Leiguverð lækkar og íbúðaverð hækkar

Verð á fast­eignum hækk­aði lít­il­lega milli maí og júní, en leigu­verð lækk­aði tölu­vert á sama tíma­bili. Hækkun á fast­eigna­verði er mest meðal nýrri bygg­inga og sér­býlis, en lækkun leigu­verðs er mest hjá stúd­íó­í­búðum.

Leiguverð stúdíóíbúða í Vesturhluta Reykjavíkur lækkaði um fjórðung milli maí og júní.
Leigu­verð stúd­íó­í­búða í Vest­ur­hluta Reykja­víkur lækk­aði um fjórð­ung milli maí og júní. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íbúða­verð hækk­aði um 0,8% milli maí og júní á meðan leigu­verð lækk­aði um 2,4%. Leigu­verð stúd­íó­í­búða lækk­aði umfram aðrar íbúða­flokka, en fast­eigna­verð sér­býlis og nýrra íbúða hefur hækkað tölu­vert umfram fast­eigna­verð fjöl­býlis und­an­farna mán­uði. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Þjóð­skrár Íslands grein­ingar frá Arion banka.

Sérbýli hækkar hraðar

Samkvæmt töl­unum, sem birtar voru í gær og í dag, var hækkun íbúða­verðs mest í sér­býli milli mán­aða, eða um 1,7%, á meðan verð á fjöl­býli hækk­aði ein­ungis um 0,6%. Sé litið á þróun síð­ustu tólf mán­aða er munur á verð­hækkun tveggja flokk­anna enn meiri, en fast­eigna­verð sér­býlis hefur hækkað um 9,3% frá júní í fyrra, til sam­an­burðar við 3,7% hækkun á verði í fjöl­býli.

Hækkun á vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var á milli þess­ara tveggja flokka, en hún nam 0,8% milli maí og júní og 5,2% milli júní­mán­aða 2017 og 2018.

Meiri sveiflur í leiguverði

Á hinn bóg­inn lækk­aði vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 2,4% milli maí og júní. Af tölum Þjóð­skrár er leigu­verðið hins vegar bundið meiri sveiflum en íbúða­verðið, síð­ast­liðna 12 mán­uði hefur það hækkað hraðar en íbúða­verð, eða um 7%. Sveifl­urnar eru enn greini­legri þegar leigu­verð er skipt niður eftir flokkum og hverfum, en leigu­verð studíó­í­búða lækk­aði um 25% milli maí og júní í Vest­ur­hluta Reykja­víkur og 13% í Aust­ur­hluta bæj­ar­ins. Á sama tíma hækk­aði leigu­verð tveggja her­bergja íbúða í Vest­ur­hlut­anum um 4%, en lækk­aði um 8% í Aust­ur­hlut­anum.

Nýrri byggingar hækka hraðar

Grein­inga­deild Arion banka bendir á að ásett verð í fast­eigna­aug­lýs­ingum hefur þró­ast mis­mun­andi eftir íbúða­flokkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ustu mán­uðum, en nýrri eignir virð­ast hafa hækkað mun hraðar í verði.

Und­an­farna tólf mán­uði nam hækkun ásetts verðs í nýrri bygg­ingum um 17,5%, á sama tíma og aug­lýst verð í eldri bygg­ingum hækk­aði ein­ungis um 2,3%. Til sam­an­burðar þá hefur fer­metra­verð í fjöl­býli sam­kvæmt vísi­tölu íbúða­verðs fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið hækkað um 2,9% und­an­farna tólf mán­uði.

Munurinn er enn meiri ef munur á verð­þróun milli nýrra og gam­alla bygg­inga er ein­ungis skoð­aður frá ára­mót­unum. Á því tíma­bili hefur aug­lýst verð nýrra bygg­inga hækkað um 7,7% á meðan ásett verð eldri bygg­inga hefur lækkað um 1,0%. Til sam­an­burðar hækk­aði vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 2,4% á tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúðahúsnæði

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár