Krefjast þess að Meta breyti „ávana- og fíknarmyndandi hönnun“ Facebook og Instagram.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins segir að Meta hafi ekki brugð­ist við upp­lýs­ingum um tíma sem börn verja á öpp­unum á næt­urnar, hvernig Reels og Stories geti leitt til áráttu­kenndrar notk­unar og hvernig efni sem sýnt er á grund­velli reikni­rita geti leitt ung­linga að sífellt öfga­fyllra efni.

Meta verður að breyta „ávana- og fíkn­ar­mynd­andi hönnun“ Facebook og Instagram, ella á fyr­ir­tækið yfir höfði sér háar sektir, var­aði Evr­ópu­sam­bandið við í dag. 

ESB sakar banda­ríska tækniris­ann um að hafa ekki dregið nægi­lega úr þeirri áhættu sem sam­fé­lags­miðl­arnir skapa not­endum, sér­stak­lega börnum og við­kvæmum full­orðnum, vegna eig­in­leika sem eru hann­aðir til að halda fólki lengur inni á Facebook og Instagram.

Sér­stakar áhyggjur bein­ast að eig­in­leikum á borð við enda­laust fletti­fæði (infinite scroll), mjög sér­sniðin efn­is­streymi og sjálf­virka spilun mynd­banda.

„Vernd lík­am­legrar og and­legrar heilsu Evr­ópu­búa verður að vera for­gangs­mál hjá sam­fé­lags­miðlum,“ sagði Henna Virk­kunen, fram­kvæmda­stjóri ESB í tækni­málum, í yfir­lýs­ingu.

Auka þrýsting á stórfyrirtæki

Evr­ópu­sam­bandið hefur á und­an­förnum mán­uðum aukið þrýst­ing sinn á stór tækni­fyr­ir­tæki um að vernda not­endur betur á net­inu, sér­stak­lega börn.

Í bráða­birgða­nið­ur­stöðu sem birt var í dag sagði fram­kvæmda­stjórn ESB að hún teldi að „Meta þurfi að gera …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár