins. 

„Í aðdrag­anda for­seta­kjörs 2016 lýsti ég stuðn­ingi við þá hug­mynd um breyt­ingu á stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins að sett yrði ákvæði um að til­tek­inn fjöldi kjós­enda geti með beinum hætti kallað fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um lög Alþingis.

Ég kvaðst einnig styðja aðrar stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, ekki síst að ákvæði um for­seta Íslands yrðu end­ur­skoðuð þannig að þau lýstu á skýr­ari hátt stöðu for­seta en bæru ekki sterkan keim af upp­runa í kon­ungs­ríki fyrir daga þing­ræðis og lýð­ræðis. Í umræðum um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar frá því í byrjun þess­arar aldar hefur auk þess reglu­lega verið bent á að ákvæði hennar um for­seta Íslands séu orðuð þannig nú að þau dragi ekki upp rétta mynd af stjórn­skipun lands­ins nema þau séu lesin í fullu sam­hengi hvert við annað,“ skrifar hann.

Þessum sjón­ar­miðum seg­ist hann einnig hafa lýst á for­seta­stóli. Þá megi finna stuðn­ing við þau í röðum flestra ef ekki allra stjórn­mála­flokka. Þess megi vænta að þessi sjón­ar­mið muni heyr­ast áfram nú þegar for­menn eða full­trúar allra flokka á Alþingi vinna saman að end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Því beri að fagna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár